Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

39. fundur
29. apríl 2022 kl. 14:30 - 16:21
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir varaformaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir aðalmaður
Guðrún Sigfinnsdóttir 1. varamaður
Bryndís Hólmarsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Árdís Erna Halldórsdóttir atvinnu og ferðamál
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Héraðsskjalasafn
Málsnúmer 202204063
Halldóra Jónsdóttir kemur á fund nefndar og ræðir við nefndarmenn um framtíð safnsins og stöðu þess.
Halldóra Jónsdóttir hefur sagt starfi sínu lausu sem héraðskjalavörður.

Halldóra fór yfir stöðuna í skjalamálum sveitarfélagsins og hver næstu skref þurfa að vera til þess að hægt sé að fara í rafræn skil skjala í langtíma vörslu.

Atvinnu og menningarmálanefnd þakkar Halldóru góða kynningu og vel unnin störf á síðustu árum.
2.
Vatnajökulsþjóðgarður
Málsnúmer 202204064
Steinunn Hödd Harðardóttir ræddi við nefndarmenn um framtíð Vatnajökulsþjóðgarðs.
Steinunn Hödd Harðardóttir þjóðgarðsvörður fór yfir málefni líðandi stundar og áætlanir Vatnajökulsþjóðgarðs varðandi uppbyggingu á suðursvæði. Hún upplýsti nefndina um að Stjórnarráð Íslands hefur gefið það út að höfuðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs og staða framkvæmdastjóra mun flytjast til Hornafjarðar. Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar þessum fréttum og uppbyggingunni sem fylgir í kjölfarið.
3.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2022
Málsnúmer 202201088
Lagt fram til kynningar.
Staða á atvinnuleysisskrá í Sveitarfélaginu Hornafirði er eftirfarandi:

780 = 28
781= 5
785= 4
4.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Málsnúmer 202003090
Lagt fram til kynnngar.
5.
Mikligarður
Málsnúmer 201809035
Rætt hefur verið um að Vatnajökulsþjóðgarður muni flytja út úr Gömlubúð yfir í Miklagarð. Nefndin leggur til að stýrihópur verði stofnaður um fyrirhugaða jöklasýningu í Miklagarði. Einnig þarf að huga að sýningu í Gömlubúð og hvernig þessar tvær sýningar gætu talað saman.
6.
Skaftfellingur
Málsnúmer 202003084
Starfsmaður fór yfir stöðu vekefnisins og stefnt er að því að koma blaðinu út í sumarbyrjun.
7.
Ósk um myndatökusvæði á Höfn
Málsnúmer 202011112
Lilja Kristín Ólafsdóttir landslagsarkitekt hjá Betúla hefur tekið að sér að stærðsetja verkið og von er á niðurstöðum í næstu viku. Í kjölfarið verður hægt að gera kostnaðaráætlun og taka næstu skref.
8.
Kvísker
Málsnúmer 202108060
Fyrir liggur samstarfssamningur við Gísla Sverri um aðstoð við skráningu minja við Kvísker og hefst skránig á Kvískerjum á fundi með landeigendum 4.maí. Lögð verður áhersla á að safna saman skjölum fyrrum íbúa Kvískerja í fyrsta hluta verkefnisins.
Lagt fram til kynningar.
9.
Erindi um flutning á Víkingaskipi Dakar frá Kópavogshöf til Hornafjarðar.
Málsnúmer 202204068
Starfsmanni nefndar barst erindi þar sem óskað er eftir aðkomu sveitarfélagsins í flutningi Víkingaskipsins Drakar frá Kópavogshöfn til Hornafjarðar. Skipið á að auka áhuga ferðamanna á svæðinu og að styrkja atvinnustarfssemi.
Atvinnu- og menningarmálanefnd þakkar fyrir erindið, fagnar frumkvæðinu og vísar málinu til bæjarráðs.