Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

19. fundur
22. október 2020 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sigurður Einar Sigurðsson 1. varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Ferðamál
Málsnúmer 202010089
Haukur Ingi Einarsson og Laufey Guðmundsdóttir kynntu fyrir nefndarmönnum helstu niðurstöður og samantekt á stöðu ferðamála. Könnun sem FASK lét framkvæma í samvinnu við Þekkingarsetrið Nýheima og Sveitarfélagið Hornafjörð.
2.
Samráðsteymi sveitarfélaga vegna efnahagsáhrifa í kjölfar Covid-19.
Málsnúmer 202006079
Unnið er að útfærslu vegna fjármagns sem Sveitarfélagið Hornafjörður fékk í styrk úr ríkissjóði vegna alvarlegrar stöðu á atvinnumarkaði á svæðinu í kjölfar covid.
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi greindi frá þeim aðgerðum sem unnið er að. Sveitarfélagið er með markmið um að fjölga hér störfum sem unnt er að vinna án staðsetningar og ætlar m.a. að standsetja skrifstofuaðstöðu fyrir slík störf. Aðstaðan er einnig opin fyrir frumkvöðla og aðila í nýsköpun sem hafa hug á að þróa ný störf sem bæta við atvinnuflóruna í sveitarfélaginu.

Ákveðið hefur verið að nýta hluta af fjármagninu sem styrkfé í atvinnuskapandi verkefni. Um einskiptis aðgerð er að ræða og er unnið að útfærslu sjóðsins. Stefnt er að styrkúthlutuninni samhliða úthlutun úr Atvinnu- og rannsóknasjóði sveitarfélagsins.
3.
Úthlutunarreglur atvinnu og rannsóknasjóðs
Málsnúmer 201911079
Reglurnar Atvinnu- og rannsóknasjóðs lagðar fram til kynningar.
Úthlutun Atvinnu- og rannsóknasjóðs fyrir árið 2021 verður tekin fyrir á fundi Atvinnu- og menningarmálanefndar í nóvember. Í framhaldi af því verður næsta úthlutun úr sjóðnum auglýst til umsóknar. Samkvæmt reglum sjóðsins skal niðurstaða um styrkverkefni liggja fyrir í síðasta lagi 31. janúar hvers árs.
4.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2020
Málsnúmer 202002099
Ljóst er að staðan á atvinnumarkaði er mjög alvarleg í Sveitarfélaginu Hornafirði, en samkvæmt upplýsingum frá VMST eru alls 278 aðilar í sveitarfélaginu á skrá hjá þeim í dag. Þar af eru 130 manns á almennum bótum og 148 aðilar á hlutabótaleið. Þeir sem eru skráðir eru nánast til jafns Íslendingar og útlendingar. Stærsti hópurinn er með grunnskólapróf, en þar á eftir koma aðilar með háskólamenntun. Þeir starfsmenn sem eru að vinna uppsagnarfrest samkvæmt úrræði ríkisstjórnarinnar eru ekki inni í þessum tölum.
Ræddar leiðir til að mæta þörfum þeirra aðila sem eru skráðir í atvinnuleit í sveitarfélaginu. Árdís Erna Halldórsdóttir atvinnu- og ferðamálafulltrúi greindi frá fundi með aðilum Vinnumálastofnunar og mun hún ásamt Hildi Ýr Ómarsdóttur og Eik Aradóttur, verkefnastjórum í málefnum erlendra íbúa fylgja málinu eftir.
6.
Merki Menningarmiðstöðvar LOGO
Málsnúmer 201803043
Tillögur að breyttu Merki Menningarmiðstöðvarinnar og stofnanna innan miðstöðvarinnar. Þetta er partur af merkingu "branding" á stofnunninni, meðal annars vegna breytinga í skipuriti.
Starfsmanni nefndar falið að vinna áfram að málinu.
7.
Söfnunarstefna Menningarmiðstöðvar 2018-22
Málsnúmer 201809036
Ný söfnunarstefna lögð fram til samþykktar.
Söfnunarstefna Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar yfirfarin og samþykkt.
8.
Menningarstefna Hornafjarðar
Málsnúmer 201504037
Menningarstefna Sveitarfélgasins var samþykkt 2016 og gildir hún í 10 ár. Menningarstefna yfirfarin af nefnd.
Til kynningar.
9.
Sýningarstefna Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar
Málsnúmer 202010084
Drög að sýningarstefnu Menningarmiðstöðvarinnar lög fram til kynningar.
Starfsmanni nefndar falið að vinna áfram að málinu.
10.
Starfsstefna Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar
Málsnúmer 202010085
Hugmyndir af starfsstefnu Menningarmiðstöðvarinnar ræddar og drög lögð fram.
Til kynningar.
11.
Álaleira hönnun
Málsnúmer 201905085
Farið var yfir hönnunarhugmyndir af Álaleiru og verkefnum í Álaleiru forgangsraðað.
Tillögur að forgargsatriðum unnin.
12.
Mikligarður
Málsnúmer 201809035
Þörf er á að vinna heildar fratíðarsýn Miklagarðs og framkvæmdaráætlun vegna úthlutunar bila í húsinu. Atvinnu- og menningarmálanefnd vinnur áfram að málinu.
13.
Styrkir atvinnu og menningarmálanefndar
Málsnúmer 201910040
Reglur yfirfarnar og rætt hvaða áherslur verða fyrir úthlutun fyrir árið 2021.