Atvinnu- og menningarmálanefnd
26. fundur
24. mars 2021
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason
formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
aðalmaður
Guðrún Sigfinnsdóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2021
Enn er atvinnuleysi í Sveitarfélaginu Hornafirði umfangsmikið, og mælist nú um 8% atvinnuleysi í sveitarfélaginu. Ráðinn hefur verið verkefnastjóri virkniúrræðis í sveitarfélaginu í tímabundið starf, þar sem markmiðið er að auka viðspyrnu í atvinnulífinu.
Lagt fram til kynningar.
2.
Umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2020
Sveitarfélagið Hornafjörður hlaut tvo rausnarlega styrki hjá sjóðnum og veitti þeim viðtöku við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu þann 9. mars s.l. Annað verkefnið hlaut hæsta styrkinn hjá sjóðnum í ár, rúmar 97 milljónir króna, og snýr hann að því að leggja göngu- og hjólaleið á milli Svínafells, Freysness, flugvallarins við Skaftafell og þjónustumiðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs. Með því tengjast náttúra, samfélag og menning svæðisins saman á heildstæðan hátt, auk þess sem leiðin skapar öruggan og vistvænan samgöngukost fyrir íbúa og gesti svæðisins. Hitt verkefnið felst í að efna til hönnunarsamkeppni og vinna skipulagsgerð fyrir Leiðarhöfðann á Höfn sem er einstakur reitur. Þar verður áhersla lögð á að hámarka jákvæða upplifun með tryggu og öryggi aðgengi fyrir gesti og gangandi, og voru veittar kr. 24.6 milljónir í þetta verkefni.
Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar veittum styrkjum úr Framkvæmdasjóði ferðamannstaða. Göngu- og hjólaleið á milli Svínafells og Skaftafells mun bæði þjóna sem mikilvæg samgöngubót, sem og afþreyingarmöguleiki fyrir íbúa og gesti. Leiðarhöfðinn er fjölsótt kennileiti á Höfn, og býður svæðið upp á mikla möguleika. Stefnt er að því að hafa íbúasamráð eftir páska varðandi Leiðarhöfðann, áður en hönnunarsamkeppnin verður sett af stað.
3.
Hvatning í Hornafirði - sértæk úthlutun vegna Covid 19
Alls bárust 13 fjölbreyttar umsóknir í Hvatningu í Hornafirði, sem er sértækur styrksjóður til að mæta efnahagslegum áhrifum vegna covid-19 faraldursins. Heildarupphæð umsókna var kr. 15.288.000.-, en kr. 5.000.000.- voru til úthlutunar.
Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar fjölbreyttum umsóknum í sjóðinn. Unnið verður áfram að afgreiðslu úthlutunar.
4.
Áfangastaðaáætlun Suðurlands - uppfærsla 2020
Gögn vegna yfirstandandi vinnu lögð fram til kynningar.
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi kynnir yfirstandandi vinnu vegna áfangastaðaáætlunar. Nefndin fagnar metnaðarfullri vinnu vegna áætlunarinnar og faglegri verkstjórn af hálfu Markaðsstofu Suðurlands.
5.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Lagt fram til kynningar.
6.
Mikligarður
Björn Imsland fór yfir fyrirhugaðar framkvæmdir.
7.
Útilistaverk sveitarfélagsins
Skráning er hafin á útilistaverkum í sveitarfélaginu. Mynduð voru verk í Öræfum og Suðursveit um helgina. Starfsmaður nefndar hafði samband við Jeannette Castioni forvörð og unnið er áfram að skráningu verka og myndun þeirra til frekari greininga.
8.
Ósk um myndatökusvæði á Höfn
Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur áherslu á að verkefnið fái brautargengi fyrir sumarið 2021 og horfir nefndin til svæðisins þar sem Akurey stóð. Málinu vísað til bæjarráðs.
9.
Örnefnaskilti
Málinu vísað til bæjarráðs.