Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

60. fundur
24. janúar 2024 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson aðalmaður
Amylee Vitoria da Silva Trindade Fulltrúi ungmennaráðs
Emil Örn Moravek Jóhannsson 1. varamaður
Tinna Rut Sigurðardóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Árdís Erna Halldórsdóttir atvinnu og ferðamál
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Samþykktir um götu- og torgsölu í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201512065
Unnar voru samþykktir fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð sem voru samþykktar í bæjarstjórn Hornafjarðar í mars 2016. Þörf er á endurskoðun samþykktanna.
Starfsmanni falið að gera tillögur að breytingum á samþykktunum samkvæmt umræðum á fundinum. Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar að koma með tillögur svæða fyrir sölustarfsemina.
2.
Afgreiðsla atvinnu- og rannsóknasjóðs 2024
Málsnúmer 202311125
Lokaafgreiðsla vegna umsókna í atvinnu- og rannsóknasjóð 2024.
Umsækjendum í atvinnu- og rannsóknasjóð þakkað fyrir áhugaverðar umsóknir. Starfsmanni falið að upplýsa umsækjendur um niðurstöðu nefndar. Formleg afhending styrkja verður á Menningarhátíð Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem verður nánar auglýst síðar.
3.
Menningarstefna 2023
Málsnúmer 202306056
Menningarstefna sveitarfélagsins lögð fyrir nefndina.
Atvinnu- og menningarmálanefnd vísar menningarstefnunni til umsagnar í nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
4.
Eftirlitsskýrsla byggða- og listasafns 2023
Málsnúmer 202401114
Lögð er fram skýrsla lokaheimsóknar vegna 2. hluta eftirlits safnaráðs með viðurkenndum söfnum sem unnin var af Þórdísi Önnu Baldursdóttur. Árið 2019 var fyrri úttekt skýrslunnar unnin þar sem lagt var fram almennt mat á húsnæði og varðveislumálum og tillögur lagðar fram að úrbótum. Niðurstaða skýrslunnar er jákvæð og í henni má sjá að mikið verk hefur verið unnið í varðveislu aðfanga, forvörslu og í að koma varðveisluhúsi stofnunarinnar í gott ástand. Viðurkennd söfn innan stofnunarinnar eru listasafnið og byggðasafnið en skv. Safnalögum nr. 141 2011 er það verk Safnaráðs að hafa eftirlit með safnastarfsemi í landinu.
Nefndin þakkar starfsfólki Menningarmiðstöðvar fyrir vel unnin störf og ánægjulegt er að sjá hve mikið hefur áunnist. Mikilvægt er að áfram verði haldið á þessari braut.
5.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2023
Málsnúmer 202302057
Lagt fram til kynningar.
Heildartölur atvinnulausra á þessu svæði er 49 og skiptist svo:

780= 22
781= 20
785= 7

6.
Skaftfellingur vefútgáfa
Málsnúmer 202401116
Fyrsta grein vefútgáfu Skaftfellings hefur verið gefin út á vef Menningarmiðstöðvarinnar. Greinina má finna á vefsíðu stofnunarinnar á vefslóðinni: mmh.hornafjordur.is/skaftfellingur. Stefnt er að því að allar greinar Skaftfellings fari framvegis inn á vef Menningarmiðstöðvarinnar og þeim deilt þaðan út á helstu vefmiðla sveitarfélagsins.
Nefndin þakkar fyrir innsenda grein og hvetur öll sem hafa áhuga á að birta greinar á vefsvæðinu Skaftfellingi til að hafa samband við starfsfólk Menningarmiðstöðvarinnar.
7.
Verkáætlun MMH 2024
Málsnúmer 202401134
Verkáætlun starfsmanna Menningarmiðstöðvarinnar fyrir árið 2024 lögð fram til kynningar.
Nefndin þakkar kynninguna.
8.
Menningarstyrkir 2024
Málsnúmer 202312022
Lokaafgreiðsla vegna umsókna um menningarstyrki 2024.
Umsækjendum menningarstyrkja þakkað fyrir áhugaverðar umsóknir. Starfsmanni falið að upplýsa umsækjendur um niðurstöðu nefndar. Formleg afhending styrkja verður á Menningarhátíð Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem verður nánar auglýst síðar.

Emil Morávek vék af fundi undir þessum lið.