Atvinnu- og menningarmálanefnd
16. fundur
5. júní 2020
kl.
12:00
-
14:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason
formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir
varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Jöklaleiðin verkefni 2020
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur ásamt samstarfsaðilum unnið að uppbyggingu Jöklaleiðar, gönguleiðar við suðurbrún Vatnajökuls, nú þegar eru komnar gönguleiðir bæði á Mýrum og í Suðursveit. Hluti leiðarinnar á Mýrunum skemmdist mikið í hamfaraflóðum í september 2017 og hefur sveitarfélaginu nú borist bætur úr ríkissjóði vegna þessa. Einnig hlotnaðist sveitarfélaginu styrkur úr aukaúthlutun Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða í vor til að hanna og undirbúa framkvæmd vegna göngustígs á milli Skaftafells og Svínafells í Öræfum.
Hlynur Axelsson arkítekt og Árdís Erna atvinnu- og ferðamálafulltrúi kynntu tillögur að áframhaldandi uppbyggingu Jöklaleiðarinnar. Lögð er áhersla á heildstæða hönnunarvinnu sem kemur til með að nýtast verkefninu til framtíðar. Auk þess leggur nefndin áherslu á að gönguleiðinni verði gerð ítarleg skil á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
2.
Markaðs- og kynningarmál í Sveitarfélaginu Hornafirði 2020
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur ákveðið að semja við auglýsingastofuna Sahara vegna heildstæðs markaðsátaks fyrir sumarið 2020. Atvinnu- og ferðamálafulltrúi vinnur að málinu ásamt aðilum frá Ríki Vatnajökuls og Ferðamálafélagi Austur-Skaftafellssýslu. Að auki fá Hornfirðingar Evu Laufey Hermannsdóttur ásamt Stöð 2 í heimsókn dagana 14.-15. júní, en hún ætlar að ferðast um landið með matarvagn og heimsækja bæjarfélög til að kynna sér nýsköpun í matargerð á hverjum stað. Eva útbýr samlokur með hráefni sem kemur frá svæðinu og skapar litla matarhátíð fyrir íbúa og gesti. Verkefninu verður gerð góð skil í fjölmiðlum og þættirnir "Matarvagn Evu" fer í loftið á Stöð 2 í september. Matvælaframleiðendum og veitingastöðum er velkomið og hvattir til að taka þátt í matarhátíðarstemningunni. Nánari upplýsingar og skráning á viðburðinn er hjá atvinnu- og ferðamálafulltrúa í netfanginu ardis@hornafjordur.is eða Þorkeli Óskari verkefnastjóra í netfanginu thorkell@hornafjordur.is.
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi kynnir stöðu vegna markaðsmála í sveitarfélaginu fyrir sumarið. Aðilar frá auglýsingastofunni Sahara heimsóttu Sveitarfélagið Hornafjörð fimmtudaginn 4. júní, skoðuðu svæðið og lögðu drög að markaðsherferð fyrir sumarið. Stefnt er að því að fyrsti hluti herferðarinnar fari í loftið í næstu viku.
Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar komu Evu Laufeyjar Kjaran og fylgiliðs. Hvetur hún íbúa og fyrirtæki til að taka virkan þátt í matarhátíðinni.
Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar komu Evu Laufeyjar Kjaran og fylgiliðs. Hvetur hún íbúa og fyrirtæki til að taka virkan þátt í matarhátíðinni.
3.
Aðgerðir til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf
Þrír starfsmenn voru ráðnir á Menningarmiðstöð Hornafjarðar og munu þeir vinna að málefnum stofnunarinnar í sumar. Einn þeirra starfar með atvinnu og ferðamálafulltrúa, annar á listasafnið og sá þriðji í menningartengd verkefni.
4.
Mikligarður
Framkvæmdir í Miklagarði hefjast á haustmánuðum nauðsynlegt er að rýma húsnæðið á meðan á framkvæmdum stendur. Nefndin þarf að vinna að hugmyndum að skipulagingu Miklagarðs. Ákveða þarf stærð bila, leiguleiða og úthlutunar. Ákveða þarf hvaða bil MMH mun hafa til umráða til sýningahalds. Í sumar verður sett upp ljósmyndasýning tengt sjósókn frá Hornafirði.