Atvinnu- og menningarmálanefnd
74. fundur
26. mars 2025
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
aðalmaður
Steindór Sigurjónsson
aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
formaður
Selma Ýr Ívarsdóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Kristín Vala Þrastardóttir
Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Kristín Vala Þrastardóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Enn hafa engar fundagerðir verið birtar á vefsíðu Vatnajökulsþjóðgarðs.Vatnajökulsþjóðgarður heyrir nú undir Náttúruverndarstofnun en heimasíða stofnunarinnar er í vinnslu.
Samkvæmt upplýsingum frá þjóðgarðinum hefur svæðisráð fundað en fundargerð barst ekki fyrir þennan fund.
2.
Jöklaleiðin 2025
Nejra kynnir stöðu Jöklaleiðarinnar.
Nefndin þakkar Nejru fyrir góða kynningu.
Nú eru þrír leggir Jöklaleiðarinnar langt komnir og nefndin telur æskilegt að klára þá sem fyrst: setja upp skiltin við göngustíginn í Öræfum, endurnýja brúna við Kolgrafardalsá og klára að stika þá leið. Þegar því er lokið þarf að taka ákvörðun um framhald Jöklaleiðarinnar.
Nú eru þrír leggir Jöklaleiðarinnar langt komnir og nefndin telur æskilegt að klára þá sem fyrst: setja upp skiltin við göngustíginn í Öræfum, endurnýja brúna við Kolgrafardalsá og klára að stika þá leið. Þegar því er lokið þarf að taka ákvörðun um framhald Jöklaleiðarinnar.
3.
Útboð: Hafnarbraut 27 Ráðhús 1.áfangi
Kynning á núverandi stöðu á fyrirhuguðum framkvæmdum á fyrstu hæð ráðhúss. Minnisblað sem forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar sendi á bæjarráð kynnt.
Brýnt er að ljúka uppsetningu á listaverkageymslu sem uppfyllir kröfur sem gerðar eru til slíkra geymslurýma.
4.
Úthlutunarreglur menningarstyrkja 2024
Umræður um mögulega bætt fyrirkomulag fyrir íbúa og umsækjendur menningarstyrkja.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
5.
Menningarmiðstöð
Forstöðumaður kynnir starfsemi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.
Nefndin þakkar fyrir ítarlega kynningu á starfsemi Menningarmiðstöðvarinnar og hvetur fólk til að mæta á viðburði í Fjölbreytileikavikunni 4.-10. apríl.