Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

44. fundur
26. október 2022 kl. 14:30 - 16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir aðalmaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson aðalmaður
Selma Ýr Ívarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Aðgengi á Svavarssafni
Málsnúmer 202210062
Snæbjörn Brynjarsson safnvörður Svavarssafns fór yfir helstu verkefni Svavarssafns á árinu og komandi sýningar. Snæbjörn ræddi um kosti breytts opnunartíma safnsins og möguleika gesta safnsins til að njóta sýninga á hentugri opnunartíma. Rætt um bætt aðgengi að safninu og möguleika þess að laga aðkomu að ráðhúsinu (í portinu) svo að aðgengi fyrir alla væri að safninu.
Nefndin þakkar Snæbirni fyrir áhugaverða kynningu á fyrirhuguðum sýningum og tillögu um að breyta bílastæðum í porti við Ráðhús/Svavarssafn í útivistarport, ásamt því að lagfæra innganginn og gera hann hjólastólafæran. Nefndin vísar tillögunni til Bæjarráðs.
2.
Úthlutunarreglur menningarstyrkja
Málsnúmer 202210060
Lagt fram til kynningar.
3.
Styrkir menningarmála árið 2022
Málsnúmer 202210059
Lagt fram til kynningar.
Styrkjasjóður Atvinnu- og menningarmálanefndar opnar fyrir umsóknir í sjóðinn í nóvember og hvetur nefndin einstaklinga og félagasamtök að senda inn styrkumsókn.
Úthlutunarreglur má finna á síðu sveitarfélagsins.
4.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2022
Málsnúmer 202201088
Lagt fram til kynningar.
Þann 24.10.2022 voru 33 skráðir í atvinnuleit:
780: 19 og þar af 1 í AMS
781: 11
785: 3

AMS: Atvinnuleit með stuðningi.
5.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Málsnúmer 202003090
Lagt fram til kynningar.
6.
Skaftfellingur
Málsnúmer 202003084
Búið er að leita tilboða í prentun Skaftfellings og vonast er til að hægt verði að koma næsta tölublaði í prentun fyrir næsta fund. Nefndin ræddi framtíð útgáfunnar. Nú eru margir farnir að lesa blöð og tímarit í vefútgáfu og það væri hægt að búa til undirsíðuna Skaftfellingur á síðu Héraðsskjalasafnsins á vef Menningarmiðstöðvarinnar, með því móti væri hægt að birta greinar þegar þær berast í stað þess að láta greinar bíða þar til nægilegt efni hefur safnast til prentunar. Málinu er vísað til umfjöllunar í öldungaráði.
7.
Útilistaverk sveitarfélagsins
Málsnúmer 202102084
Unnið er að skráningu útilistaverka og minnisvarða í sveitarfélaginu og hvetur nefndin íbúa til að senda upplýsingar um verk í þeirra nágrenni á netfangið menningarmidstod@hornafjordur.is
8.
Menningarmiðstöð
Málsnúmer 202012066
Söfn innan Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar eru viðurkennd söfn og lúta því þeim lögum sem skilgreind eru fyrir söfn stofnunarinnar, þá er viðburðahald einnig stór hluti starfsemi stonfunarinnar sem halda þarf utan um. Nefndin leggur til að skerpt verði á skilgreiningum, starfsemin verði aðgreind og að fjárhagsrammi hvors um sig verði skýr: Að nýtt starf verið skilgreint til að annast viðburðastjórn og að nauðsynlegt fjármagn fylgi.
Nefndin vísar tillögunni til bæjarráðs.