Atvinnu- og menningarmálanefnd
89. fundur
23. júní 2026
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnar Ásgeirsson
formaður
Selma Ýr Ívarsdóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Ágústa Margrét Arnardóttir
varaformaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Alexander Vigfússon
aðalmaður
Róslín Alma Valdemarsdóttir
varamaður
Hilmar Þór Sigurjónsson
Áheyrnarfulltrúi til vara
Starfsmenn
Kristín Vala Þrastardóttir
Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Kristín Vala Þrastardóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Erindisbréf atvinnu- og menningarmálanefndar
Erindisbréf atvinnu- og menningarmálanefndar lagt fram til kynningar. Aðal- og varamenn sitja undir þessum lið.
Öll erindisbréf sveitarfélagsins er hægt að nálgast inn á heimasíðu sveitarfélagsins, https://www.hornafjordur.is/cdn/documents/Erindisbref/Erindisbref-fraedslu-fristundarnefndar-2022.pdf?v=1770391776. Fram kom að væntanlega yrði erindisbréfið uppfært á næstu vikum.
2.
Fundargátt sveitarfélagsins - kynning fyrir nefnd
Kynning á fundargátt sveitarfélagsins https://fundargatt.hornafjordur.is/login/. Aðal- og varamenn sitja undir þessum lið.
Jóna Benný og Arndís fóru yfir fundargáttina hvar hún væri og hvernig hún virkaði. Aðal- og varamenn hafa fengið leiðbeiningar sendar í tölvupósti. Farið yfir siðareglur og þagnarskyldu nefndarmanna og skjal um þagnarskyldu þeirra hefur verið sent aðal- og varamönnum til rafrænnar undirritunnar. Þá var farið yfir samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa ásamt ýmsu öðru gagnlegu efni fyrir nefndarmenn.
3.
Vatnajökulsþjóðgarður - Fundargerðir stjórnar og svæðisráðs - 2026
Lagt fram til kynningar.
Atvinnu- og menningarmálanefnd tekur undir með stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs í bókun hennar undir 7. lið, Umræða um Vatnajökulsþjóðgarð í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Þar er vakin athygli á væntingum heimamanna til þjóðgarðsins. Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur ríka áherslu á, ekki síst nú við endurskoðun atvinnustefnu þjóðgarðsins, að við mótun framtíðarfyrirkomulags á atvinnustarfsemi innan Vatnajökulsþjóðgarðs verði að horfa til byggðasjónarmiða, fjölbreytni atvinnulífs og langtímahagsmuna samfélagsins, sérstaklega í ljósi þeirrar auknu samþjöppunar sem virðist eiga sér stað núna í íslenskri ferðaþjónustu. Fyrirtæki í sveitarfélaginu hafa byggt upp starfsemi sína yfir margra ára skeið með fjárfestingum og þróun á þjónustu innan Vatnajökulsþjóðgarðs og er fyrirsjáanleiki á rekstrarleyfum nauðsynlegur þar sem slíkt getur verið vendipunktur í rekstri fyrirtækjanna en þau hafa mikil áhrif á atvinnulíf og búsetu í sveitarfélaginu. Er því einnig mikilvægt að við undirbúning á gerð nýrra samninga verði útfærsla á innviða- og auðlindagjaldi útfært í samvinnu við hagaðila, svo sem Sveitarfélagið Hornafjörð, svæðisráð og stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs.
Einnig vill nefndin vekja athygli á opnum fundi sem fer fram á Hrollaugsstöðum miðvikudaginn 24. júní klukkan 17:00 um framtíðaruppbyggingu við Jökulsárlón. Þar fara fulltrúar stýrihóps um framtíðaruppbyggingu við Jökulsárlón yfir þá vinnu sem unnin hefur verið. Einnig gefst þar íbúum og öðrum hagsmunaaðilum kostur á að koma sjónarmiðum sínum og ábendingum á framfæri.
Einnig vill nefndin vekja athygli á opnum fundi sem fer fram á Hrollaugsstöðum miðvikudaginn 24. júní klukkan 17:00 um framtíðaruppbyggingu við Jökulsárlón. Þar fara fulltrúar stýrihóps um framtíðaruppbyggingu við Jökulsárlón yfir þá vinnu sem unnin hefur verið. Einnig gefst þar íbúum og öðrum hagsmunaaðilum kostur á að koma sjónarmiðum sínum og ábendingum á framfæri.
4.
Markaðsstofa Suðurlands - fundargerðir 2026
Engar nýjar fundagerðir hafa verið birtar frá síðasta fundi nefndarinnar.
Lagt fram til kynningar.
5.
Skaftfellingur
Fundargerð fimmta fundar ritnefndar Skaftfellings lögð fram til kynningar. Ritnefndin hefur óskað eftir innsendu efni frá fjölbreyttum aðilum og von er á innihaldsmikilli útgáfu fyrir árslok.
Lagt fram til kynningar.
6.
Atvinnu- og rannsóknarsjóður 2026
Uppfærðar úthlutunarreglur og matsblöð atvinnu- og rannsóknarsjóðs lagðar fram til samþykktar.
Nefndin frestar samþykki nýrra úthlutnarreglna og matsblaða til næsta fundar.
Nefndin vekur athygli á að fjármagn sjóðsins er takmarkað og finna þarf leiðir til að efla sjóðinn.
Nefndin vekur athygli á að fjármagn sjóðsins er takmarkað og finna þarf leiðir til að efla sjóðinn.
7.
Verkefnastyrkir hjá atvinnu- og menningarmálanefnd og fræðslu- og frístundanefnd 2025-26
Uppfærðar úthlutunarreglur og matsblöð verkefnastyrkja sveitarfélagsins lagðar fram til samþykktar.
Nefndin frestar samþykki nýrra úthlutnarreglna og matsblaða til næsta fundar.
8.
Menningarhátíð 2026
Uppfærðar reglur um menningarverðlaun sveitarfélagsins lagðar fram til samþykktar.
Nefndin frestar samþykki nýrra reglna til næsta fundar.
9.
Stofnskrá Menningarmiðstöðvar 2021-25
Komið er að endurskoðunar á stofnskrár Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Eldri stofnskrá lögð fram til kynningar, unnið er að drögum um nýja stofnskrá.
Lagt fram til kynningar. Nefndin ákveður að taka stofnskrá til endurskoðunar. Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
10.
Sýningarstefna Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar
Komið er að endurskoðunar sýningarstefnu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Eldri sýningarstefna lögð fram til kynningar og drög að uppfærðri stefnu kynnt.
Lagt fram til kynningar. Nefndin ákveður að taka sýningarstefnu til endurskoðunar. Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
11.
Menningarstefna 2023
Menningarstefna sveitarfélagsins lögð fram til kynningar. Á kjörtímabilinu þarf að endurnýja stefnuna, vakin er athygli á að Samband Sunnlenskra sveitarfélaga hyggst einnig ráðast í gerð fyrstu samræmdu menningarstefnu landshlutans næsta vetur.
Lagt fram til kynningar. Nefndin ákveður að taka menningarstefnu sveitarfélagsins til endurskoðunar. Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
12.
Humarhátíð 2026
Humarhátíð 2026 verður haldin á Höfn í Hornafirði næstu helgi. Hátíðin er bæjarhátíð sveitarfélagsins og einn stærsti viðburður ársins. Sveitarfélagið leggur til fjármagn í hátíðina en það eru framtaksamir íbúar, félagasamtök og fyrirtæki sem gera hátíðina að veruleika.Humarhátíðarnefnd hefur skipulagt fjölbreytta og metnaðarfulla dagskrá með viðburðum fyrir alla aldurshópa.
Nefndin þakkar Humarhátíðarnefnd fyrir framtak sitt og hvetur íbúa til að fjölmenna á hátíðina.
13.
Skýrsla vinnuhóps Öruggara Suðurlands um úti- og bæjarhátíðir
Skýrsla vinnuhóps Öruggara Suðurlands um úti- og bæjarhátíðar lögð fram.
Atvinnu- og menningarmálanefnd styður framlagðar tillögur spretthópsins um samræmingu á ferlum og eflingu dagskrár fyrir fjölskyldur og ungmenni á úti- og bæjarhátíðum á Suðurlandi.
14.
Starfsemi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar 2026
Forstöðumaður kynnir helstu verkefni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar
Nefndin þakkar fyrir kynninguna.