Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

23. fundur
21. janúar 2021 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Afgreiðsla atvinnu- og rannsóknasjóðs 2021
Málsnúmer 202011086
Margar áhugverðar umsóknir hafa borist Atvinnu og rannsóknarsjóði til úthlutunar eru 2.250.000 kr. en sótt var um styrki að upphæð 8.100.000 kr.

Atvinnu og menningarmálanefnd óskar eftir leyfi til að hækka úthlutunarfjárhæð með því að hækka hlutfall úthlutunar af höfuðstóli sjóðsins úr 20% í 35%.
2.
umsóknir um styrk menningarmálanefndar 2020
Málsnúmer 202012047
Mikið gróska er í menningarmálum og bera umsóknir þess merki. Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur til að auknu fé verði varið í menningarstyrki árið 2021.