Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

6. fundur
22. október 2019 kl. 16:00 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir varaformaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir aðalmaður
Guðrún Sigfinnsdóttir 1. varamaður
Bryndís Hólmarsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Ríki Vatnajökuls / Visit Vatnajökull
Málsnúmer 201910042
Olga Ingólfsdóttir framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls kom á fund nefndar og kynnti verkefni og stöðu félagsins. Nefndin telur mikilvægt að samingur sveitarfélagsins við Ríki Vatnajökuls verði framlengdur.
2.
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða 2019
Málsnúmer 201910093
Lagt fram til kynningar og styður nefndin áframhaldandi vinnu að umsókninni.
3.
Reglur um birtingu gagna með fundargerðum
Málsnúmer 201909053
Lagt fram til kynningar og nefndir óskar eftir frekari upplýsingum um 4.gr 5. lið.
4.
Úttekt Safnaráðs
5.
Styrkir atvinnu og menningarmálanefndar
Málsnúmer 201910040
Auglýsing fyrir atvinnu og menningarverðlaun
Rætt um að skerpa á auglýsingum vegna styrkja atvinnu og rannsóknarsjóðs annarsvegar og menningarstyrkjum hinsvegar.
6.
Eldsmiðjumunir SF
Málsnúmer 201910039
Nefndin vinnur áfram að málinu.
7.
Mikligarður
Málsnúmer 201809035
Nefndin tók saman punkta um næstu skref framkvæmda í Miklagarði áður en bilum verður úthlutað eftir umsóknarferli:

Húsið gert upp að utan
Sprinkler eldvarnarkerfi
Halda húsinu í þeirri hæð sem það er í(hvorki hækkun né lækkun)
Endurbæta lagnir að og frá húsi, vatn, rafmagn, skólp
Varðveita húsið í þeirri mynd sem er (bilin halda sér)

8.
Gjaldskrá Menningarmiðstöðvar 2016
Málsnúmer 201709405
Samband íslenskra sveitarfélaga mælist til þess að á árinu 2020 hækki gjaldskrár sveitarfélaga um 2,5% að hámarki, en minna ef verðbólga verður lægri.
Nefndin leggur til að gjaldskráin haldist óbreytt.

9.
Atvinnuleysi tölulegar upplýsingar 2018-19
10.
Fjöldi ferðamanna 2019
Málsnúmer 201910059
Til kynningar
11.
Samningur - talning ferðamanna
Málsnúmer 201909080
Sveitarfélagið rekur bílateljara við Hafnarnes og við veginn að Horni. Starfsfólk Vatnajökulsþjóðgarðs hefur sinnt rekstri þeirra. Samningur þessi er gerður vegna þeirrar vinnu.
Lagt fram til kynningar.