Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

3. fundur
29. ágúst 2019 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Guðrún Sigfinnsdóttir 1. varamaður
Sigurður Einar Sigurðsson 1. varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Félagsleg þolmörk íbúa á Suðurlandi gagnvart ferðamönnum og ferðaþjónustu?
Málsnúmer 201908061
Þorvarður Árnason kynnir rannsóknina:Félagsleg þolmörk íbúa á Suðurlandi gagnvart ferðamönnum og ferðaþjónustu“
Þorri fór yfir skýrsluna: Nýr veruleiki í mótun "Félagsleg þolmörk íbúa á Suðurlandi gagnvart ferðamönnum og ferðaþjónustu". Atvinnu og menningarmálanefnd þakkar áhugaverða kynningu.
2.
Fundargerðir: stjórnar og svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs 2019
Málsnúmer 201902109
Lagt fram til kynningar.
3.
Álaleira hönnun
Málsnúmer 201905085
Drög að kostnaðaráætlun hönnunar lögð fram. Starfsmanni falið að kalla eftir frekari gögnum varðandi framkvæmdakostnað vegna komandi fjárhagsáætlunargerðar.
4.
Ályktun um refaveiðar - Búnaðarsamband Austur- Skaftafellssýslu
Málsnúmer 201905067
Lagt fram til kynningar starfmanni falið að vinna frekar að málinu.
5.
Fræðsluferð nefndarmanna
Málsnúmer 201908053
Starfmanni falið að vinna frekar að málinu.
6.
Sumarlestur MMH
Málsnúmer 201908062
Miðvikudaginn 28. ágúst lauk sumarlestri Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og haldi var upp á það með hátíðlegum hætti á Bókasafni Austur-Skaftafellssýrslu. Var Svanborgu Rós Jónsdóttur veitt viðurkenning fyrir framúrskarandi dugnað í lestri árið 2019. Svo sannarlega má segja að Svanborg Rós sé einstaklega duglegur lestrahestur því í sumar hefur hún um 100 bækur og heldur hún ótrauð lestrinum áfram. Svanborg er vel að viðurkenningunni komin og óskar Atvinnu og menningarmálanefnd henni innilega til hamingju með árangurinn.
Lestur er bestur.
7.
Vélar MMH í Hoffelli
Málsnúmer 201905077
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.