Atvinnumálanefnd
11. fundur
25. nóvember 2015
kl.
16:30
-
19:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
formaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Hlíf Gylfadóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Matís og matarsmiðjan
í haust var lögð fram spurningakönnun um notkun matarsmiðjunnar á Höfn og framtíðarhorfur og eru niðurstöður hennar hér lagðar fram fyrir atvinnumálanefnd. Matarsmiðjan verður heimsótt og hefst fundur nefndarinnar með þeirri heimsókn.
Formaður nefndar setur fund.
Atvinnumálanefnd byrjaði fundinn á heimsókn í matarsmiðju Matís á Höfn þar sem starfsmaður Matís og notendur hennar tóku á móti hópnum og kynnti þá starfsemi sem þar er. Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir nýr verkefnastjóri hjá SASS á Hornafirði mætti á fundinn undir þessum lið og var hún boðin velkomin til starfa.
Umræður sköpuðust um framtíð matarsmiðjunnar, en frá og með næstu mánaðarmótum verður enginn starfsmaður á Höfn á vegum Matís. Fundarmenn eru sammála um mikilvægi þess að hafa starfsmann Matís í fullu starfi á Hornafirði til að efla þá starfsemi sem smiðjan býður upp á. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar þá eru 15 aðilar sem sýna áhuga á nýta smiðjuna á næstu 12 mánuðum, sem bendir til þess að áhuga gætir á frekari vöruþróun á svæðinu. Einnig felast sóknarfæri í því að markaðssetja matarsmiðjuna á Höfn fyrir notendur af öllu landinu.
Einnig sköpuðust umræður um mikilvægi þess að fara af stað með markaðsdrifið verkefni fyrir svæðisbundna matvöru.

2.
Ósk um að setja upp skilti
Sveitarfélaginu Hornafirði barst erindi frá Vatnajökulþjóðgarði þar sem óskað er eftir að setja upp skilti sem vísar á upplýsingamiðstöðina í Gömlubúð. Erindið vat tekið fyrir á 10. fundi Umhverfisnefndar þann 3. nóvember s.l. og var þar vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna og umsagna í öðrum nefndum.
Helga Árnadóttir kynnti óskir Vatnajökulsþjóðgarðs um að setja upp upplýsingaskilti við innkomuna í bæinn. Útfærslan er ennþá á hugmyndastigi, en er mikill vilji frá þjóðgarðinum að koma sem fyrst upp skiltum til að vísa ferðamönnum veginn á upplýsingamiðstöðina í Gömlubúð. Gæti sú vinna mögulega verið samstarfsverkefni á milli þjóðgarðsins og sveitarfélagsins. Atvinnumálanefnd tekur mjög jákvætt í erindið og bendir jafnframt á mikilvægi þess að mótuð verði stefna í skiltamálum í sveitarfélaginu, má þar til dæmis nefna varðandi staðssetningu, hönnun ofl.
3.
Atvinnu- og rannsóknarsjóður - reglur
Drög að endurskoðuðum reglum atvinnu- og rannsóknarsjóðs eru lögð fram til samþykktar í atvinnumálanefnd. Einnig eru lögð fram drög að matsramma til að meta þær umsóknir sem berast sjóðnum, annarsvegar fyrir atvinnuþáttinn og hinsvegar fyrir rannsóknarþátt.
Atvinnumálanefnd samþykkir samhljóða endurskoðaðar reglur atvinnu- og rannsóknarsjóðs. Erindinu er vísað til samþykktar í bæjarstjórn.
4.
Umsókn um leyfi til landnýtingar
Á 742. fundi bæjarráðs þann 16. nóvember s.l. var tekið fyrir erindi frá Maríönnu Jónsdóttur dags. 30. sept. þar sem óskað var eftir leyfi til að staðsetja veitingavagn á lóð sveitarfélagsins við hafnarsvæðið. Bæjarráð samþykkti tímabundið leyfi til landnýtingar fyrir veitingavagn vegna sumarsins 2016 að uppfylltum öllum leyfum og skilyrðum og fól í kjölfarið atvinnumálanefnd að útfæra gjaldskrá og reglur vegna starfsemi veitingavagna.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
5.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Lagt fram til umsagnar hjá atvinnumálanefnd.
Nefndin fjallaði sameiginlega um dagskrárliði fundarins nr. 5 og 6, umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar og framkvæmdaáætlun í umhverfismálum.
Atvinnumálanefnd bendir á að það vanti kafla um landbúnað í atvinnukafla skýrslunnar. Jafnframt telur nefndin að skilgreina þurfi betur ábyrgðarsvið sveitarfélagsins annarsvegar og ríkisins hinsvegar í málaflokknum, sem og úrvinnslu framkvæmdaáætlunar.

6.
Framkvæmdaáætlun í umhverfismálum
Lagt fram til umsagnar hjá atvinnumálanefnd.
Bókað var um liðinn undir 5. lið á dagskrá.
7.
Jólahátíð í Hornafirði
Jólahátíð á Höfn verður haldin á Höfn sunnudaginn 29. nóvember, eða 1. sunnudag í aðventu eins og venja er. Verður hátíðin með svipuðu sniði og undanfarin ár þar sem söluaðilar bjóða fram vörur á markaði, jólastemmning er í fyrirtækjum og stofnunum, jólalestin keyrir um bæinn og hátíðardagsskrá verður á sviði áður en ljósin verða tendruð á bæjartrénu.
Starfsmaður kynnir jólahátíð sem haldin verður á Höfn 1. sunnudag í aðventu.