Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

21. fundur
2. desember 2020 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Samningur við Ríki Vatnajökuls - ósk um endurnýjun
Málsnúmer 201910133
Sveitarfélagið Hornafjörður og Ríki Vatnajökuls undirrituðu samstarfssamning til tveggja ára um markaðssetningu á svæðinu.
Lagt fram til kynningar.
2.
Endurnýjun samnings við Markaðsstofu Suðurlands
Málsnúmer 202011022
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur samþykkt að endurnýja samning við Markaðsstofu Suðurlands til næstu þriggja ára um samstarf að markaðssetningu svæðisins sem áfangastað ferðamanna. Markaðsstofan vinnur að markaðssetningu Suðurlands sem áfangastaðar og einstakra svæða innan þess,byggt á þrískiptingu svæðisins og þar með sveitarfélaganna. Á meðal hlutverka Markaðsstofunnar er að samræma ímynd og ásýnd áfangastaðarins og koma henni á framfæri s.s. á vef, samfélagsmiðlum, á ferðasýningum, FAM ferðum og við blaðamenn/áhrifavalda. Atvinnu- og ferðamálafulltrúi er tengiliður sveitarfélagsins við Markaðsstofu Suðurlands og situr í faghóp ferðamála á Suðurlandi.
Atvinnu- og menningarmálanefnd vill lýsa yfir ánægju með samstarf Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Markaðsstofu Suðurlands undanfarin ár og fagnar endurnýjun samstarfssamnings.
3.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir 2020
Málsnúmer 202003090
Fundargerðir stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs og svæðisráðs Suðursvæðis lagðar fram til kynningar og umræðu.
Steinunn Hödd Harðardóttir þjóðgarðsvörður Suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs kom á fundinn og kynnti fyrirhugaðan rekstur á svæðinu á næsta ári. Einnig kynnti Steinunn Hödd ferlið varðandi aðgangsstýringu fyrir jöklagöngur og íshellaferðir á Vatnajökli. Hagaðilar hafa lengi kallað eftir aðgangsstýringu og hófst viðamikið samráðsferli á þessu ári. Ákveðið var að bjóða upp á 650 sæti í íshellaferðir á Breiðamerkurjökli á dag, en umsóknir fyrirtækja hljóðaði upp á rúm 1600 sæti. Það var því ljóst að fjöldi leyfðra gesta yrði mun lægri en óskað var eftir, og kemur skerðingin mest niður á stærri fyrirtækjum. Um tilraunaverkefni er að ræða og verður veturinn nú notaður til að sníða af vankanta, m.a. með virku samtali á milli ferðaþjónustuaðila og þjóðgarðsins.
4.
Málefni Ferðamálafélags Austur-Skaftafellssýslu 2020
Málsnúmer 202010089
Niðurstöður úr spurningakönnun og vinnustofu lagðar fram til kynningar.
Bókun frá 279. fundi bæjarstjórnar Hornafjarðar lögð fram til kynningar. Atvinnu- og menningarmálanefnd tekur undir bókun bæjarstjórnar og þakkar framkvæmdaaðilum fyrir vinnuna.
5.
Könnun um ferðavenjur á Höfn
Málsnúmer 202010094
Bæjarráð vísaði skýrslunni til atvinnu- og menningarmálanefndar
Í könnuninni kemur fram að ánægja erlendra gesta á Höfn er mikil, en hinsvegar skorar bærinn lágt þegar kemur að meðmælaskori. Sker þar helst úr vöntun á afþreyingu í bænum, auk þess sem óánægja var með tjaldsvæðið á Höfn. Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur áherslu á könnunin verði rýnd nánar og unnið að úrbótum.
6.
Styrkur til rannsóknar - Vegna áhrifa Covid 19
Málsnúmer 202006031
Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Höfn í Hornafirði stóð í sumar á bakvið rannsókn sem ber yfirskriftina "Áhrif COVID-19 á ferðaþjónustu, samfélag og framtíðarsýn í Sveitarfélaginu Hornafirði". Rannsóknin var kynnt fyrir Hornfirðingum og öðrum áhugasömum í gegnum Teams fimmtudaginn 26. nóvember.
Atvinnu- og menningarmálanefnd þakkar Rannsóknarsetrinu fyrir fróðlega samantekt. Ljóst er að Covid-19 hefur haft alvarlegar afleiðingar á atvinnulíf og samfélag í Sveitarfélaginu Hornafirði. Samkvæmt rannsókninni sem fyrir liggur skortir erlenda starfsmenn öflugra bakland til að takast á við afleiðingar faraldursins og er það áhyggjuefni. Sveitarfélagið hefur brugðist við því með ráðningu á verkefnastjóra vegna málefna erlendra íbúa í 50% starf, þar sem meginþunginn verður lagður á valdeflingu erlendra atvinnuleitenda á svæðinu.

Hægt er að horfa málþingið á eftirfarandi hlekk: https://www.youtube.com/watch?v=c11_gWgbzxU&t=16s
7.
Gestamerkingar á Íslandi - kynning nóv. 2020
Málsnúmer 202011099
Umhverfis- og auðlindaráðherra skipaði árið 2018 samstarfshóp um eflingu fagþekkingar við uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum. Meðal annars hefur verið unnið að hönnun merkingakerfis fyrir ferðamannastaði og verndarsvæði. Merkingakerfið er hugsað sem uppfærsla á merkingahandbók sem hefur verið í notkun síðustu ár og er lagt upp með að hanna aðgengilegt kerfi sem nýtist m.a. sveitarfélögum við merkingar.
Lagt fram til kynningar.
8.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2020
Málsnúmer 202002099
Fjöldi íbúa í atvinnuleit í Sveitarfélaginu Hornafirði fjölgaði úr 150 í 174 aðila frá september-október 2020, og jókst þar með úr 10,2% í 11,8%. Þar af eru 79 atvinnuleitendur íslenskir ríkisborgarar, 42 pólskir ríkisborgarar og 53 aðrir erlendir ríkisborgarar. Hlutfall erlendra ríkisborgarar er því um 60% af atvinnuleitendum á svæðinu. Samkvæmt spám Vinnumálastofnunar Íslands á fjöldi atvinnuleitenda í Sveitarfélaginu Hornafirði eftir að hækka enn frekar á næstu mánuðum.
Atvinnu- og menningarmálanefnd ítrekar mikilvægi þess að fá sem fyrst upplýsingar varðandi þarfagreiningu atvinnuleitenda sem Vinnumálastofnun Íslands vinnur að.
9.
Hagtölur um atvinnulíf á Suðurlandi með sérstaka áherslu á ferðaþjónustu
Málsnúmer 202011063
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga lét vinna skýrslu varðandi ferðaþjónustu á Suðurlandi. Þar kemur meðal annars fram að árið 2019 hafi 3137 einstaklingar starfað (aðalstarf) í ferðaþjónustu, og þar af voru 565 þeirra starfa í Sveitarfélaginu Hornafirði. Í samanburði störfuðu 117 manns að aðalstarfi í ferðaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði árið 2008.
Skýrsla lögð fram til kynningar.
10.
Samráðsteymi sveitarfélaga vegna efnahagsáhrifa í kjölfar Covid-19.
Málsnúmer 202006079
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi kynnti viðspyrnuverkefni vegna efnahagsáhrifa Covid-19 faraldursins á Sveitarfélagið Hornafjörð. Unnið er að markaðssetningu á sveitarfélaginu sem búsetukosti í tengslum við skrifstofu sem sveitarfélagið mun bjóða upp á fyrir störf án staðsetningar og frumkvöðla. Einnig voru drög að úthlutunarreglum vegna sértæks styrks vegna covid lögð fram til kynningar og umræðu.
Starfsmanni falið að vinna áfram að framlögðum verkefnum.
11.
Afgreiðsla atvinnu- og rannsóknasjóðs 2021
Málsnúmer 202011086
Tillögur að dagssetningum vegna afgreiðslu atvinnu- og rannsóknasjóðs 2021 lagðar fram. Reglur sjóðsins og matslistar kynntar fyrir atvinnu- og menningarmálanefnd.
Atvinnu- og menningarmálanefnd samþykkir tillögur að dagssetningum. Næsta úthlutun sjóðsins er farin í auglýsingu og aðilar hvattir til að sækja um.
12.
Festa Samfélagsábyrgð: möguleg aðild
Málsnúmer 201910020
Fyrirhugað er samstarf á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og FESTU-samfélagsábyrgðar um loftslagssáttmála. Markmiðið er að nýta markvissar aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og lágmarka neikvæð umhverfisáhrif. Verkefnið verður nánar kynnt fyrir atvinnulífinu og fleiri hagaðilum við undirritun samstarfssamningsins sem er fyrirhuguð í febrúar nk.
Drög að kynningarbréfi og samstarfssamningi lögð fram til kynningar.
13.
Svavarssafn
Málsnúmer 201810036
Auður Mikalesdóttir kynnti starfsemi Svavarssafns komandi árs og fór yfir framtíðarstarfsemi safnsins þar sem áherslur verða meðal annars settar á safnkennslu barna.
14.
Mikligarður
Málsnúmer 201809035
Farið var yfir skýrslu sem starfsmaður nefndar tók saman í tengslum við styrkumsókn til framkvæmda í Miklagarði. Þar var tæpt á sögunni og farið yfir framkvæmdaáætlun, kostnaðaráætlun og framtíðarsýn fyrir Miklagarð.
Lagt fram til kynningar.
15.
Sýningarstefna Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar
Málsnúmer 202010084
Sýningarstefna Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar 2020-2025 kynnt nefndarmönnum.
Tillaga að sýningarstefnu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar samþykkt af nefndarmönnum Atvinnu- og menningarmálanefndar.