Fara í efni

Atvinnu- og menningarmálanefnd

90. fundur
26. ágúst 2026 kl. 16:00 - 20:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gunnar Ásgeirsson formaður
Ágústa Margrét Arnardóttir varaformaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Elías Tjörvi Halldórsson aðalmaður
Alexander Vigfússon aðalmaður
Starfsmenn
Kristín Vala Þrastardóttir Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Kristín Vala Þrastardóttir Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Úttekt á stöðu Atvinnu- og rannsóknarsjóðs
Málsnúmer 202608064
Úttekt byggða- og nýsköpunarfulltrúi sveitarfélagsins á stöðu verkefna sem hlotið hafa styrk úr atvinnu- og rannsóknarsjóði frá árinu 2017 lögð fram til kynningar og umræðu.
Nefndin þakkar Nejru fyrir samantekt og kynningu.
Ljóst er að styrkir úr atvinnu- og rannsóknarsjóði skipta máli og full ástæða er til að efla sjóðinn enn frekar.
2.
Áætlun um refaveiðar
Málsnúmer 202608055
Áætlun um refaveiðar 2026-2028 sem gefin er út af Náttúruverndarstofnun lögð fram til kynningar. Umhverfisfulltrúi sveitarfélagsins kynnir málefnið og samninga sveitarfélagsins um refaveiðar við Náttúruverndarstofnun.
Atvinnu- og menningarmálanefnd vill árétta mikilvægi refaveiða en í samtali við bændur og veiðimenn hefur orðið meira vart við fullorðinn ref en áður. Skýra þarf tilkynningarferli til Náttúruverndarstofnunnar fyrir bændum og sveitarfélögum. Þó er ekki hægt að festa hönd á nákvæman fjölda tjóna af völdum refa en nefna má að á ári hverju vantar lömb af fjalli og má geta sér til að hluti þess sé af þeirra völdum. Eins verður vart við bitna hreindýrskálfa og ágang tófu í kringum æðarvörp. Veiðar á tófu leiða til lágmörkun tjóna og yrðu þær minnkaðar má leiða líkur að því að tjónin yrðu frekari.
Í skýrslunni kemur jafnframt fram að sýni vanti af Suðausturlandi og hvetur nefndin veiðimenn til að koma sýnum og grenjaskráningum til Náttúrufræðistofnunnar í framtíðinni í samvinnu við sveitarfélagið.
3.
Vatnajökulsþjóðgarður - Fundargerðir stjórnar og svæðisráðs - 2026
Málsnúmer 202602128
Lagt fram til kynningar.
Atvinnu- og menningarmálanefnd tekur undir bókun svæðisráðs undir 3. lið 159. fundar Svæðisráðs suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs um mikilvægi þess að horft verði til byggðasjónarmiða við mótun á framtíð þjóðgarðsins.
4.
Markaðsstofa Suðurlands - fundargerðir 2026
5.
Skaftfellingur
Málsnúmer 202509069
Fundargerð sjötta fundar ritnefndar Skaftfellings lögð fram til kynningar.Vinna við ritið gengur vel og samkvæmt áætlun.
Lagt fram til kynningar.
6.
Atvinnu- og rannsóknarsjóður 2026
Málsnúmer 202512055
Uppfærðar úthlutunarreglur og matsblöð atvinnu- og rannsóknarsjóðs lagðar fram til samþykktar. Málefninu var frestað til næsta fundar.
Unnið er áfram að úthlutunarreglum og matsblaði í samræmi við umræður á fundinum.
7.
Verkefnastyrkir hjá atvinnu- og menningarmálanefnd og fræðslu- og frístundanefnd 2025-26
Málsnúmer 202512087
Uppfærðar úthlutunarreglur og matsblöð verkefnastyrkja sveitarfélagsins lagðar fram til samþykktar. Málefninu var frestað til næsta fundar.
Nefndin samþykkir samhljóða framlagðar reglur og matsblað.
8.
Menningarhátíð 2026
Málsnúmer 202602110
Uppfærðar reglur um menningarverðlaun sveitarfélagsins lagðar fram til samþykktar. Málefninu var frestað til næsta fundar.
Nefndin samþykkir samhljóða framlagðar reglur.
9.
Mikligarður
Málsnúmer 202605818
Eftirspurnir vegna rýma í Miklagarði hafa verið miklar og viðvarandi. Fjögur rými hússins hafa verið nýtt fyrir vinnustofur listafólks, tvö rými eru á vegum Byggðarsafns Hornafjarðar (sýningarrýmið Verbúðin sem opin er alla daga kl.14-20 og geymsla safnmuna). Auk þess eru aðrir aðilar með aðgang að húsinu og rými nýtt í geymslur sveitarfélagsins. Fyrr á árinu var fyrirhugað að fara í stefnumótun á útleigureglum rýma fyrir listamenn í því ástandi sem húsið er. Við nánari skoðun er augljóst að ástand hússins er óforsvaranlegt hver svo sem tilgangur og innheimta af leigurýmum hússins er. Lagðar eru fram áskoranir sem snúa að rekstir og viðhaldi hússins auk umsagnar slökkviliðs.
Ljóst er að við óbreyttar aðstæður er ekki viðunandi að hafa starfsemi í Miklagarði sökum slæms ástand hússins. Enginn grundvöllur er fyrir því að vinnurými eða geymsla safngripa sé staðsett í húsinu þar sem það uppfyllir hvorki öryggis- né lagalegar kröfur. Staðreyndin er að það verði að víkja og finna aðrar lausnir fyrir þar til húsið hefur verið gert upp.
Á næstunni er stefnt á íbúakosningu um miðbæ á Heppusvæðinu og mun þá koma í ljós hvort Landsbyggð muni koma að endurbótum á hluta hússins eða ekki. Hvort sem það skipulag verði samþykkt eða ekki þá verður hægt að taka ákvörðun um framtíðarendurbætur á húsinu í kjölfarið.
10.
Vinnurými fyrir listamenn
Málsnúmer 202608054
Starfsmanni var falið að leita leiða til að bjóða upp á vinnurými fyrir listamenn á vegum Sveitarfélagsins í stað Miklagarðs.Starfsmaður kynnir samantekt og ræðir næstu skref.
Eins og staðan er er ekkert ásættanegt rými á vegum sveitarfélgasins laust til útleigu sem gæti komið í stað Miklagarðs en skapandi fólki er beint á Vöruhús - miðstöð tómstunda, list- og verkgreina sem býður uppá fjölbreytta aðstöðu. Áfram verður unnið að málinu.
11.
Starfsemi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar 2026
Málsnúmer 202602126
Forstöðumaður kynnir starf og starfsgildi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.
Nefndin þakkar ítarlega kynningu á starfsemi og störfum innan Menningarmiðstöðvarinnar.
12.
Stofnskrá Menningarmiðstöðvar 2021-25
Málsnúmer 202102088
Stofnskrá Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar lögð fram til kynningar og umræðu.
Nefndin felur starfsmanni að vinna að uppfærslu stofnskrár.
13.
Samtök orkusveitarfélaga Kynningarbæklingur til kjörinna fulltrúa
Málsnúmer 202607056
Lögð fram til kynningar gögn frá stjórn Samtaka orkusveitarfélaga sem stjórn óskar eftir að verði kynnt kjörnum fulltrúum í aðildarsveitarfélögunum.
Lagt fram til kynningar.
14.
Samtök sjávarútvegssveitarfélaga_Kynningarbréf
Málsnúmer 202608049
Kynningarbréf frá stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem stjórn óskar eftir að verði kynnt kjörnum fulltrúum í sveitarstjórn.
Lagt fram til kynningar.
15.
Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum - kynningarbréf
Málsnúmer 202608050
Kynningarbréf frá stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum sem stjórn óskar eftir að verði kynnt kjörnum fulltrúum í sveitarstjórn.
Lagt fram til kynningar.
16.
Yfirfærsla eigna Kvískerjasjóðs
Málsnúmer 202608029
Í tengslum við fund Ríkisstjórnar Íslands og bæjarstjórnar Hornafjarðar á Höfn þann 13. ágúst rituðu Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra undir viljayfirlýsingu um yfirfærslu eigna Kvískerjasjóðs til Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Ásamt þeim ritaði Árni M. Mathiesen, formaður stjórnar Kvískerjasjóðs undir viljayfirlýsinguna.Markmið viljayfirlýsingarinnar er að tryggja að hið merka ævistarf Kvískerjasystkina og framlag þeirra til þekkingarsköpunar verði áfram haft í heiðri. Sameiginlegur ásetningur aðila er að leggja Kvískerjasjóð formlega niður og ráðstafa fjármunum hans að loknu uppgjöri til Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar í gegnum Sveitarfélagið Hornafjörð. Fjármunirnir verði nýttir til afmarkaðra verkefna sem hafa það að meginmarkmiði að kynna og heiðra lífsstarf og arfleifð systkinanna á Kvískerjum.Stefnt er að því að vinnu við yfirfærsluna ljúki á haustmánuðum 2026.
Lagt fram til kynningar.
17.
Dýralæknaþjónusta
Málsnúmer 201102070
Minnisblað bæjarstjóra um stöðu málefna dýralæknis á svæðinu lagt fram til kynningar og umræðu.
Atvinnu- og menningarmálanefnd lýsir yfir þungum áhyggjum þess að ekki fáist dýralæknir í umdæmið. Um er að ræða mikinn fjölda búfjár og gæludýra á víðfeðmu svæði og er það mikið dýravelferðarmál að á svæðinu sé starfandi dýralæknir. Nefndin þrýstir á að fundnar verði tímabundnar lausnir, t.a.m. varðandi aðgengi að lyfjum, á meðan málið er ekki leyst til lengri tíma.
Starfsmanni falið að koma bókun á framfæri til viðeigandi stofnunar.
18.
Málefni búfjár í sveitarfélaginu
Málsnúmer 202411002
Erindi frá Atvinnuvegaráðuneyti sem barst sveitarfélaginu í sumar. Atvinnuvegaráðuneytið vill með erindi þessu minna á bréf sem sent var sveitarfélögum um regluverk um búfjárbeit 14. febrúar 2024.
Atvinnu- og menningarmálanefnd þakkar áminninguna og mun nýta bréf ráðuneytisins í vinnu við endurnýjun búfjár- og fjallskilasamþykktar.