Atvinnu- og menningarmálanefnd
7. fundur
28. nóvember 2019
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason
formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir
varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Eldsmiðjumunir SF
Nefndin metur muni eldsmiðjunar mikils og mikil menningarleg verðmæti falin í þeim fyrir samfélagið. Nefndi vonast til að í framtíðinni verði sýningin sett upp aftur og á þeim forsendendum telur nefndin sig ekki geta orðið við óskinni.
2.
Vélar MMH í Hoffelli
Haft var samband við félag eldriborgara og kannaður áhugi á að fá vélar til uppgerðar. Félagið taldi ekki vera forsendur til þess. Því er starfsmanni falið að hafa samband við aðlila sem tengjast uppruna vélanna með það fyrir augum að kanna afstöðu þeirra til málsins.
3.
Fundargerðir: stjórnar og svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs 2019
Lagt fram til kynningar.
4.
Starfshópur um endurskoðun reglna um úthlutun byggðarkvóta
Miklir hagsmunir eru í húfi og þessvegna mikilvægt að vandað sé til verka. Nefndin tekur undir óskir SASS um frekari þátttöku þeirra í vinnu starfshóps um endurskoðun á ráðstöfun 5,3% aflaheimilda.
5.
Jólahátíð sveitarfélgsins
Til kynningar nefndin hvetur íbúa sveitarfélagsins til að taka þátt.
6.
Fjöldi ferðamanna 2019
Tölur um fjölda ferðamanna eru mikilvægar og mikilvægt að halda slíkri gagnasöfnun áfram.
7.
Styrkja og úthlutunarreglur menningarmálanefndar.
Til kynningar.
8.
Úthlutunarreglur atvinnu og rannsóknasjóðs
Til kynningar.
9.
Munir Sverris Scheving dánarbú
Til kynningar.
10.
Safnamál sveitarfélagsins
Nefndin leggur til að unnin verði heildar og framtíðarsýn safnamála í sveitarfélaginu.
11.
Málefni sláturhúss á Höfn
Nefndin ítrekar þá skoðun sína að mikilvægt er að slátrun leggist ekki af í sveitarfélaginu.