Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

8. fundur
18. desember 2019 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason formaður
Hólmfríður Bryndís Þrúðmarsdóttir varaformaður
Bjarni Ólafur Stefánsson aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Helga Ævarsdóttir
Fundargerð ritaði:
Eyrún Helga Ævarsdóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Málefni sláturhúss á Höfn
Málsnúmer 201809065
Nefndarmenn fóru í vettvangsferð og skoðuðu húsakynni sláturhússins á Höfn.
2.
Styrkir atvinnu og menningarmálanefndar
Málsnúmer 201910040
Lokadagur skila á umsóknum um menningastyrki var 6.desember þetta árið.
Alls bárust 11 umsóknir um menningarstyrki í ár. Fagnar nefndin innsendum umsóknum og vinnur áfram að málinu.
3.
Vélar MMH í Hoffelli
Málsnúmer 201905077
Vélarnar hafa verið myndaðar og unnið er að frekari skráningu þeirra. Starfsmaður nefndar vinnur áfram að málinu
4.
Aðfangastefna- og vörslustefna um einkaskjalasöfn
Málsnúmer 201912074
Nefndinni fagnar framangreindri vinnu og samþykkir Aðfanga- og vörslustefnu um einkaskjalasöfn. Máli vísað til bæjarráðs.
5.
Fundargerðir: stjórnar og svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs 2019