Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

52. fundur
22. maí 2023 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir aðalmaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Selma Ýr Ívarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Tinna Rut Sigurðardóttir 1. varamaður
Bjarni Ólafur Stefánsson varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Héraðsskjalasafn
Málsnúmer 202204063
Þorsteinn Tryggvi Másson héraðsskjalavörður Héraðsskjalasafns Árnesinga fór yfir helstu mál rafrænnar skjalavörslu en Sveitarfélagið Hornafjörður er nú í klasasamstarfi með héraðsskjalasöfnum á Suðurlandi og vinna þau í sameiningu að framtíðarskipulagi rafrænna skila sveitarfélaga klasans.
Nefndin þakkar Þorsteini fyrir góða kynningu. Ljóst er að gera þarf ráð fyrir þessu verkefni í næstu fjárhagsáætlunargerð.
2.
Humarhátíð 2023
Málsnúmer 202301049
Undirritaður hefur verið samstarfssamningur við Humarhátíðarstjórn sem lítur að skipulagningu og utanumhaldi á Humarhátíð. Samningur lagður fram til kynningar.
Nefndin hvetur íbúa sveitarfélagsins til að taka virkan þátt í undirbúningi og hátíðarhöldum.
3.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2023
Málsnúmer 202302057
Lagt fram til kynningar.
780- 11 einstaklingar
781- 3 einstaklingar
785- 2 einstaklingar

ALLS: 16 einstaklingar
4.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Málsnúmer 202003090
Lagt fram til kynningar.
5.
Svavarssafn
Málsnúmer 201810036
Nefndarmenn fá kynningu á nýrri sýningu Svavarssafns
Sýningin Solander 250: Bréf frá Íslandi er sett upp á Íslandi til að minnast þess að 2022 voru 250 ár liðin frá einum fyrsta erlenda vísindaleiðangrinum til Íslands, 1772. Með í þeirri för var einn af lærisveinum hins heimsþekkta sænska náttúruvísindamanns Carl von Linné, sænski náttúrufræðingurinn Daniel Solander. Solander og skrásettu m.a. ýmislegt um náttúru Íslands, menningu, siði og klæðaburð. Tíu íslenskir grafíklistamenn túlka á sýningunni þessa atburði og þær breytingar sem hafa átt sér stað á landi og þjóð.
Á sama tíma verður sýningin Paradise Lost ? Daniel Solander’s Legacy opnuð. Þar sýna 10 listamenn frá Kyrrahafssvæðinu, en Solander var í áhöfn HMS Endeavour í fyrstu ferð Evrópumanna til Ástralíu. Sýningin hefur áður verið sett upp á NýjaSjálandi, í Ástralíu og Svíþjóð. Sýningarnar tvær mynda því einstakt samtal Norðurskautsins og Kyrrahafsins í gegnum ferðir Daniel Solanders. Sýningarnar tvær eru samstarfsverkefni Sendiráðs Svíþjóðar á Íslandi og félagsins Íslensk grafík.