Atvinnu- og menningarmálanefnd
91. fundur
23. september 2026
kl.
16:00
-
19:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ágústa Margrét Arnardóttir
varaformaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Alexander Vigfússon
aðalmaður
Valur Pálsson
áheyrnarfulltrúi
Haukur Ingi Einarsson
varamaður
Róslín Alma Valdemarsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Kristín Vala Þrastardóttir
Menningarmiðstöð
Fundargerð ritaði:
Kristín Vala Þrastardóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar
Dagskrá
1.
Kynning á starfi Markaðsstofu Suðurlands
Ragnhildur Sveinbjarnardóttir framkvæmdarstjóri Markaðsstofu Suðurlands kynnir starf stofunnar fyrir nefndinni.
Nefndin þakkar fyrir kynninguna.
2.
Vatnajökulsþjóðgarður - Fundargerðir stjórnar og svæðisráðs - 2026
Lagt fram til kynningar.
Atvinnu- og menningarmálanefnd lýsir yfir ánægju með að búið sé að semja um siglingar á Jökulsárlóni og að samningar séu til þriggja ára í senn.
3.
Skaftfellingur
Fundagerðir ritnefndar Skaftfellings lagðar fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
4.
Atvinnu- og rannsóknarsjóður 2026
Uppfærðar úthlutunarreglur og matsblöð atvinnu- og rannsóknarsjóðs teknar til umræðu.
Nefndin felur starfsmanni að vinna drög að uppfærðum reglum.
5.
Starfsemi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar 2026
Forstöðumaður kynnir starf Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.
Vettvangsferð um húsnæði Menningarmiðstöðvarinnar í Nýheimum.
Vettvangsferð um húsnæði Menningarmiðstöðvarinnar í Nýheimum.
Nefndin þakkar kynninguna.
6.
Fjárhagsáætlun Menningarmiðstöðvar 2027
Forstöðumaður kynnir fyrstu drög að fjárhagsáætlun Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar 2027.
Nefndin þakkar fyrir kynninguna.
7.
Skýrsla Humarhátíðarnefndar 2026
Skýrsla Humarhátíðarnefndar 2026 lögð fram til kynningar. Umræður um fyrirkomulag hátíðarinnar.
Nefndin þakkar Humarhátíðarnefnd 2026 fyrir glæsilega hátíð, með ósk um áframhaldandi samstarf.
Róslín Alma Valdemarsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Róslín Alma Valdemarsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
8.
Áframhald á ritun byggðarsögu
Á næsta ári fagnar Höfn 130 ára afmæli. Í tilefni af því er lagt til að haldið verði áfram ritun byggðasögu sveitarfélagsins. Saga Hafnar var gefin út í tveimur bindum sem gerðu árunum 1897 - 1975 á Höfn góð skil. Áður hafði verið gefin út Byggðasaga Austur-Skaftafellssýslu sem fjallaði um ábúendur og búskaparhætti í sveitum og á Höfn. Lagt er til að nýtt rit myndi gera bæði sveitum og þéttbýli góð skil og fjalla um árin 1975 - 2000.
Nefndin tekur jákvætt í hugmyndina og felur starfsmanni að kanna kostnað og fyrirkomulag.
9.
Skaftfellingur í hljóðbók
Skaftfellingur hefur verið gefinn út á prenti og er mikilvægt heimildarit fyrir samfélagið en það hefur að geyma bæði sögulegan fróðleik sem og samtímaheimildir. Til þess að stækka hóp þeirra sem notið geta Skaftfellings er tillaga um að koma efni Skaftfellings á hljóðbókarform en með því eykst aðgengi eldra fólks, sjónskertra og þeirra sem vilja frekar hlusta en lesa að efninu.
Nefndin tekur vel í hugmyndina og felur starfsmanni að skoða hvað útgáfa hljóðbóka kostar. Þarf þá að taka til kostnað við lestur, hljóðvinnslu og síðan hýsingu eða dreifingu.
Nefndin leggur til að kanna möguleika þess að vinna verkefnið í heimabyggð.
Nefndin leggur til að kanna möguleika þess að vinna verkefnið í heimabyggð.
10.
Hugmynd að samstarfi við Glaciers of Höfn
Erindi um samstarf við sveitarfélagið frá Glaciers of Höfn. Bæjarráð vísar málinu til nefnda.
Nefndin fagnar því að komin er jöklasýning á Höfn og þakkar fyrir innsenda hugmynd.
Nefndin tekur undir bókun fræðslu- og frístundanefndar.
Nefndin tekur undir bókun fræðslu- og frístundanefndar.
11.
Áætlun um refaveiðar
Bæjarráð fól umhverfisfulltrúa að gera samanburð á refaveiðum við framkvæmd og greiðslur í öðrum sveitarfélögum og leggja fyrir nefndina auk þess sem mikilvægt er að íbúaráð fái að koma að þessu máli.
Minnisblað Xiaoling, umhverfisfulltrúa, lagt fram til kynningar.
Minnisblað Xiaoling, umhverfisfulltrúa, lagt fram til kynningar.
Nefndin leggur til að greiðslur samningsbundinna veiðimanna verði hækkuð og fyrirkomulag skoðað.
Nefndin felur starfsmanni að greina áhrif hækkana á fjárhag sveitarfélagsins.
Starfsmaður skal einnig óska eftir tillögum að úrbótum frá samningsbundnum veiðimönnum og hagaðilum.
Valur Pálsson vék af fundinum undir þessum lið.
Nefndin felur starfsmanni að greina áhrif hækkana á fjárhag sveitarfélagsins.
Starfsmaður skal einnig óska eftir tillögum að úrbótum frá samningsbundnum veiðimönnum og hagaðilum.
Valur Pálsson vék af fundinum undir þessum lið.
12.
Réttir í Sveitarfélaginu Hornafirði
Íbúarráð Suðursveitar og Mýra hefur óskar eftir að málefni rétta og fjallskila verði tekin til skoðunar á vettvangi sveitarfélagsins
Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur til að fundin verði staðsetning nýrrar réttar á Mýrum í samráði við landeigendur og bændur á svæðinu. Einnig leggur nefndin til að farið verði í þær úrbætur á Borgarhafnarrétt sem þarf að fara í til að réttin sé fjárheld. Einnig þarf að fara í heildarendurskoðun á réttum í sveitarfélaginu. Nefndin felur starfsmanni að vinna áfram að málinu.
Nefndin vísar málinu til íbúaráða í sveitunum.
Nefndin vísar málinu til íbúaráða í sveitunum.