Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

50. fundur
22. mars 2023 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson aðalmaður
Selma Ýr Ívarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Þorgrímur Tjörvi Halldórsson 2. varamaður
Tinna Rut Sigurðardóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Árdís Erna Halldórsdóttir atvinnu og ferðamál
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Leiðarhöfði - Hönnunarsamkeppni
Málsnúmer 202104018
Fulltrúar vinningstillögu um Leiðarhöfða mæta á fundinn og kynna hugmyndafræðina á bakvið hana fyrir nefndarmönnum.
Jóhanni Péturssyni hjá Landmótun og Huldu Jónsdóttur hjá HJARK studio er þakkað kærlega fyrir góða yfirferð. Í vinningstillögunni var lögð áhersla á að auka öryggi gesta á Leiðarhöfða, gera svæðið aðlaðandi og styðja við útivist, meðal annars með því að tengjast göngustígakerfinu í kring. Nú er unnið að aðalskipulagsbreytingum og deiliskipulagsgerð á svæðinu og stefnt er að því setja upp hluta af leiktækjunum í sumar. Markmiðið er að sækja um frekari styrki í haust til uppbyggingar á svæðinu.
2.
Markaðsstofa Suðurlands - Faghópur í ferðamálum 2023
Málsnúmer 202303073
Fundargerðir Markaðsstofu Suðurlands og Faghóps í ferðamálum á Suðurlandi lagðar fram til kynningar.
Samstarf í ferðamálum á Suðurlandi er mikið og telur nefndin það gagnlegt fyrir svæðið í heild sinni.
3.
Áfanga- og áningarstaðir innan SVH - Uppbygging og viðhald 2023
Málsnúmer 202303074
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi kynnir áætlun um samvinnu við sjálfboðaliðasamtök á vegum Umhverfisstofnunar vegna viðhalds og uppbyggingar á ferðamannastöðum innan sveitarfélagsins.
Sérhæfður hópur sjálfboðaliða á vegum Umhverfisstofnunar mun vinna að göngustígagerð í sveitarfélaginu í sumar. Mun vinna þeirra standa yfir í fjórar vikur.
4.
Gamlabúð - auglýsing vegna leigu
Málsnúmer 202303072
Leigusamningur á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Vatnajökulsþjóðgarðs um Gömlubúð rennur út þann 1. apríl nk. Ákvað bæjarráð Hornafjarðar á 1074. fundi sínum þann 2. mars sl. að fela atvinnu- og ferðamálafulltrúa að útbúa auglýsingu vegna fyrirhugaðrar leigu á Gömlubúð.
Atvinnu- og menningarmálanefnd hvetur áhugasama til að kynna sér húsnæðið og tækifærin sem það hefur upp á að bjóða. Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl nk.
5.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
6.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2023
Málsnúmer 202302057
Lagt fram til kynningar.
Atvinnuleysistölur í póstnúmerum 780-781 og 785 eru eftirfarandi:
780: 17 einstaklingar
781: 4 einstaklingar
785: 4 einstaklingar
7.
Héraðsskjalasafn
Málsnúmer 202204063
Rætt var um stafræna þróun sveitarfélagsins á næstu árum í rafrænum skilum gagnasafns sveitarfélagsins.

Héraðsskjalasöfn á Íslandi hafa tekið höndum saman til að styðja við stafræna umbreytingu sveitarfélaga og vinna að því að byggja upp sérþekkingu á langtímavarðveislu í samræmi við OAIS staðalinn. Samstarfsverkefni safnanna 19 byggir á að landinu verði skipt upp í klasa þar sem Héraðsskjalasafn Austur- Skaftafellssýslu fylgi Suður-klasa. Samstarfsverkefnið á að einfalda móttöku tilkynninga, afhendingu rafrænna gagna, prófanir og afgreiðslu og þannig að lækka rekstrarkostnað sveitarfélaga þegar kemur að rafrænni skjalavörslu.