Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

49. fundur
22. febrúar 2023 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir aðalmaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson aðalmaður
Selma Ýr Ívarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Emil Örn Moravek Jóhannsson 1. varamaður
Tinna Rut Sigurðardóttir 1. varamaður
Þorgrímur Tjörvi Halldórsson 2. varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Hornafjörður náttúrulega
Málsnúmer 202301036
Bæjarráð vísar heildarstefnu sveitarfélagsins Hornafjörður náttúrulega til kynningar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri kynnti stefnuna Hornafjörður náttúrulega fyrir atvinnu- og menningarmálanefnd. Í yfirferð Sigurjóns kom fram að gildi sveitarfélagsins eru virðing, framsækni og samvinna og að stoðir stefnunnar sem unnið verður markvisst með séu hagsæld, stjórnarhættir, umhverfis- og loftslagsmál og félagslegir þættir.
Fjórir átaksmánuðir eru áætlaðir í stefnunni apríl, maí, október og nóvember þar sem unnið verður sérstaklega með hverja stoð hennar og vonast er til að með stefnugerð sem þessari verði breytingar til góðs í þeim þáttum sem áhersla er lögð á.

Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar því að verið sé að vinna að framvindu stefnunnar og mun nýta stefnuna til hliðsjónar í sínum verkefnum.
2.
Humarhátíð
Málsnúmer 202301049
Bæjarráð vísar málinu til nefndarinnar og óskar eftir að hún komi með tillögu og umgjörð fyrir Humarhátíð 2023.
Atvinnu- og menningarmálanefnd þakkar innsendar umsóknir, starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.

Nefndin hefur útbúið umgjörð fyrir Humarhátíð og vísar henni til bæjarráðs.
3.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2023
Málsnúmer 202302057
Lagt fram til kynningar.
Eftirfarandi tölur sýna fjölda atvinnuleitenda eftir póstnúmerum sveitarfélagsins.

Í póstnúmeri 780 eru 23 á skrá
Í póstnúmeri 781 eru 5 á skrá
Í póstnúmeri 785 eru 6 á skrá
4.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Málsnúmer 202003090
Lagt fram til kynningar.
5.
Styrkir atvinnu- og menningarmálanefndar 2023
Málsnúmer 202211062
Atvinnu- og menningarmálanefnd þakkar innsendar tillögur til menningarverðlauna árið 2023 fyrir árið 2022.

Fjölmargar tillögur bárust og augljóst að mikil og frjó menningarstarfsemi er í sveitarfélaginu. Samhugur var í nefndarmönnum um hver ætti að vera handhafi menningarverðlauna þetta árið.

Menningarhátíð sveitarfélagsins verður haldin 10. mars í Nýheimum, hefst hátíðin kl. 17:00 og eru allir velkomnir.