Atvinnu- og menningarmálanefnd
31. fundur
29. september 2021
kl.
15:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason
formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir
varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Menningarmiðstöð
Árdís Erna Halldórsdóttir
atvinnu og ferðamál
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2021
Svava Jónsdóttir fer yfir bótaréttindi atvinnuleitanda með nefndinni.
Á atvinnuleysisskrá í sveitarfélaginu eru 27 einstaklingar.
Fram kom í máli Svövu að starfsmaður Vinnumálastofnunar á Höfn verði til áramóta.
Fram kom í máli Svövu að starfsmaður Vinnumálastofnunar á Höfn verði til áramóta.
2.
Iceland vision
Sindri Ragnarsson for yfir hugmyndir Island Vision í safnamálum í sveitarfélaginu Hornafirði.
3.
Gamlabúð Rekstur upplýsingamiðstöðvar
Óskað er eftir því að Sveitarfélagið Hornafjörður greiði 50% laun starfsmanns í Gömlubúð. Tryggir það ekki bara nauðsynlega opnun upplýsingamiðstöðvar, heldur styrkir það einnig tengsl og samstarf Vatnajökulsþjóðgarðs og sveitarfélagsins.
Atvinnu og menningarmálanefnd telur ekki að það sé hlutverk sveitarfélagsins að koma að rekstri gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs í Gömlubúð. Nefndin hvetur þjóðgarðinn til að halda gestastofunni á Höfn opinni og að tryggja áframhaldandi þjónustu í húsinu.
4.
Stofnskrá Menningarmiðstöðvar 2021-25
Stofnskrá lögð aftur fram til samþykkis vegna smávægilegra breytinga.
Stofnskrá samþykkt og vísað til bæjarstjórnar til samþykkis.
5.
Fundargerðir stjórnar Markaðsstofu Suðurlands
Lagt fram til kynningar
6.
Gjaldskrá Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar
Gjaldskrá Menningarmiðstöðvar 2021 samþykkt.
7.
Svavarssafn Ástustofa
Starfsmaður vinnur áfram að málinu.
8.
Örnefnaskilti
Farið var yfir stöðu verkefnisins og munu niðurstöður þess verða kynntar fyrir almenningi áður en skiltin verða send í prentun.
9.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Lagt fram til kynningar.
Atvinnu og menningarmálanefnd fagnar því að það séu komnir tveir þjóðgarðsverðir á suðursvæðið og óskar nýjum þjóðgarðsvörðum velgengni í starfi.
10.
Kvísker
Staða verkefnisins kynnt fyrir nefndinni.