Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

24. fundur
27. janúar 2021 kl. 16:00 - 18:00
Teams Meating
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Mikligarður
Málsnúmer 201809035
Björn Þór Imsland fór yfir næstu skref í framkvæmdum við Miklagarð.
2.
Humarhátíð 2021
Málsnúmer 202101089
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi leggur fram minnisblað vegna fyrirhugaðrar Humarhátíðar 2021.
Atvinnu- og menningarmálanefnd felur atvinnu- og ferðamálafulltrúa að fylgja málinu eftir skv. umræðu á fundinum.
3.
Áfangastaðaáætlun Suðurlands - uppfærsla 2020
Málsnúmer 202009074
Unnið er að uppfærslu Áfangastaðaráætlun Suðurlands þar sem lögð er áhersla á taka saman þau verkefni sem unnin hafa verið síðustu þrjú ár, sem og að greina áherslur og tækifæri á Suðurlandi til næstu þriggja ára.
Lagt fram til kynningar.
4.
Loftslagsyfirlýsing Festu og Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202012006
Sveitarfélagið Hornafjörður og Festa-miðstöð um sjálfbærni og samfélagsábyrgð gerðu með sér samkomulag í desember sl. um stuðning um loftslagsaðgerðir fyrirtækja og stofnana í sveitarfélaginu 2021-2022.
Markmið með verkefninu er að hvetja fyrirtæki og stofnanir á Hornafirði til að setja sér markmið í loftslagsmálum, fræðast um leiðir til aðgerða og mæla árangurinn. Á næstu dögum munu fyrirtæki og stofnanir fá sent boð frá sveitarfélaginu og Festu um að taka þátt í verkefninu, og stefnt er að undirritun við hátíðlega athöfn þann 26. febrúar nk.
5.
Samráðsteymi sveitarfélaga vegna efnahagsáhrifa í kjölfar Covid-19.
Málsnúmer 202006079
Sveitarfélagið Hornafjörður mun á næstu dögum opna fyrir umsóknir í styrktarsjóð fyrir fyrirtæki og frumkvöðla. Sjóðurinn er eitt af viðspyrnuverkefnum sveitarfélagsins vegna áhrifa covid-19 á atvinnulíf á svæðinu.
Lögð fram drög að úthlutunarreglum og umsóknareyðublaði í sjóðinn. Atvinnu- og ferðamálafulltrúa falið að vinna að málinu skv. umræðum á fundinum.
6.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2021
Málsnúmer 202101095
Núverandi staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði er sú að skráðir eru 133 atvinnuleitendur hjá VMST. Af þeim eru 77 íslenskir ríkisborgarar og 56 erlendir ríkisborgarar.
7.
Matís og matarsmiðjan
Málsnúmer 201709565
Unnið er að mögulegum útfærslum vegna reksturs Matarsmiðjunnar á Höfn.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu í samstarfi við Matís og Sláturfélagið Búa.
8.
Merki Menningarmiðstöðvar LOGO
Málsnúmer 201803043
Lagt fram til kynningar.
9.
Afgreiðsla atvinnu- og rannsóknasjóðs 2021
Málsnúmer 202011086
Atvinnu- og menningarmálanefnd auglýsti styrki á vegum Atvinnu- og rannsóknasjóðs til umsókna þann 3.12. 2020 og var umsóknarfrestur til 11. janúar sl. Að þessu sinni bárust sjóðnum 11 umsóknir, þar af 3 í A hluta sjóðsins, og 8 í B hluta hans.

Í ár eru kr. 2.250.000.- til úthlutunar, þar af kr. 1.000.000.- í A hluta sjóðsins og kr. 1.250.000.- í B hluta hans.

Úthlutun frestað til 4. febrúar.
10.
Umsóknir um styrki Atvinnu- og menningarmálanefndar
Málsnúmer 202012047
Nefndin fór yfir umsóknir og þakkar þeim sem sóttu um. Ljóst er af fjölda umsókna að mikil gróska er í menningarmálum í sveitarfélaginu. Afhending styrkja fer fram 12. mars nk. og verður það auglýst nánar síðar.

Úthlutun frestað til 4. febrúar.