Atvinnu- og menningarmálanefnd
88. fundur
27. maí 2026
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
formaður
Tinna Rut Sigurðardóttir
aðalmaður
Níels Brimar Jónsson
1. varamaður
Starfsmenn
Kristín Vala Þrastardóttir
Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Kristín Vala Þrastardóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Vatnajökulsþjóðgarður - Fundargerðir stjórnar og svæðisráðs - 2026
Lagt fram til kynningar.
Nefndin vekur athygli á og tekur undir bókun fulltrúa Ferðamálafélags Austur-Skaftafellssýslu undir 5. lið 156. fundar svæðisráðs suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs.
"Fulltrúi Ferðamálafélags Austur-Skaftafellssýslu lýsir yfir óánægju með vinnubrögð
Náttúruverndarstofnunar við gerð samninga við rekstraraðila sem starfa innan
þjóðgarðsins.
Til dæmis þá er núverandi samningur við rekstraraðila veitingasölu í Skaftafelli að
renna út í lok maí og útboð fyrir veitingarekstur í Skaftafelli var að fara í auglýsingu á
dögunum, því ferli lýkur í lok apríl.
Það gengur ekki að verið sé að ganga frá samningum um atvinnurekstur innan
þjóðgarðsins með mánaðar fyrirvara.
Öll fyrirtæki þurfa fyrirsjáanleika í rekstri. Lengri samningar sem gerðir eru tímanlega
eru nauðsyn fyrir rekstur fyrirtækja.
Undirbúningur fyrir reksturinn, ráðning starfsfólks, samningar við birgja og skipulag
þarf lengri tíma en mánuð eða tvo.
Ítrekað hefur fulltrúi Ferðamálafélagsins kvartað undan ófyrirsjáanleika og seinagangi
í útboðs- og samningsgerð hjá Vatnajökulsþjóðgarði/Náttúruverndarstofnun.
Það er alveg ljóst hvenær samningar renna út og því ekki stór krafa að ætlast til þess
að búið sé að undirbúa útboð eða samningsgerð með meiri fyrirvara"

2.
Markaðsstofa Suðurlands - fundargerðir 2026
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
3.
Skaftfellingur
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
4.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2026
Byggða- og nýsköpunarfulltrúi sveitarfélagsins kynnir samantekt um atvinnuleysi í sveitarfélaginu.
Nefndin þakkar fyrir kynninguna.
5.
Atvinnu- og rannsóknarsjóður 2026
Starfsmaður kynnir uppfærðar reglur og matsramma fyrir Atvinnu- og rannsóknarsjóð.
Nefndin samþykkir uppfærðar reglur og felur starfsmanni að kynna gögnin fyrir nýrri nefnd til staðfestingar.
6.
Verkefnastyrkir hjá atvinnu- og menningarmálanefnd og fræðslu- og frístundanefnd 2025-26
Starfsmaður kynnir uppfærðar reglur og matsramma fyrir verkefnastyrki sveitarfélagsins.
Nefndin samþykkir uppfærðar reglur og felur starfsmanni að kynna gögnin fyrir nýrri nefnd til staðfestingar.
7.
Menningarhátíð 2026
Starfsmaður kynnir uppfærðar reglur fyrir Menningarverðlaun sveitarfélagsins.
Nefndin samþykkir uppfærðar reglur og felur starfsmanni að kynna gögnin fyrir nýrri nefnd til staðfestingar.
8.
Mikligarður
Starfsmaður kynnir stöðu á Miklagarði til útleigu til listamanna m.t.t. öryggismála. Viðhorf bæjarbúa og áhugi listamanna á nýtingarmöguleikum Miklagarðs eru skýr en leita þarf leiða til að nýta rými hússins svo öruggt sé. Nú hýsir Mikligarður geymslueiningu fyrir Byggðasafnið og Verbúðina sem er opin gestum alla daga, þó ekki væri önnur starfsemi í húsinu þarf að tryggja öryggi í þessum rýmum, þá sérstaklega brunavarnir en þessum málum hefur ekki verið sinnt undanfarin ár.
Nefndin telur ekki rétt að úthluta fleiri rýmum í húsinu í núverandi ástandi þar sem bæði raflagnir þarfnast endurnýjunar og brunavörnum er ábótavant. Óvissa ríkir um framtíð hússins vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á nýjum miðbæ og því ekki tímabært að fara í þær úrbætur sem húsið þarfnast, að svo stöddu.
Nefndin leggur áherslu á að fundin verði leið til þess að gera Miklagarð að vöggu menningar og lista.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
Nefndin leggur áherslu á að fundin verði leið til þess að gera Miklagarð að vöggu menningar og lista.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
9.
Staða Héraðsskjalasafns Austur-Skaftafellssýslu
Á fundi nefndarinnar í mars var verkefnastaða héraðsskjalasafnsins rædd og þörf á nýju stöðugildi kynnt. Starfsmaður kynnir breytingar á launaáætlun Menningarmiðstöðvarinnar fyrir árið 2026 sem launafulltrúi hefur tekið saman að ósk bæjarráðs.
Nefndin þakkar fyrir kynninguna og hvetur nýja bæjarstjórn til að samþykkja aukið stöðugildi meðfram fjárhagsáætlunargerð fyrir 2027 svo hægt sé að auglýsa starfið sem fyrst.
10.
Starfsemi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar 2026
Forstöðumaður kynnir starfsemi Menningarmiðstöðvarinnar.
Nefndin þakkar fyrir kynninguna og gott samstarf á kjörtímabilinu.
Nefndin leggur áherslu á að starf verkefnastjóra markaðsmála og viðburða verði áfram undir Menningarmiðstöð Hornafjarðar enda er það sú stofnun sem sér um viðburðahald á vegum sveitarfélagsins og menningarstefnu og starfsstefnu Menningarmiðstöðvar kemur fram að markaðsmál séu einnig undir stofnuninni. Verkefnastjóri markaðsmála og viðburða er dýrmætur starfinu í Gömlubúð og mikil áhersla úr samfélaginu hefur verið á blómlegt starf þar.