Atvinnumálanefnd
12. fundur
16. desember 2015
kl.
15:00
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
formaður
Óðinn Eymundsson
varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Jöklavagnar leyfi til að staðsetja veitingarvagn á lóð sveitarfélagsins
Unnið er að samþykktum og verðskrá um götu- og torgsölu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Reglurnar verða lagðar fram til samþykktar á fundi nefndar í janúar og verða leyfi útgefin þegar sú vinna liggur fyrir.
2.
Atvinnustefna 2015-
Lagt er fram vinnuskjal með drögum að atvinnustefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir atvinnumálanefnd að rýna fyrir áframhaldandi vinnu. Aðrar samþykktar stefnur sveitarfélagsins og þau gögn sem notuð hafa verið við vinnslu atvinnustefnunnar skulu höfð til hliðsjónar.
Starfsmaður og verkefnastjórar SASS fara yfir drög að atvinnustefnu. Umræður sköpuðust um stefnuna og var samþykkt að halda áfram á sömu braut. Nefndarmenn senda starfsmanni athugasemdir til að vinna úr fyrir næsta fund nefndar.
3.
Áhersluverkefni SASS 2016
Á næstu dögum mun SASS senda út ósk um tillögur að áhersluverkefnum vegna 2016 og verður þá hægt að senda inn hugmyndir til verkefnastjórnar Sóknaráætlunarinnar. Er því óskað eftir umræðu innan atvinnumálanefndar um möguleg áhersluverkefni. Þegar áhersluverkefni 2016 verða valin verður eftirfarandi haft til grundvallar:Uppfyllir verkefnatillagan einhverja af megin áherslum stefnumörkunar Suðurlands 2016 - 2020Auka samvinnu á milli sveitarfélaga í sem flestum málefnum.Vinna að heildrænni kortlagningu á náttúru, mannauði og menningu á Suðurlandi og draga fram sérstöðu einstakra svæða.Skapa jákvæða ímynd af Suðurlandi sem byggir á gæðum og hreinleika.Vinna að umhverfisvakningu með sjálfbærni að leiðarljósi og auka sjálfbæra nýtingu á orku og auðlindum.Hækka menntunarstig á Suðurlandi með eflingu framboðs og aðgengis að menntun í heimabyggð.Auka fjölbreytni í atvinnulífi, mannlífi, menningu og menntun.Ef hægt er að merkja við fleiri en eitt box er það kostur.
Verkefnastjórar SASS kynna fyrirhugaða vinnu og ferli vegna Sóknaráætlunar Suðurlands þegar skilgreind verða áhersluverkefna 2016.
Atvinnumálanefnd fagnar því að fá kynningu á vinnuferlinu vegna áhersluverkefna 2016 og mun skoða verkefnistillögur til að senda inn. Hvetur nefndin einnig alla íbúa til að koma hugmyndum sínum á framfæri við verkefnastjórn Sóknaráætlunar þegar opnað verður fyrir það á heimasíðu SASS. Einnig fagnar nefndin að sjá hversu mörg og metnaðarfull verkefni af svæðinu hlutu styrk í nýafstaðinni styrkúthlutun SASS til menningar- og atvinnumála.
Guðrúnu og Þórarni er þakkað fyrir komuna.
Atvinnumálanefnd fagnar því að fá kynningu á vinnuferlinu vegna áhersluverkefna 2016 og mun skoða verkefnistillögur til að senda inn. Hvetur nefndin einnig alla íbúa til að koma hugmyndum sínum á framfæri við verkefnastjórn Sóknaráætlunar þegar opnað verður fyrir það á heimasíðu SASS. Einnig fagnar nefndin að sjá hversu mörg og metnaðarfull verkefni af svæðinu hlutu styrk í nýafstaðinni styrkúthlutun SASS til menningar- og atvinnumála.
Guðrúnu og Þórarni er þakkað fyrir komuna.