Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

10. fundur
23. janúar 2020 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Afgreiðsla atvinnu- og rannsóknasjóðs 2020
Málsnúmer 202001058
Atvinnu- og menningarmálanefnd auglýsti styrki á vegum Atvinnu- og rannsóknasjóðs til umsókna þann 20. nóvember 2019 og var umsóknarfrestur til 15. janúar sl. Að þessu sinni bárust sjóðnum 12 umsóknir, þar af þrjár í A hluta sjóðsins, og níu í B hluta hans.
Nefndin fór yfir umsóknir og vinnur áfram að málinu.
2.
Vegvísar innan Hafnar
Málsnúmer 202001057
Bæjarstjóri fól atvinnu- og ferðamálafulltrúa og aðstoðarþjóðgarðsverði að útfæra tillögu að vegvísum innan Hafnar. Meðfylgjandi eru fyrstu hugmyndir að efnisþáttum og staðsetningu vegvísa.
Lagt fram til kynningar.
3.
Norrænt samstarfsverkefni um sjálfbæra bæi.
Málsnúmer 201709224
Lagt fram til kynningar.
4.
Umsóknir um menningastyrki 2019
Málsnúmer 201912062
Alls bárust 15 umsóknir um menningarstyrki í ár 8 umsóknir um rekstrarastyrk og 7 um verkefnastyrk. Umsóknarfrestur var til 6.12.2019.
Nefndin fór yfir umsóknir sem bárust og tók ákvörðun um úthlutun. Nefndin þakkar allar umsóknir sem bárust. ljóst er af fjölda umsókna að mikil gróska er í menningarmálum í sveitarfélaginu. Afhending styrkja fer fram 13. mars nk. verður það auglýst nánar síðar.