Atvinnu- og menningarmálanefnd
29. fundur
30. júní 2021
kl.
16:00
-
18:00
Teams Meating
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason
formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir
varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Staða og horfur í ferðamálum í Sveitarfélaginu Hornafirði 2021
Haukur Ingi Einarsson ræddi við nefndarmenn um stöðu ferðamála í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Finna má fyrir jákvæðni í ferðaþjónustunni. Fyrirtæki hafa verið dugleg að nýta styrki og hlutabótaleiðir VMST til að styrkja sín fyrirtæki og ráða til sín starfsmenn en rekstraraðilar hafa fundið fyrir töluverðri manneklu á svæðinu. Eitthvað má finna fyrir áhyggjum af haustinu og næsta ári vegna óvissu á Asíumarkaði og hvernig staðan verður gagnvart heimsfaraldri.
2.
Mikligarður
Björn Þór Imsland ræddi við nefndarmenn um fyrirhugaðar framkvæmdir og hönnun Miklagarðs.
3.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2021
Alls eru 65 aðilar skráðir atvinnulausir í Sveitarfélaginu Hornafirði. Svæðaskipt þá er staðan eftirfarandi.780: 34 manns781: 18 manns785: 13 manns
4.
Svavarssafn Ástustofa
Atvinnu- og menningarmálanefnd óskar eftir auknu stöðugildi svo hægt verði að lengja opnunartíma Svavarssafns.
5.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Lagt fram til kynningar.
6.
Humarhátíð 2021
Humarhátíð 2021 var haldin hátíðleg síðastliðna helgi og gekk hátíðin vel fyrir sig. Fleiri viðburðir eru skipulagðar yfir sumartímann og verða þeir auglýstir á helstu miðlum Menningarmiðstöðvarinnar. Atvinnu og menningarmálanefnd þakkar starfsfólki Menningarmiðstöðvarinnar fyrir utanumhald og skipulag Humarhátíðar ásamt því að þakka öllum þeim sem lögðu hönd á plóg.
7.
Ósk um myndatökusvæði á Höfn
Niðurstöður samkeppninnar "Myndatökusvæði á Höfn" er nú kunn og var það Sigþór Jónsson sem sigraði keppnina og óska nefndarmenn sigurvegara til hamingju. Vinningstillögu má sjá í glugga Menningarmiðstöðvarinnar.
8.
Starfsstefna MMH 2021-2025
Atvinnu- og menningarmálanefnd samþykkir starfsstefnu Menningarmiðstöðvarinnar án athugasemda og vísar til bæjarráðs.