Atvinnu- og menningarmálanefnd
13. fundur
30. mars 2020
kl.
16:00
-
18:06
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason
formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir
varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Staða og horfur í ferðamálum í Sveitarfélaginu Hornafirði 2020
Ferðaþjónustan á Íslandi, sem og um heim allan, mætir nú stærri áskorunum en hún hefur tekist á við á síðari tímum vegna Covid-19 faraldursins. Sveitarfélagið vinnur í að ná utan um þau áhrif sem faraldurinn hefur á ferðaþjónustuna hér á svæðinu, en ljóst er að þau eru mikil.
Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar því að aukið fjármagn verði sett í markaðssetningu á Íslandi sem ferðamannastað, bæði á vegum ríkisins og Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Atvinnu- og ferðamálafulltrúa falið að fylgja málinu eftir í samstarfi við Ríki Vatnajökuls ehf.
2.
Aðgerðir til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf
Samband íslenskra sveitarfélaga sendi frá sér hugmyndir og ábendingar að aðgerðum til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf vegna þess ástands sem nú ríkir vegna Covid-19 faraldursins. Hvetur Samband íslenskra sveitarfélaga öll sveitarfélög til þess að veita íbúum, einstaklingum og fjölskyldum eins skýrar upplýsingar og kostur er um fyrirkomulag á velferðarþjónustu.Bæjarráð Hornafjarðar fundaði um málið á 938. fundi sínum þann 24. mars sl. þar atvinnurekendur eru hvattir til þess að nýta sér þau úrræði sem stjórnvöld bjóða upp á til þess að halda ráðningarsambandi við starfsmenn sína á þessum erfiðu tímum. Einnig var atvinnu- og ferðamálafulltrúa falið að greina áhrif COVID-19 atvinnulífið í sveitarfélaginu.
Miklar hræringar eru atvinnumarkaði og er unnið að því að ná utan um stöðuna í sveitarfélaginu. Beðið er nýrra gagna frá Vinnumálastofnun til að fá nánari upplýsingar um stöðuna í Sveitarfélaginu Hornafirði. Atvinnu- og menningarmálanefnd hvetur atvinnurekendur og íbúa til að nýta sér þau úrræði sem stjórnvöld og Sveitarfélagið Hornafjörður bjóða upp á.
Atvinnu- og menningarmálanefnd felur starfsmanni að kanna hvort orkufyrirtæki muni bjóða þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem á þurfa að halda upp á úrræði til að mæta þrengingum í tengslum við faraldurinn.
Atvinnu- og menningarmálanefnd felur starfsmanni að kanna hvort orkufyrirtæki muni bjóða þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem á þurfa að halda upp á úrræði til að mæta þrengingum í tengslum við faraldurinn.
3.
Þjónusta veitingastaða í Sveitarfélaginu Hornafirði í Covid 19 faraldri 2020
Sveitarfélagið tók saman upplýsingar um þá veitingastaði sem eru starfandi við núverandi aðstæður og bjóða upp á að matur sé tekinn heim eða heimsendur. Upplýsingarnar eru birtar á heimasíðu sveitarfélagsins og uppfærðar eftir þörfum.
Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar þátttöku þeirra veitingastaða sem bjóða upp á þessa þjónustu og hvetur íbúa til að nýta sér hana. Veitingastöðum er bent á að hafa samband við atvinnu- og ferðamálafulltrúa í netfangið ardis@hornafjordur.is ef þeir vilja koma þjónustu sinni á framfæri.
4.
Leiðir gesta á Höfn - stefnumótun
Unnið er að heildstæðri stefnumótun um "Leiðir gesta á Höfn".
Lagt fram til kynningar og starfsmanni falið að vinna áfram að verkefninu.
5.
Humarhátíð 2020
Nefndin sem hefur haft veg og vanda að Humarhátíð síðastliðin tvö ár hefur áhuga á að standa einnig að henni nú í ár, og þá með skilmálum um betri aðkomu starfsmanna sveitarfélagsins, að sveitarfélagið kaupi eða leigi veislutjald og að sveitarfélagið sjái um bókhald hátíðarinnar. Atvinnu- og ferðamálafulltrúa var falið að vera tengiliður stjórnsýslunnar og annarra stofnana sveitarfélagsins við humarhátíðarnefnd. Lögð eru fram drög að nýjum samningi.
Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar því að Humarhátíðarnefnd síðastliðinna ára stefni á að halda einnig utan um hátíðina í ár. Hún bæði hlakkar til að upplifa veglega Humarhátíð í sumar og hvetur íbúa til að taka virkan þátt.
6.
Stofnun rekstrarfélags um þjónustusláturhús, afurðavinnslu og heildsölu
Lagt fram til kynningar
7.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir 2020
Fundargerðir stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs og Svæðisráðs Suðursvæðis lagðar fram til kynningar.
Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar því að ráðist verði í löngu tímabærar framkvæmdir bæði í Skaftafelli og við Jökulsárlón með fjármagni úr innviðasjóði.
8.
Skaftfellingur
Útgáfunefndin Skaftfellings er fáliðuð og hugmyndir eru uppi um að óska eftir fjármagni til greiðslu nefndralauna til ritnefndar.
Atvinnu- og menningarmálnefnd leggur til við bæjarráð að greitt verði fyrir störf ritnefndar og leggur áherslu á hve mikilvægt heimildarrit Skaftfellingur er fyrir íbúa og komandi kynslóðir.
9.
Mikligarður
Atvinnu- og menningarmálanefnd ræddi þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru i sumar.
10.
Álaleira hönnun
Framkvæmdir í Álaleiru hafa verið stöðvarðar en í það liggur í augum upp að nauðsynlegt er að hefja hönnun og framkvæmdir að nýju.
Atvinnu- og menningarmálanefnd hvetur bæjarráð til að setja fjármagn í að ljúka hönnunarvinnu í Álaleiru við undirbúning næstu fjárhagsáætlunar.
11.
Sjóminjasýningar
Sjóminjasýning Sveitarfélagsins verður flutt í Álaleiru með vormánuðum. Stefnt er að því að hefja fljótlega frágang á aðstöðu í Skreiðarskemmu og vinnu við að setja upp tímabundna aðstöðu fyrir munina í geymslum Álaleiru. Sveitarfélagið hefur þá enn og aftur misst fjöður úr hatti sínum og nausynlegt er að bæta það sem fyrst.
Staðan á sýningum sveitarfélagsins rædd og unnið áfram að málinu.
12.
Bókasafn og covid-19
Atvinnu- og menningarmálanefnd hvetur fólk til að nýta sér rafbækur á meðan að bókasafnið er lokað. Hægt er að fá aðstoð simleiðis hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar til að virkja aðgang að rafbókasöfnum.