Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

53. fundur
28. júní 2023 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson aðalmaður
Emil Örn Moravek Jóhannsson 1. varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Árdís Erna Halldórsdóttir atvinnu og ferðamál
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Ferðamennskusamfélagið
Málsnúmer 202212030
Sveitarfélagið Hornafjörður hlaut styrk úr Sóknaráætlun Suðurlands til að vinna að gerð stöðu- og þarfagreiningar á ferðamennskusamfélaginu Hornafirði. Markmiðið með fyrsta hluta vinnunar er að undirbyggja stefnumótun með áherslu á sjálfbæra ferðamennsku, byggðaþróun, menningu, menntun, nýsköpun og rannsóknir. Samstarfsaðilar sveitarfélagsins eru Rannsóknarsetur HÍ í Hornafirði, FAS og Þekkingarsetrið Nýheimar og SASS. Ragnhildur Jónsdóttir hefur unnið að verkefninu og kynnir hún niðurstöður þess fyrir atvinnu- og menningarmálanefnd.
Atvinnu- og menningarmálanefnd þakkar Ragnhildi vel unnin störf og hlakkar til að sjá loka útgáfu skýrslunnar sem mun verða gagnlegt tól innan stjórnsýslunnar við ákvörðunartöku og áætlunargerð.
2.
Ferðaþjónustukort fyrir austursvæði Suðurlands - uppfærsla
Málsnúmer 202306097
Sveitarfélagið Hornafjörður gefur út ferðaþjónustubækling fyrir svæðið í samstarfi við Markaðsstofu Suðurlands og önnur þátttökusveitarfélög í landshlutanum. Unnið er að uppfærslu á kortum og bæklingum fyrir öll svæðin.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
3.
Jöklaleiðin - ýmis verkefni
Málsnúmer 202006004
Unnið er að uppfærslu á korti fyrir gönguleiðina Mýrajöklar sem opnaði formlega árið 2017. Ný göngubrú er að rísa á nýjum stað við Hólmsá, og mun lega leiðarinnar breytast vegna þessa.
Lagt fram til yfirferðar.
4.
Gamlabúð
Málsnúmer 202211068
Menningarmiðstöðin hefur tekið að sér að sjá um upplýsingamiðstöð í Gömlubúð í sumar og nú er opið frá kl 09-17 virka daga.
Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur til að Menningarmiðstöðin verði leiðandi í starfsemi Gömlubúðar.
5.
Ósk um styrk - Listaverkabók um líf og listaverk Svavars Guðnasonar
Málsnúmer 202305100
Erindi frá Knúti Bruun þar sem hann óskar eftir að bæjarráð veiti styrk til útgáfu listaverkabókar um líf og listaverk Svavars Guðnasonar. Bæjarráð vísar erindinu til kynningar í atvinnu- og menningarmálanefnd.
Atvinnu- og menningarmálanefnd þakkar þeim hjónum fyrir erindið og tekur því fagnandi að ferli Svavars verði gerð góð skil, Svavar Guðnason skipar mikilvægan sess í menningarsögu sveitarfélagsins.
6.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2023
Málsnúmer 202302057
Lagt fram til kynningar.
Á atvinnuleysisskrá í sveitarfélaginu eru:
780: 11 einstaklingar
781: 1 einstakingur
785: 4 einstaklingar
7.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Málsnúmer 202003090
Lagt fram til kynningar.
8.
Menningarstefna 2023
Málsnúmer 202306056
Fyrstu drög menningarstefnu sveitarfélagsins lögð fram til kynningar.
9.
Ársskýrslur MMH
Málsnúmer 202004060
Ársskýrsla Menningarmiðstöðvarinnar fyrir árið 2022 lögð fram til kynningar.
Nefndin þakkar starfsfólki Menningarmiðstöðvarinnar fyrir mikið og blómlegt starf.