Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

85. fundur
25. febrúar 2026 kl. 16:00 - 18:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Steindór Sigurjónsson varaformaður
Gunnar Ásgeirsson aðalmaður
Selma Ýr Ívarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Tinna Rut Sigurðardóttir aðalmaður
Emil Örn Moravek Jóhannsson 1. varamaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir formaður
Starfsmenn
Kristín Vala Þrastardóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Kristín Vala Þrastardóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Vatnajökulsþjóðgarður - Fundargerðir stjórnar og svæðisráðs - 2026
2.
Markaðsstofa Suðurlands
Málsnúmer 202602117
Á kynningarfundi Markaðsstofu Suðurlands fyrir stjórnsýslu sveitarfélagsins var vakin athygli á upplýsingaskorti stofunnar til sveitarfélagsins og til að koma til móts við það var m.a. ákveðið að Atvinnu- og menningarmálanefnd taki fundargerðir Markaðsstofunnar til kynningar á mánaðarlegum fundum sínum. Hér eru því allar fundargerðir frá síðasta aðalfundi kynntar til upplýsingar og framvegis verður þeim miðlað með reglubundnum hætti.
Lagt fram til kynningar.
Nefndin felur starfsmanni nefndar að kanna hvort Markaðsstofa Suðurlands geti staðið fyrir málþingi um gjaldtöku sambærilegt því sem gert var af Markaðsstofu Vesturlands í Stykkishólmi í liðinni viku.
3.
Skaftfellingur
Málsnúmer 202509069
Fyrsti fundur ritnefndar 25. útgáfu Skaftfellings fór fram 11. febrúar síðastliðinn.Stefnt er að útgáfu síðar á árinu og eru áhugasamir um útgefið efni hvattir til að hafa samband við Kristínu Völu, ristjóra og forstöðumann Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, kristinvala@hornafjordur.is
Nefndin þakkar kynninguna.
4.
Barna og ungmennaþing 2025
Málsnúmer 202504082
Þann 18. nóvember var haldið Barna- og ungmennaþing á Hornafirði, þar sem yfir 300 börn og ungmenni tóku þátt. Grunnskólar sveitarfélagsins og framhaldsskólinn tóku þátt, ásamt fulltrúum úr atvinnulífinu og RÍN-hópum sem kynntu sínar nálganir á þeim málstofum sem voru til umfjöllunar. Einnig tók elsti árgangur leikskólanna þátt og fór yfir málin.Grunnniðurstöður þingsins voru kynntar tveimur dögum síðar eða þann 20.nóvember, en Ungmennaráð hefur óskað eftir því að starfsfólk fræðslusviðs kynni nánari niðurstöður fyrir öllum ráðum, fastanefndum og starfsstöðvum sveitarfélagsins.
Nefndin þakkar kynninguna. Það er ánægjulegt að sjá hve mikil breidd var í viðfangsefnum barna- og ungmennaþings sem ungmennaráð skipulagði. Niðurstöðurnar voru almennt jákvæðar og margar góðar ábendingar komu fram um það sem betur mætti fara. Nú þarf starfsfólk sveitarfélagsins, kjörnir fulltrúar og við öll sem samfélag að taka höndum saman og bregðast við tillögunum eftir því sem hægt er.
5.
Staða Héraðsskjalasafns Austur Skaftafellssýslu
Málsnúmer 202602116
Upp hafa komið fjölmargar og áhugaverðar hugmyndir um hvernig megi auka miðlun héraðsskjalasafnsins á hinum ýmsu skjölum.Forstöðumaður kynnir verkefni skjalasafnsins og mögulegar lausnir.
Atvinnu- og menningarmálanefnd tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í erindi um stöðu og umfang starfsemi Héraðsskjalasafns Austur-Skaftafellssýslu og telur ljóst að verkefnastaða safnsins kalli á viðbrögð. Nefndin felur starfsmanni að kynna stöðu mála og mögulegar úrbætur við bæjarráð, með hliðsjón af framkomnu mati á mannaflaþörf og auknu umfangi verkefna.
Jafnframt tekur nefndin jákvætt í erindi um að gera Skaftfelling aðgengilegan á vefnum timarit.is og felur starfsmanni að kanna kostnað og framkvæmd vegna mögulegrar birtingar.
Málinu vísað til bæjarráðs.
6.
Menningarhátíð 2026
Málsnúmer 202602110
Tilnefningar til menningarverðlauna ársins lagðar fyrir nefndina sem tekur afstöðu til þeirra. Drög að dagskrá rædd.
7.
Atvinnu- og rannsóknarsjóður 2026
Málsnúmer 202512055
Nefndin fer yfir innsendar umsóknir til atvinnu- og rannsóknarsjóðs ásamt matsgögnum. Alls bárust sjóðnum 11 umsóknir að styrkjum, samtals að upphæð 9.683.000 króna en til úthlutunar eru 1.558.665 krónur.
Nefndin þakkar fyrir innsendar umsóknir og felur starfsmanni að tilkynna umsækjendum um úthlutun.
Styrkir verða veittir við hátíðlega athöfn á Menningarhátíð Sveitarfélagsins Hornafjarðar í Nýheimum föstudaginn 6. mars klukkan 17.
Öll velkomin og hvött til að fjölmenna.
8.
Starfsemi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar 2026
Málsnúmer 202602126
Forstöðumaður kynnir starfsemi Menningarmiðstöðvarinnar.
Nefndin þakkar fyrir kynninguna.