Fara í efni

Atvinnumálanefnd

10. fundur
21. október 2015 kl. 17:00 - 19:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir formaður
Ottó Marvin Gunnarsson aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Bergþóra Ólafía Ágústsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Sjávarþorpið Höfn
Málsnúmer 201502100
Þann 5. október síðast liðinn afhentu Árdís Erna Halldórsdóttir fyrrum framkvæmdastjóri Ríkis Vatnajökuls og Fanney Björg Sveinsdóttir verkefnastjóri SASS bæjarráði Hornafjarðar skýrslu vegna verkefnisins Sjávarþorpið Höfn. Fjölmennar vinnustofur voru haldnar í vinnuferlinu og komu fram mörg verkefni sem óskað er eftir að sveitarfélagið hafi m.a. að leiðarljósi í þeim skipulags-, markaðs- og kynningarmálum er snúa að þéttbýlinu Höfn.
Formaður býður fundarmenn velkomna og setur fund.

Atvinnumálanefnd lýsir ánægju sinni með framtak grasrótarinnar og allra þeirra sem komu að verkefninu til að styrkja Höfn sem ferðamannastað og búsetukost. Ljóst er að fjölgun ferðamanna opnar á fjölmarga möguleika til að glæða bæinn meira lífi sem og fjölbreyttari verslun og þjónustu. Sú stefnumótun sem hér hefur átt sér stað mun nýtast sveitarfélaginu við áframhaldandi uppbyggingu bæjarins. Nefndin hvetur áhugasama til að kynna sér skýrsluna og þau verkefni sem þar koma fram.
2.
Atvinnustefna 2015-
Málsnúmer 201501083
Unnin hafa verið drög að aðgerðaráætlun vegna atvinnustefnu útfrá samþykktri forgangsröðun verkefna. Er mælt með að unnið sé í mismunandi þverfaglegum starfshópum til að efla framgang verkefnanna.
Starfsmaður kynnir drög að aðgerðaráætlunum vegna atvinnustefnunnar og þá hugmyndafræði sem uppi er varðandi framkvæmd verkefna. Atvinnumálanefnd tekur undir mikilvægi þess að verkefnin séu unnin í þverfaglegum starfshópum skipuðum starfsmönnum sveitarfélagsins.

Atvinnumálanefnd leggur áherslu á mikilvægi allra verkefnanna en áréttar þá bókun sína að Mikligarði verði komið í notkunarhæft ástand hið fyrsta til að efla atvinnu- og mannlíf á Heppunni. Einnig telur nefndin uppbyggingu Jökulheima mikilvæga.
3.
Reglur Atvinnu- og rannsóknarjóðs
Málsnúmer 201504041
Lögð er fram tillaga að endurskoðuðum reglum atvinnu- og rannsóknarsjóðs og drög að matsramma samkvæmt fyrri bókun frá 58. fundi atvinnu- og menningarmálanefndar.
Starfsmaður kynnir drög að endurskoðuðum reglum atvinnu- og rannsóknarsjóðs sem og drög að matsramma vegna umsókna.

Nefndinni lýst vel á þau drög sem lögð eru fyrir og fela starfsmanni að fullvinna skjölin áður en þau verða lögð fram til samþykktar á næsta fundi nefndar.
4.
Jökulheimar - staða
Málsnúmer 201508031
Atvinnumálanefnd leggur fram eftirfarandi bókun:

Í aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar eru skipulagðir þrír megin áfangastaðir og eru það Höfn, Jökulsárlón og Skaftafell. Tölur um komur ferðamanna sýna hinsvegar að til að ná því markmiði er þörf á að byggja upp áfangastaðinn Höfn enn frekar. Atvinnumálanefnd fagnar því umræðu um Jökulheima, safni sem snýr að stærsta jökli Evrópu sem er staðsettur í sveitarfélaginu og við bæjardyr Hafnar. Í vinnuferli atvinnustefnu sveitarfélagsins hefur komið fram skýr vilji hjá öllum hagsmunaaðilum til að koma slíku safni á laggirnar, enda mun það án efa styrkja stoðir ferðaþjónustunnar sem heilsársatvinnugreinar.
5.
Ferðamálastefna Íslands
Málsnúmer 201510057
Nýlega lauk vinnu við gerð Ferðamálastefnu Íslands og er hún lögð fram til kynningar.
Starfsmaður kynnir skýrsluna fyrir nefndarmönnum og mögulega aðkomu sveitarfélagsins að þeim verkefnum sem framundan eru varðandi uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu og á landsvísu.

Von er á aðstandendum skýrslunnar til Hornafjarðar á næstu vikum og verða þá komandi verkefni hjá Stjórnstöð ferðamála kynnt nánar. Ekki er komin dagssetning ennþá. Skýrslan er aðgengileg á vefsíðunni www.ferdamalastefna.is.

Nefndin er upplýst um mikilvægi þess að kynna sér skýrsluna vel og hvetur hún alla hagsmunaaðila um að gera slíkt hið sama. Sú vinna sem er framundan í ferðamálum snertir alla aðila og hefur áhrif á einstaklinga, fyrirtæki og sveitarfélög.