Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

27. fundur
21. apríl 2021 kl. 16:00 - 17:00
Teams
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sigurður Einar Sigurðsson 1. varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Hvatning í Hornafirði - sértæk úthlutun vegna Covid 19
Málsnúmer 202102028
Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsti til umsókna styrki úr samkeppnissjóðnum „Hvatning í Hornafirði“ sem er hluti af átaksverkefni vegna efnahagsáhrifa Covid faraldursins. Hlutverk sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og frumkvöðla í Sveitarfélaginu Hornafirði til að hrinda nýjum atvinnuskapandi aðgerðum í framkvæmd. Um einskiptis aðgerð er að ræða, og alls 5 milljónir króna til úthlutunar. Alls bárust 13 umsóknir í sjóðinn.
Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur til styrkveitingu úr Hvatningu í Hornafirði byggða á mati faghóps hjá SASS. Starfsmanni falið að upplýsa umsækjendur um niðurstöðu nefndarinnar.
2.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Málsnúmer 202003090
Lagt fram til kynningar.
3.
Örnefnaskilti
Málsnúmer 202008081
Fundað hefur verið með starfsmönnum Náttúrustofu Suðausturlands og FabLab um verkefnið. Áætlað er að setja upp fjögur skilti og farið hefur verið yfir ákjósanlega staði þar sem skiltin gætu staðið. Vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Leiðarhöfða var ákveðið að áætlað skilti við Leiðarhöfða yrði sett upp við Ásgarð. Áætlað er að hefja vinnnu við upplýsingaöflun fljólega og myndatöku útsýnis við fyrsta tækifæri.
Áfram er unnið að málinu.
4.
Ósk um myndatökusvæði á Höfn
Málsnúmer 202011112
Auglýst verður í næstu viku eftir hönnun á myndatökusvæði sem laða á ferðamenn til sveitarfélagsins. Stefnt er á að svæðið verði tilbúið í sumarbyrjun.
5.
Ársskýrslur MMH
Málsnúmer 202004060
Unnið er að ársskýrslu Menningarmiðstöðvarinnar þar sem farið verður yfir öll helstu störf stofnunarinnar árið 2020.
Áfram er unnið að málinu.