Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

22. fundur
17. desember 2020 kl. 15:00 - 16:00
Teams Meating
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Árdís Erna Halldórsdóttir atvinnu og ferðamál
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Ljósmyndasafn Héraðskjalasafns Austur-Skaftafellssýslu
Málsnúmer 202012067
Farið yfir stöðu á ljósmyndasafni Héraðskjalasafns Austur-Skaftafellssýslu.
Starfsmaður nefndar fór yfir vinnu sem fram undan er við að gera ljósmyndir héraðskjalasafnsins aðgengilegar á vef Menningarmiðstöðvarinnar.
2.
Svavarssafn Ástustofa
Málsnúmer 202012065
Farið var yfir kosti þess að starfsmaður Svavarssafns hafi fasta viðveru á safninu. Starfsmanni Svavarssafns er falið að vinna áfram að málinu og koma með tillögur að útfærslu.
3.
Eyðibýli
Málsnúmer 201904050
Sigríður Guðný Björgvinsdóttir fór yfir stöðu eyðibýlaskráningar í sveitarfélaginu.
Menningarmiðstöð Hornafjarðar hefur unnið að eyðibýlaskráningu í Suðursveit í samstarfi við Þórbergssetur. Vel hefur gengið að skrá minjarnar í Suðursveit og stefnt er á frekari skráningu minja í sveitarfélaginu á nýju ári. Verkefnið verður kynnt með ljósmyndasýningu á vormánuðum 2021 og með opnun á nýrri vefsíðu.
4.
Merki Menningarmiðstöðvar LOGO
Málsnúmer 201803043
Tillögur að nýju merki Menningarmiðstöðvarinnar lagðar fram til kynningar.
Nefndarmenn fagna því að vinnan sé á lokastigi og að nýtt merki Menningarmiðstöðvarinnar líti dagsins ljós fljótlega.
5.
Umsóknir um styrk menningarmálanefndar 2020
Málsnúmer 202012047
Lagt fram til kynningar.
7.
Samráðsteymi sveitarfélaga vegna efnahagsáhrifa í kjölfar Covid-19.
Málsnúmer 202006079
Í Miðbæ á Höfn er unnið að standsetingu sameiginlegrar skrifstofuaðstöðu með aðgengi að kaffistofu og fundaraðstöðu. Aðstaðan er hugsuð fyrir þá sem vilja vinna störf án staðsetningar og einnig er aðstaðan tilvalin fyrir fólk í nýsköpun. Undirbúningur gengur vel. Búið að fjárfesta í húsgögnum og unnið er að uppsetningu aðstöðunar. Aðstaðan verður markaðsett frekar á nýju ári.
8.
Árshátíð starfsmanna sveitarfélagsins 2020
Málsnúmer 202008063
Nefndarmenn Atvinnu- og menningarmálanefndar hvetja starfsmenn til að nýta árshátíðarávísunina.