Atvinnu- og menningarmálanefnd
51. fundur
19. apríl 2023
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Sigurgeirsdóttir
formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson
aðalmaður
Selma Ýr Ívarsdóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Tinna Rut Sigurðardóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Gamlabúð - auglýsing vegna leigu
Nefndin fagnar innsendum umsóknum og þeim hugmyndum sem hafa komið fram. Starfsmenn vinna að málinu.
2.
Mikligarður
Nefndin telur tímabært að tekin verði ákvörðun um framtíð Miklagarðs. Þörf er á viðamiklum endurbótum á húsinu og þarf að vinna þær með hliðsjón af framtíðaráformum hússins. Nefndin vísar því til bæjarráðs hvort leggja eigi fjármagn í endurbætur eða auglýsa húsið til sölu.
3.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2023
Lagt fram til kynningar.
Alls eru 25 á atvinnuleysisskrá í þessum póstnúmerum.
780: 18
781: 3
785: 4
780: 18
781: 3
785: 4
4.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Lagt fram til kynningar.
5.
Menningarmiðstöð
Verkáætlun Menningarmiðstöðvarinnar lögð fram til kynningar. Mönnun á helgaropnun Svavarssafns rædd.
Nefndin leggur til að ráðinn verði starfsmaður í hlutastarf til að annast helgaropnun Svavarssafns í sumar og vísar því til bæjarráðs.