Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

11. fundur
27. janúar 2020 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Afgreiðsla atvinnu- og rannsóknasjóðs 2020
Málsnúmer 202001058
Umsóknir í atvinnu- og rannsóknarsjóð 2020 lagðar fram til lokaafgreiðslu hjá atvinnumálanefnd. Alls bárust 12 umsóknir í sjóðinn að þessu sinni. Í ár eru kr. 2.300.000.- til úthlutunar, þar af kr. 1.000.000.- í A hluta sjóðsins og kr. 1.300.000.- í B hluta hans.
Nefndin fór yfir umsóknir í atvinnu- og rannsóknarsjóð 2020.

Úthlutun A-hluta úr atvinnu- og rannsóknarsjóði samþykkt samhljóða.

Úthlutun B-hluta úr atvinnu- og rannsóknarsjóði samþykkt samhljóða.

Starfsmanni falið að upplýsa umsækjendur um niðurstöðu nefndar.

Styrkjum verður úthlutað við hátíðlega athöfn samhliða afhendingu menningarverðlauna sveitarfélagsins þann 13. mars nk.