Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

86. fundur
25. mars 2026 kl. 16:00 - 19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir aðalmaður
Steindór Sigurjónsson varaformaður
Selma Ýr Ívarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Tinna Rut Sigurðardóttir aðalmaður
Emil Örn Moravek Jóhannsson 1. varamaður
Bjarni Ólafur Stefánsson varamaður
Starfsmenn
Kristín Vala Þrastardóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Kristín Vala Þrastardóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Vatnajökulsþjóðgarður - Fundargerðir stjórnar og svæðisráðs - 2026
Málsnúmer 202602128
Fundagerðir Vatnajökulsþjóðgarðs lagðar fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
2.
Markaðsstofa Suðurlands - fundargerðir 2026
Málsnúmer 202602117
Engar fundagerðir hafa verið birtar á vef Markaðsstofu Suðurlands frá síðasta fundi.
Málinu frestað til næsta fundar.
3.
Skaftfellingur
Málsnúmer 202509069
Fundagerð ritnefndar Skaftfellings lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
4.
Staða innanlandsflugs til Hafnar 2026
Málsnúmer 202603101
Atvinnu- og menningarmálanefnd óskaði eftir upplýsingum frá Icelandiar um flugsamgöngur til Hafnar hvað varðar t.d. nýtingu flugsæta, tíðni aflýsinga, tíðni aukafluga vegna þess, tíðni komu stærri flugvéla og möguleikar á fjölgun flugferða.Fulltrúar Icelandir mæta rafrænt á fundinn og segir frá reynslu Icelandair með fluglegginn til Hafnar.
Nefndin þakkar Icelandair fyrir góð viðbrögð við erindinu og Tómasi, Stefáni og Snorra fyrir kynninguna.
Ánægjulegt er að flugleggurinn gangi vel að mati Icelandair en nefndin áréttar mikilvægi þess að reglulegar flugsamgöngur til Hornafjarðar séu tryggðar.
5.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2026
Málsnúmer 202603100
Byggða- og nýsköpunarfulltrúi sveitarfélagsins kynnir samantekt um atvinnuleysi í sveitarfélaginu.
Nefndin þakkar fyrir kynninguna.
Misræmi er í gögnum sem sveitarfélaginu voru send og mun Byggða- og nýsköpunarfulltrúi sveitarfélagsins vinna áfram að málinu og óska eftir frekari upplýsingum frá Vinnumálastofnun.
6.
Búfjársamþykkt 2026
Málsnúmer 202504074
Unnið hefur verið að uppfærslu á búfjársamþykkt sveitarfélagsins Drög að samþykktinni lögð fram til umræðu.
Nefndin óskar eftir kynningu á næsta fundi og frestar umræðunni fram að því.
7.
Menningarhátíð 2026
Málsnúmer 202602110
Menningarhátíð sveitarfélagsins fór fram í Nýheimum 6. mars síðastliðinn. Mikill fjöldi íbúa tók þátt í hátíðinni og alls hlutu 24 verkefni styrk frá sveitarfélaginu auk þess sem Körfuknattleiksdeild Sindra, Leikskólinn Sjónarhóll og Þórgunnur Torfadóttir og Ásgrímur Ingólfsson, eigendur sumarbústaðarins Karlsfells í Lóni, hlutu umhverfisviðurkenningar sveitarfélagsins. Þá voru átta tilnefningar til menningarverðlauna ársins. Tilnefndir voru: Ágústa Margrét Arnardóttir- Björn Gísli Arnarson- Hornfirskir tónlistarmenn- Jóhanna Stígsdóttir- Jón Haukur Hauksson- Karl Skírnisson- Sigurður Pálmi HafþórssonMenningarverðlaun ársins hlaut Sigurður Pálmi Hafþórsson fyrir hugmynd sína, frumkvæði og dugnað við framkvæmd Graffíls - listahátíðar ungs fólks. Hátíðin fór fram síðasta sumar og hefur vakið athygli sem vettvangur fyrir unga listamenn og skapandi starf í samfélaginu. Graffíll er aftur á dagskrá á Höfn 18. júlí n.k. og hvetjum við íbúa til að taka daginn frá.Nánar má lesa um styrkveitingar hátíðarinnar hér: https://www.hornafjordur.is/stjornsysla/sveitarfelagid/frettasafn/menningarhatid-hornafjardar-24-verkefni-hlutu-styrk Reglur um Menningarverðlaun Sveitarfélagsins Hornafjarðar voru samþykktar af menningarmálanefnd 1998, nefndin tekur reglurnar fyrir og metur hvort ástæða sé til að uppfæra þær.
Atvinnu- og menningarmálanefnd óskar öllum til hamingju með Menningarhátíð sveitarfélagsins og sérstakar heillaóskir til Sigurðar Pálma Hafþórssonar með þau verkefni sem hann mun beita sér fyrir.

Nefndin felur starfsmanni að vinna með breytingartillögur á reglum um Menningarverðlaun sveitarfélagsins og leggja fyrir næsta fund.
8.
Atvinnu- og rannsóknarsjóður 2026
Málsnúmer 202512055
Reglur fyrir Atvinnu- og rannsóknasjóð Sveitarfélagsins Hornafjarðar voru samþykktar af Atvinnumálanefnd 2015, nefndin skoðar hvort uppfæra þurfi reglurnar.
Starfsmanni falið að vinna áfram með tillögur að breytingum samkvæmt umræðum á fundi.
9.
Verkefnastyrkir hjá atvinnu- og menningarmálanefnd og fræðslu- og frístundanefnd 2025-26
Málsnúmer 202512087
Reglur um verkefnastyrki Sveitarfélagsins Hornafjarðar voru endurskoðaðar á liðnu ári og nú hefur verið úthlutað skv. nýjum reglum, nefndin yfirfer ferlið og skoðar hvort ástæða sé til að bæta verklag, úthlutunarreglur eða matsblað sem þeim fylgja.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu með þeim tillögum að breytingu sem fram komu á fundi nefndar.
10.
Staða Héraðsskjalasafns Austur-Skaftafellssýslu
Málsnúmer 202602116
Á síðasta fundi nefndarinnar kom fram erindi um stöðu og umfang starfsemi Héraðsskjalasafns Austur-Skaftafellssýslu og ljóst að verkefnastaða safnsins kalli á viðbrögð. Nefndin fól starfsmanni að kynna stöðu mála og mögulegar úrbætur við bæjarráð, með hliðsjón af framkomnu mati á mannaflaþörf og auknu umfangi verkefna. Bæjarráð óskar eftir frekari gögnum um starfsmannafjölda, verkefni og stöðugildi hjá Menningarmiðstöðinni. Hér eru lögð fram drög að útttekt á starfsemi stofnunarinnar.
Nefndin þakkar fyrir kynninguna.
11.
Starfsemi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar 2026
Málsnúmer 202602126
Forstöðumaður kynnir starfsemi Menningarmiðstöðvarinnar.
Nefndin þakkar fyrir kynninguna og hvetur íbúa til að taka þátt í starfi Menningarmiðstöðvarinnar.

- á morgun, fimmtudaginn 26. mars kl.20 mætir sagnfræðingurinn Kristín Svava Tómasdóttir í Nýheima með erindi sitt "Versti Íslendingur sögunnar? Jóhanna Knudsen og velferð samfélagsins". Sjá nánar hér: https://www.hornafjordur.is/stjornsysla/sveitarfelagid/frettasafn/fjolbreytileikavikan-a-menningarmidstod-hornafjardar-2026
- Laugardaginn næsta, 28. mars kl.17-19 verður blúsdjamm í Gömlubúð
- Sunnudaginn 29. mars verður skákkvöld eða "multicultural chess night" í Gömlubúð þar sem allir geta tekið skák saman óháð aldri, bakgrunni eða tungumálakunnáttu.

Fleiri viðburðir verða á dagskrá í apríl, meðal annars fyrsta sunnlenska Barnamenningarhátíðin, svo fylgist vel með á miðlum Menningarmiðstöðvarinnar.

Þá er íbúum boðið að taka virkan þátt í sýningu byggðasafnsins í Gömlubúð með vali á munum. Fylgist með þessu og fleiru skemmtilegu á facebook síðu safnsins, Byggðasafn Austur-Skaftafellssýslu


Páskaopnun á bókasafni:
Mánudaginn 30. mars - opið kl.11-15
Þriðjudaginn 31. mars - opið kl.11-15
Miðvikudaginn 1. apríl - opið kl.11-15
Lokað yfir páskana og opnum aftur kl.10 þriðjudaginn 7. apríl.

Páskaopnun á Svavarssafni:
Mánudaginn 30. mars - opið kl.9-17
Þriðjudaginn 31. mars - opið kl.9-17
Miðvikudaginn 1. apríl - opið kl.9-17
Lokað yfir páskana og opnum aftur kl.9 þriðjudaginn 7. apríl.

Opnun í Gömlubúð:
Opið alla daga kl.14-20