Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

66. fundur
26. ágúst 2024 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Steindór Sigurjónsson aðalmaður
Bjarni Ólafur Stefánsson varamaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir Menningarmiðstöð
Árdís Erna Halldórsdóttir atvinnu og ferðamál
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2023
Málsnúmer 202302057
Lagt fram til kynningar.
Alls eru 25 á skrá í póstnúmerum sveitarfélagsins.

780: 13
781: 7
785: 4

2.
Svavarssafn 2024
Málsnúmer 202404089
Lagt fram til kynningar.
Nú er sýningunni Umhverfing 5 nýlega lokið. Hún vakti mikla athygli innan og utan Hornafjarðar og fékk m.a. umfjöllun í öllum helstu fjölmiðlum, en aðallega glæddi hún listalífið á svæðinu mikið. Þetta var stærsta samsýning í sögu Hornafjarðar með 52 listamönnum, sumum þeirra alþjóðlega þekktum, en öllum afar áhugaverðum á sinn hátt.

Atvinnu- og menningarmálanefnd þakkar starfsfólki Menningarmiðstöðvarinnar og listamönnum sem að sýningunni Umhverfing 5 komu fyrir góða sýningu og ráðleggur öllum að skoða þau verk sem enn eru uppi.

Um miðjan ágúst opnaði Heimtaug, textílverkasýning Eirúnar Sigurðardóttur. Eirún er vel þekkt íslensk myndlistarkona sem sýnt hefur víða um heim, sér í lagi í gegnum Gjörningaklúbbinn.


3.
Samgönguhátíð
Málsnúmer 202402142
Skeiðarárbrú, lengsta brú landsins, var vígð í júlí 1974, fyrir fimmtíu árum á 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar. Bygging brúarinnar þótti verkfræðilegt þrekvirki á sínum tíma. Með henni var lokið við Hringveginn sem eftir það tengdi byggðirnar umhverfis Ísland í samfellda heild. Í tilefni af þessum tímamótum standa Vegagerðin og Sveitarfélagið Hornafjörður fyrir málþingi og hátíðardagskrá föstudaginn 30. ágúst 2024. Málþing í HofgarðiMálþingið Hringnum lokað - fimmtíu ár frá opnun Hringvegar, fer fram í Hofgarði klukkan 13:00 til 15:00 föstudaginn 30. ágúst 2024. Þar verður fjallað um byggingu Skeiðarárbrúar og hvaða áhrif þessi samgönguframkvæmd hafði fyrir íbúa í Skaftafellssýslum og landsmenn alla. Aðgangur að málþinginu er ókeypis en skráning fer fram hér: https://forms.office.com/e/W3BuJcrZnHHátíðardagskrá við SkeiðarárbrúHátíðardagskrá fer fram við vesturenda Skeiðarárbrúar klukkan 15:30. Líkt og við vígslu brúarinnar árið 1974 verður ýmislegt gert til skemmtunar. Flutt verða stutt ávörp, Öræfingakórinn syngur, lúðrasveit Hornafjarðar spilar, klifurfélag Öræfinga sýnir listir sínar í brúnni. Listakonurnar Hanna Dís Whitehead og Eva Bjarnadóttir skreyta brúna með litríkum veifum í tilefni dagsins. 50 veifur, ein fyrir hvert ár.Boðið verður upp á léttar veitingar á hátíðinni, en ef illa viðrar verða þær í boði í Skaftafellsstofu, gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs í Skaftafelli, að lokinni athöfninni.
Nefndin hvetur fólk til að mæta.
4.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Málsnúmer 202003090
Lagt fram til kynningar.
5.
Stöðuleyfisumsókn Matarvagn á tjaldsvæði Hafnar
Málsnúmer 202408055
Nefndin veitir jákvæða umsögn miðað við framlögð gögn.