Atvinnu- og menningarmálanefnd
62. fundur
20. mars 2024
kl.
16:00
-
18:00
í Nýheimum
Nefndarmenn
Sigrún Sigurgeirsdóttir
formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson
aðalmaður
Tinna Rut Sigurðardóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Úthlutunarreglur menningarstyrkja 2024
Úthlutunarreglur menningarstyrkja yfirfarnar af atvinnu- og menningarmálanefnd.
Breytingar á úthlutunarreglum menningarstyrkja samþykktar einróma af atvinnu og menningarmálanefnd.
Breyttum úthlutunarreglum vísað til bæjarráðs.
Reglurnar verða birtar á vefsíðu sveitarfélagsins eftir samþykkt bæjarráðs.
Breyttum úthlutunarreglum vísað til bæjarráðs.
Reglurnar verða birtar á vefsíðu sveitarfélagsins eftir samþykkt bæjarráðs.
2.
Menningarstefna 2023
Menningarstefna sveitarfélagsins lögð fram til samþykkis.
Menningarstefnan hefur verið tekin fyrir í nefndum sveitarfélagsins og hefur stefnunni verið vel tekið í þeim öllum. Atvinnu- og menningarmálanefnd samþykkir stefnuna einróma og vísar henni til bæjarráðs til samþykkis.
3.
Samgönguhátíð
Í júli verða 50 ár frá vígslu brúar yfir Skeiðará en hún var vígð 14. júlí 1974.
Brúin þótti verkfræðilegt afrek á sínum tíma og með henni var lokið við hringveg Íslands. Sveitarfélagið mun halda upp á tímamótin og unnið er að dagskrá hátíðarhaldanna.
Áfram verður unnið að málinu.
Brúin þótti verkfræðilegt afrek á sínum tíma og með henni var lokið við hringveg Íslands. Sveitarfélagið mun halda upp á tímamótin og unnið er að dagskrá hátíðarhaldanna.
Áfram verður unnið að málinu.
4.
100 ára afmæli flugsögu Íslands
2. ágúst 2024 verða 100 ár liðin frá því að Eric Nelson lenti fyrstur manna flugvél á Hornafirði. Vigdís María mun sjá um að halda utan um hátíðarhöld vegna flugsins.
Starfsfólk MMH er reiðubúið að leggja hátíðarhöldunum lið ef þess er óskað.
Starfsfólk MMH er reiðubúið að leggja hátíðarhöldunum lið ef þess er óskað.
5.
80 ára afmæli lýðveldis Íslands
Lagt fram til kynningar.
Undanfarin ár hafa ungmennafélögin séð um utanumhald hátíðarhalda á 17. júní.
Í ár er 80 ára afmæli lýðveldisins og hefur forsætisráðherra skipað nefnd um afmælið. Nú vinnur hún að mótun dagskrár á Þingvöllum og hefur Stjórnarráð Íslands óskað eftir samstarfi við sveitarfélög landsins í tengslum við hátíðardagskrána með miðlun og hvatningu eins og hentar best á hverjum stað.
Atvinnu- og menningarmálanefnd hvetur ungmennafélögin, kóra og ferðafélög til kynna sér tillögur Stjórnarráðsins sem má sjá í meðfylgjandi bréfi.

6.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2023
Lagt fram til kynningar.
Í póstnúmerum 780-781 og 785 eru 30 á atvinnuleysisskrá
Það skiptist svo:
780: 16
781: 11
785: 3
Það skiptist svo:
780: 16
781: 11
785: 3
7.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Lagt fram til kynningar.