Atvinnu- og menningarmálanefnd
56. fundur
25. október 2023
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
aðalmaður
Steindór Sigurjónsson
aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson
aðalmaður
Emil Örn Moravek Jóhannsson
1. varamaður
Tinna Rut Sigurðardóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Menningarmiðstöð
Árdís Erna Halldórsdóttir
atvinnu og ferðamál
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Starfastefnumót í Hornafirði 2023
Starfastefnumót var í dag haldið í annað sinn í Sveitarfélaginu Hornafirði. Fundur atvinnu- og menningarmálanefndar hófst á vettvangsferð á viðburðinn.
Atvinnu- og menningarmálanefnd lýsir ánægju sinni yfir vel lukkuðu starfastefnumóti og þakkar fyrirtækjum og stofnunum fyrir þátttöku og Nýheimum fyrir gott utanumhald.
Stefnumótinu lauk með áhugaverðu og hvetjandi erindi Nökkva Dans Elliðasonar og þakkar nefndin honum fyrir.
Stefnumótinu lauk með áhugaverðu og hvetjandi erindi Nökkva Dans Elliðasonar og þakkar nefndin honum fyrir.
2.
Uppbygging innviða á Jökulsárlóni
Tinna Rut Sigurðardóttir vék af fundi undir þessu máli.Ferðamálafélag Austur- Skaftafellssýslu (Fask) hefur óskað eftir því að Atvinnu- og menningarmálanefnd fari fram á við bæjarráð og bæjarstjórn sveitarfélagsins að óskað verði eftir lögfræðiáliti um hvort stjórnvöldum sé heimilt að ganga til samninga við þá aðila sem stóðu að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs og uppbyggingu á atvinnustarfsemi og innviða innan hans. Hagsmunaaðilar hafa nú þegar hafið vinnuna með lögfræðistofu og óskar eftir þátttöku og afstöðu sveitarfélagsins.
Atvinnu- og menningarmálanefnd tekur undir orð FASK enda er um mikilvægt hagsmunamál sveitarfélagsins að ræða. Einnig er þetta leið fyrir Vatnajökulsþjóðgarð að uppfylla eitt af meginmarkmiðum sínum, sem er að styrkja byggð og atvinnustarfsemi í nærumhverfi þjóðgarðsins. Nefndin leggur til að sveitarfélagið sýni samstöðu í verki og vísar erindinu áfram til bæjarráðs.
3.
Umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2023
Sveitarfélagið Hornafjörður sendi inn tvær umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða í ár, eina fyrir uppbyggingu á gönguleið í Múlagljúfur og aðra fyrir uppbyggingu áningastaðar við Leiðarhöfða á Höfn samkvæmt nýju deiliskipulagi svæðisins.
Lagt fram til kynningar.
4.
Lausaganga stórgripa
Bæjarráð vísaði málinu til vinnslu atvinnu- og menningarmálanefndar.
Atvinnu- og menningarmálanefnd þakkar innsent erindi og felur starfsmanni að vinna að endurskoðun samþykktar fyrir búfjárhald í Sveitarfélaginu Hornafirði.
5.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2023
Lagt fram til kynningar.
Alls eru 24 á atvinnuleysisskrá í sveitarfélaginu, 14 í 780, 8 í 781 og 2 í 785 og hefur atvinnulausum fjölgað um 6 manns síðan í september.
6.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Lagt fram til kynningar.
7.
Úthlutunarreglur menningarstyrkja 2023
Úthlutunarreglur menningarstyrkja eru lagðar fram til yfirferðar og samþykkis.
Starfsmanni falið að endurskoða úthlutunarreglur menningarstyrkja.
Nefndin óskar eftir auknu fjármagni þar sem úthlutunarupphæð sjóðsins hefur ekki verið hækkuð undanfarin ár.
Nefndin óskar eftir auknu fjármagni þar sem úthlutunarupphæð sjóðsins hefur ekki verið hækkuð undanfarin ár.
8.
Gjaldskrá 2024
Gjaldskrá Menningarmiðstöðvarinnar árið 2024 lögð fram til samþykktar.
Nefndarmenn samþykkja gjaldskrá Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar 2024.