Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

63. fundur
24. apríl 2024 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir aðalmaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson aðalmaður
Níels Brimar Jónsson 2. varamaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Hönnun - Ráðhús - endurbætur 1.hæð
Málsnúmer 202309104
Sigurjón Andrésson fór yfir breytingar á 1. hæð ráðhússins þar sem áætlað er að Vatnajökulsþjóðgarður verði með skrifstofur. Framkvæmdirnar hafa í för með sér breytingar á móttöku og fremra rými Svavarssafns sem hefur verið nýtt til listsýninga.
Atvinnu- og menningarmálanefnd þakkar kynninguna og leggur til að farið verði í að undirbúa breytingar á geymsluhúsnæði í Álaleiru til að gera varanlegt varðveisluhúsnæði fyrir safnkost Svavarssafns sem uppfyllir kröfur til slíks húsnæðis.
2.
Svavarssafn 2024
Málsnúmer 202404089
Snæbjörn Brynjarsson safnvörður Svavarssafns kynnir komandi sumarsýningar safnsins.
Í byrjun júní opnar sýning í Svavarssafni sem er hluti af Umhverfingu 5 þar sem ýmsir listamenn sýna með Svavari Guðnasyni og öðrum listamönnum úr safneign. Sýningin Umhverfing 5 verður opnuð formlega á Humarhátíð þar sem fjölmargir listamenn sýna verk á mörgum stöðum í sveitarfélaginu. Um miðjan ágúst opnar Heimtaug, textílverkasýning Eirúnar Sigurðardóttur. Eirún er vel þekkt íslensk myndlistarkona sem sýnt hefur víða um heim, sér í lagi í gegnum Gjörningaklúbbinn. Jóna Imsland sýnir einnig síðar um haustið, einkasýningin ber nafnið Fjórir veggir, en þó Jóna hafi oft sýnt áður Hornafirði þá er þetta hennar fyrsta einkasýning í Svavarssafni. Í vetur verður svo sýningin Dýr, Avatar, Maskína, samsýning stýrt af sýningarstjóranum Joönnu Pawlowska þar sem persónusköpun í stafrænum veruleika er tekinn fyrir. Sú sýning beinist fyrst og fremst að ungu fólki og verða í boði námskeið með listamönnunum fyrir allt ungt fólk á Hornafirði með áhuga á að læra að vinna með nýmiðla.
3.
Málþing um öryggisinnviði
Málsnúmer 202404080
Sveitarfélögin Mýrdalshreppur, Skaftárhreppur og Hornafjörður efndu til samtals með hagsmunaaðilum vegna mikils álags á öryggisinnviði á svæðinu.Sveitarfélögin í Skaftafellssýslum boðuðu til málþings um öryggisinnviði miðvikudaginn 17. apríl. Málþingið var afar vel sótt enda eru innviðir sem tengjast öryggi íbúa og ferðamanna í Skaftafellssýslum mjög þandir og álag á viðbragðsaðila gríðarlegt.Í sveitarfélögunum þremur er íbúafjöldi 4200. Til samanburðar eru útgefin gistileyfi á svæðinu yfir 5600. Þetta þýðir að ferðamenn sem gista á hótelum og gistiheimilum á hverri einustu nóttu, nánast allt árið um kring, eru 40% fleiri en íbúar sveitarfélaganna. Þá er ótalinn sá mikli fjöldi sem gistir í heimagistingu, í ferðavögnum eða tjöldum, svo ekki sé talað um þá sem aka um svæðið en gista ekki.
Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar málþinginu sem haldið var í Nesjum 17. apríl. Ferðaþjónusta er mikilvæg stoð undir atvinnulífið í báðum Skaftafellssýslum en innviðir hafa ekki haldið í við vaxandi fjölda ferðafólks allt árið. Úrbætur á þjóðvegi eru mjög brýnar: vegurinn þarf að fara í löglega breidd, einbreiðum brúm þarf að útrýma og velja þarf veglínur með öryggi í huga. Einnig þarf að miða löggæslu og heilbrigðisþjónustu við fjölda fólks á svæðinu í stað þess að hugsa einungis um skráða íbúa á svæðunum. Nefndin styður hugmyndir um hringborð til að forgangsraða verkefnum og óskar bæjarstjórn velfarnaðar með framhald verkefnis.
4.
Humarhátíð 2024
Málsnúmer 202404087
Lagður er fram til kynningar og yfirferðar samningur sveitarfélagsins við humarhátíðarstjórn.
Humarhátíðin verður haldin hátíðlega 26.-28. júní í ár og unnið er að skipulagningu hátíðarinnar.
Atvinnu- og menningarmálanefnd hvetur einstaklinga og fyrirtæki til þátttöku.
Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt geta haft samband við hátíðarstjórn í gegnum póstinn: humarhatidarnefnd@gmail.com

Atvinnu- og menningarmálanefnd vísar drögum að samningi til bæjarráðs til samþykkis.
5.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2023
Málsnúmer 202302057
Lagt fram til kynningar.
Atvinnuleitendur:
780: 20
781: 10
785: 5
6.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
7.
Styrkir Uppbyggingarsjóðs
Málsnúmer 202404088
Nýlega var styrkjum Uppbyggingarsjóðs Suðurlands úthlutað, mörg verkefni úr Austur- Skaftafellssýslu fengu úthlutað styrk. Þá fékk Menningarmiðstöð Hornafjarðar veglega styrki í ár til sýningarhalds og ljóst er að menningarstarf í sveitarfélaginu er mjög frjótt.
Atvinnu- og menningarmálanefnd fagnar því hve mörg verkefni fengu úthlutun í ár og hvetur fólk að kynna sér verkefnin og njóta afraksturs vinnu þeirra sem styrki fengu.
8.
Barnastarf 2024
Málsnúmer 202404090
Dagskrá barnastarfs Menningarmiðstöðvarinnar fyrir árið 2024 lögð fram til kynningar.
Nefndin samþykkir dagskrá ársins og áfram er unnið að málinu.