Atvinnu- og menningarmálanefnd
17. fundur
27. ágúst 2020
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason
formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir
varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2020
Alls voru 102 einstaklingar skráðir atvinnulausir í Sveitarfélaginu Hornafirði í lok júlí, sem er aukning um 89 einstaklinga miðað við sama tíma í fyrra. Lítil breyting er á tölum frá mánuðinum áður, en þá voru 105 einstaklingar skráðir atvinnulausir.
Vonir standa til að með þeim aðgerðum stjórnvalda að lengja í hlutabótaleiðinni um tvo mánuði og framlengja í greiddum uppsagnarfresti úr þremur mánuðum í sex mánuði þá komi ekki til langvarandi atvinnuleysis á svæðinu. Það er þó ljóst að mikil óvissa ríkir á atvinnumarkaði innan Sveitarfélagsins Hornafjarðar, sérstaklega í ferðaþjónustu sem er ein stærsta atvinnugreinin í sveitarfélaginu. Hefur atvinnu- og menningarmálanefnd áhyggjur af stöðu mála og mun fylgjast grannt með þróun atvinnumála í sveitarfélaginu.
2.
Markaðs- og kynningarmál í Sveitarfélaginu Hornafirði 2020
Árdís Erna Halldórsdóttir atvinnu- og ferðmálafulltrúi og Þorkell Óskar Vignisson, sumarstarfsmaður í atvinnu- og ferðamálum, kynna stöðu markaðsherferðar Sveitarfélagsins Hornafjarðar í ferðamálum sem blásið var til í sumar í kjölfar Covid faraldurs.
Í markaðsherferðinni sem bar yfirskriftina "Ríki Vatnajökuls býður heim í sumar" var lögð áhersla á að í Sveitarfélaginu Hornafirði væru fjölmörg fjölskyldurekin fyrirtæki sem bjóða upp á persónulega og fjölskylduvæna þjónustu. Markaðsherferðin var að mestu stafræn, en einnig voru keyrðar auglýsingar og greinar á prentmiðlum og útvarpi. Markvisst var unnið með að styrkja vörumerkið "Visit Vatnajökull", bæta við myndabanka svæðisins og skapa vitund um svæðið í gegnum mismunandi blogg skrif. Enn er unnið að því að styrkja myndabankann, og þá með áherslu á mannlífsmyndir.
Einnig var unnið að því að gera áfangastaðinn meira aðlaðandi með einföldum leiðum eins og að útbúa stensla til að mála eftir með mótífum héðan af svæðinu og fleira til að skapa skemmtilega stemmingu. Það liggja ótal tækifæri í slíkum verkefnum og tilvalið að nota veturinn til að kortleggja þau til að framkvæma næsta vor.
Herferðin náði mikilli dreifingu og stefnan var að herja á erlendan markað nú í ágúst. Vegna aukningar í covid smitum eru ekki aðstæður til þess sem stendur, en hinsvegar er markaðsefnið til með enskum texta og því hægt að koma því í dreifingu á erlendan markað með litlum fyrirvara.
Unnið hefur verið með tvo Instagram reikninga, annar fyrir ferðamenn í gegnum Visit Vatnajökull og hinn fyrir íbúa og aðra áhugasama í gegnum Sveitarfélagið Hornafjörð. Ferðaþjónustuaðilum býðst að taka instagram reikning Visit Vatnajökull yfir í heilan dag og sýna frá sinni starfsemi, og að sama skapi gefst íbúum kostur að gefa innsýn í daginn sinn í gegnum instagram reikning sveitarfélagsins. Eru áhugasamir hvattir til að hafa samband við atvinnu- og ferðamálafulltrúa í netfangið ardis@hornafjordur.is ef áhugi er á að vinna með annan hvorn reikninginn.
Ef aðstæður leyfa, hefur sveitarfélagið ákveðið að halda ráðstefnu í ferðamálum nú í haust fyrir hagaðila á svæðinu þar sem áhersla verður lögð á að horfa til framtíðar, efla samstarf og samvinnu, sem og huga að vöruþróun og nýsköpun innan svæðisins. Ráðstefnan verður auglýst nánar þegar nær dregur og línur teknar að skýrast.

3.
Vegvísar innan Hafnar
Að beiðni bæjarstjóra lagði atvinnu- og ferðamálafulltrúi fram fyrstu tillögur að vegvísum innan Hafnar á 10. fundi atvinnu- og menningarmálanefndar í janúar síðastliðnum. Hugmyndin hefur nú verið nánar útfærð og er lögð fyrir nefndina til umfjöllunar.
Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur til að unnið verði áfram með þá útfærslu sem starfsmenn kynntu og að gert verði ráð fyrir kostnaði vegna þessa í komandi fjárhagsáætlunargerð. Umræða um áherslur og fjölda skilta, auk þess sem lögð var rík áhersla á að vinna með stílhreina hönnun í vegvísunum sem og öðrum skiltum á vegum sveitarfélagsins.
4.
Matarsmiðja
Sláturhúsið mun auglýsa vesturenda húsnæðisins til sölu á næstunni og því mun leigusamningurinn renna út um áramótin næstu.
Starfsmanni falið að leita nýrra leiða til að viðhalda starfseminni.
5.
Mikligarður
Taka þarf ákvörðun um hvaða stefnu á að taka í málinu. Hversu mörgum bilum á að halda eftir fyrir sveitarfélagið.
Nefndin leggur til að helmingur hússins verðir tekinn undir sýningarhald á vegum safna sveitarfélagsins. Einnig leggur nefndin til að fenginn verði arkitekt/hönnuður til að hanna rýmin. Mikilvægt er að fjármagn verði tryggt í verkið til næstu ára. Vinna við skipti á þaki hefst fljótlega og verklok áætluð fyrir áramót.
6.
Skaftfellingur
Málinu er vísað til umfjöllunar í atvinnu- og menningarmálanefnd. Lagt til að Menningarmiðstöð tilnefni í ritnefnd og að áfram verði hún skipuð þremur aðilum ásamt ritstjóra sem jafnframt er starfsmaður nefndarinnar. Tilnefnd ritnefnd verði staðfest í atvinnu- og menningarmálanefnd.
Nefndin fagnar því að sett verði upp ritnefnd og hefur engar athugasemdir um fyrirhugaðar breytingar.
7.
Söfnunarstefna Menningarmiðstöðvar 2018-22
Óskir hafa borist um að fá afhenta aftur muni sem gefnir voru safninu. Fara þarf yfir afstöðu safnsins gagnvart þeim óskum og endurskoða söfnunarstefnuna.
Lagt er til að söfnunarstefnan verði uppfærð og endurskoðun. Starfsmann falið að vinna áfram að málinu.
8.
Helsingjar í Austur - Skaftafellssýslu
Svar fékkst frá Umhverfisstofu vegna fyrri ályktunar Atvinnu- og menningarmálanefndar sem send var á stofnunina þar sem kom fram "Það er í höndum ráðherra að aflétta friðun á tegundum [að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar] Lagt er til að við leggjum tillögur um breytt veiðitímabil á helsingja beint fyrir ráðherra". Starfsmaður nefndar fylgir fyrirmælum stofnunarinnar og mun senda ályktun nefndarinnar sem tekin var á 15 fundi Atvinnu- og menningarmálanefndar haldinn 27.05.2020 undir lið 8. til Umhverfis og auðlindaráðuneytisins.
9.
Sýningar 2021
Nefndin samþykkir framlagða áætlun og fagnar grósku miklu starfi safnsins.
10.
Minnisvarðar Sveitarfélagsins
Skrásetja þarf minnisvarða sveitarfélagisns og meta.
Leggur nefndin til að unnið verði að skráningu minnisvarða sveitarfélagsins og ástand þeirra metið með verndun og viðhald þeirra í huga.
11.
Örnefnaskilti
Nefndin fagnar hugmyndinni og starfsmanni falið að vinna áfram að verkefninu.
12.
Samningur milli SASS, MMH og Seitarfélagsins 2020-24
Nefndin fagnar samningnum og starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
13.
Gæðastimpill ferðaþjónustufyrirtækja í sveitarfélaginu
Vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.