Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

14. fundur
27. apríl 2020 kl. 16:00 - 18:30
í Nýheimum
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2020
Málsnúmer 202002099
Alls eru nú 99 aðilar skráðir atvinnulausir í Sveitarfélaginu Hornafirði en auk þeirra eru á 410 manns skráðir í hlutabótaleiðina. Samanlagt atvinnuleysi mælist 25,8% í samanburði við 1,4% á sama tíma í fyrra. Nokkuð jöfn kynjaskipting er á meðal aðila í minnkuðu starfshlutfalli og eru flestir þeirra, eða 73% á aldrinum 18-39 ára. Um 90% þeirra starfa innan ferðaþjónustunnar og tengdum greinum. Ljóst er að ferðaþjónustan mun eiga undir högg að sækja lengur en vonir stóðu til um í upphafi Covid-19 faraldursins, en markmiðið með hlutabótaleiðinni er að viðhalda ráðningarsambandi á milli fyrirtækja og starfsmanna tímabundið þar til atvinnulífið tekur við sér á ný.
Farið var yfir stöðu á atvinnumarkaði í sveitarfélaginu, en hún er grafalvarleg.
Sveitarfélagið vinnur að vinnumarkaðsaðgerðum í samstarfi við Vinnumálastofnun til þess að mæta auknu atvinnuleysi á svæðinu.
2.
Gönguleiðir á Suðurlandi
Málsnúmer 202004043
Samtök sveitarfélaga á Suðurlandi og Markaðsstofa Suðurlands vinna að því birta gönguleiðir á svæðinu og kortavef SASS. Verið er að móta útfærslur í samstarfi við WAPP-walking app.
Sveitarfélagið Hornafjörður er nú þegar með nokkrar gönguleiðir inni á WAPP-walking app, bæði á Höfn og í dreifbýlinu. Eru íbúar og gestir hvattir til að nýta sér leiðsögnina með gönguleiðunum, en margar hverjar eru nú í boði sveitarfélagsins.

Atvinnu- og menningarmálanefnd bendir á mikilvægi þess að marka gönguleiðum svæði inni á aðalskipulagi. Má þar nefna að móta heildarsýn fyrir Jöklaleiðina, sem er hryggjarstykkið í gönguleiðum á svæðinu, og vinna margar mismunandi leiðir/vörur útfrá henni.
3.
Hjólaleiðir á Suðurlandi
Málsnúmer 202003103
Sveitarfélaginu Hornafirði barst erindi frá SASS vegna birtingar á hjólaleiðum á svæðinu á kortavef Suðurlands;www.sass.is/kortavefur. Einnig óskar SASS eftir að öll sveitarfélög á Suðurlandi marki megin hjólaleiðir inn á aðalskipulag sveitarfélagsins m.t.t. umferðaröryggis allra vegfarenda.
Atvinnu- og menningarmálanefnd þakkar fyrir erindið og fagnar því að hjólaleiðir í sveitarfélaginu séu birtar á kortasjá SASS. Starfsmanni er falið að fullvinna svör við erindinu í samvinnu við skipulagsstjóra. Einnig hvetur atvinnu- og menningarmálanefnd umhverfis- og skipulagsnefnd til að marka bæði göngu- og hjólaleiðum skýra stefnu við fyrsta tækifæri og þá með lýðheilsu og umferðaröryggi í huga. Mikilvægt er að færa alla hjólaumferð af þjóðveginum t.d. með því að gera meginhjólaleið meðfram þjóðvegi eða vinna nánari útfærslu í samvinnu við Vegagerð ríkisins.

4.
Aðgerðir til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf
Málsnúmer 202003064
Sveitarfélagið Hornafjörður vinnur að fjölþættum aðgerðum til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf. Felast þær m.a. í frestun og/eða niðurfellingu gjalda, fjölgun tímabundinna starfa, uppbyggingar innviða og sóknar í markaðsmálum fyrir íslenska ferðamenn.
Minnisblöð með tillögum að sumarstörfum í sveitarfélaginu lögð fram til kynningar.

Atvinnu- og menningarmálanefnd óskaði eftir upplýsingum frá orkufyrirtækjum á markaði á Íslandi varðandi sértæk úrræði fyrir fyrirtæki. Misjafnt er eftir orkufyrirtækjum hvaða úrræði eru í boði, en öll bjóða þau sínum viðskiptavinum að hafa samband ef þau óska eftir sérúrræðum. Hvetur nefndin fyrirtæki á svæðinu til þess að hafa samband við sitt orkufyrirtæki til að mæta áskorunum í rekstri ef þörf þykir.
5.
Matís og matarsmiðjan
Málsnúmer 201709565
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur starfrækt matarsmiðju í vesturenda sláturhússins í rúmt ár.
Málefni matarsmiðjunnar lögð fram kynningar og umræðu.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
6.
Markaðsstofa Suðurlands - Faghópur í ferðamálum 2020
Málsnúmer 202002057
Sveitarfélagið Hornafjörður vinnur að markaðs- og kynningarmálum í samstarfi við Markaðsstofu Suðurlands þar sem lögð er áhersla á íslenska ferðamenn. Verkefnið er liður í því að bregðast við breyttu umhverfi í ferðamálum í kjölfar Covid-19, en nú er ljóst að erlendir ferðamenn munu ekki koma í miklum mæli til Íslands í sumar og haust.Lagt fram minnisblað með verkefnum sem lagt er upp með að verða unnin heima í héraði.
Fjarfundur um hvatningarátak ríkisins fyrir ferðaþjónustuna var haldinn í dag, mánudaginn 27. apríl kl. 11-12. Fundinum var streymt á facebook síðu Ferðamálastofu og var upptaka af honum aðgengileg strax að loknum fundi. Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér hann, enda er markaðsefninu ætlað að gagnast mismunandi hagsmunaaðilum atvinnugreinarinnar.

Markaðsstofa Suðurlands og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga boða til kynningarfundar um áætlaðar aðgerðir fyrir Suðurland í kjölfar aðgerða ríkisins. Haldnir verða þrír fundir á Suðurlandi og er áætlað að fundurinn fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð/Ríki Vatnajökuls verði í boði miðvikudaginn 29. apríl kl. 14. Fundurinn er sérstaklega ætlaður sveitarfélögum og ferðaþjónustuaðilum og verður þátttakendum boðið upp á að taka virkan þátt í fundinum. Mikilvægt er að góð mæting náist innan svæðis þar sem markaðsátakið krefst samhæfingar og samvinnu ólíkra hagsmunaaðila sem hyggjast starfa innan ferðaþjónustunnar í sumar. Að sama skapi eru ferðaþjónustuaðilar hvattir til að uppfæra markaðsefni sitt á íslensku til að bregðast við breyttu landslagi í ferðamálum í sumar.

Ferðabæklingur fyrir austasta svæði Suðurlands rýndur og lagðar fram tillögur til úrbóta. Það eru til á milli 17-18 þús. eintök fyrir okkar svæði, Ríki Vatnajökuls. Ákveðið hefur verið að undirbúa endurútgáfu en bíða með frekari prentun þar til síðar.
7.
Humarhátíð 2020
Málsnúmer 202002006
Í ljósi aðstæðna vegna Covid-19 var ákveðið, í samráði við Humarhátíðarnefnd, að halda ekki Humarhátíð með hefðbundnum hætti nú í sumar. Bókaði bæjarráð þar um á 942. fundi sínum þann 21. apríl sl.
Sveitarfélagið er að kanna möguleika til að halda smærri viðburði fyrir íbúa og gesti í sumar.
Unnið verður með nefndinni að undirbúningi fyrir veglega Humarhátíð 2021.
8.
Ársskýrsla MMH 2019
Málsnúmer 202004060
Ársskýrsla Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar 2019 kynnt.
Lagt fram til kynningar.
9.
Forvarsla verka Listasafns
Málsnúmer 202004061
Sótt var um styrk í Safnasjóð vegna endurbóta á listaverkageymslum og ástandsskoðun á hluta safneignar. Veglegur styrkur fékkst sem nýttur verður í ár í fyrsta hluta verkefnisins.
Forvarsla og geymsla listaverka er mikilvægur þáttur í verndun verka Svavarssafns og fagnar nefndin styrki Safnaráðs til verksins.
10.
Bókasafn og covid-19
Málsnúmer 202003091
Stefnt er að því að opna bókasafnið á ný 4. maí.
Atvinnu og menningarmálanefnd fagnar opnun safnsins.
11.
Eyðibýli
Málsnúmer 201904050
Hafist hefur verið handa við skráningu eyðibýla í sýslunni og hefst skráningin í Suðursveit.
Hafin er vinna við skrásetningu eyðibýla sveitarfélgasins einnig verða þá skráðar mannlífslýsingar og sögur sem gjarnan fylgja verkefnum sem þessum. Töluverður þekkingargrunnur er til varðandi minjar í sveitarfélaginu sem nýttur verður í verkenið.
12.
Vélar MMH í Hoffelli
Málsnúmer 201905077
Vélar hafa verið skráðar og samband haft við hluteigandi aðila og er málið á lokastigum og verður lokaskýrsla kynnt á næsta fundi nefndarinnar.
13.
Styrktarsjóður EBÍ 2020
Málsnúmer 202003075
Unnið er að umsókn í sjóð EBÍ vegna samvinnuverkefnis Menningarmiðstöðvarinnar og skipulagssviðs.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.