Fara í efni

Atvinnumálanefnd

14. fundur
27. janúar 2016 kl. 17:00 - 19:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Óðinn Eymundsson varaformaður
Ottó Marvin Gunnarsson aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Hlíf Gylfadóttir 1. varamaður
Sigríður Lárusdóttir 2. varamaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Afgreiðsla atvinnu- og rannsóknarsjóðs 2016
Málsnúmer 201601027
Umsóknir í atvinnu- og rannsóknarsjóð 2016 verða lagðar fram til lokaafgreiðslu hjá atvinnumálanefnd. Alls bárust 12 umsóknir í sjóðinn að þessu sinni, þar af fimm í A hluta og sjö í B hluta.
Óðinn setur fund og býður fundarmenn velkomna.

Nefndin fór yfir umsóknir í atvinnu- og rannsóknarsjóð 2016. Nefndin fagnar þeim fjölda góðra umsókna sem barst. Í ljósi þess lýsir hún yfir mikilvægi þess að efla sjóðinn enn frekar.

Tillaga um úthlutun A-hluta úr atvinnu- og rannsóknarsjóði samþykkt samhljóða.

Tillaga um úthlutun B-hluta úr atvinnu- og rannsóknarsjóði samþykkt samhljóða.

Starfsmanni falið að upplýsa umsækjendur um niðurstöðu nefndar.


2.
Samþykktir um götu- og torgsölu í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201512065
Lögð verða fyrir drög að reglum um götu- og torgsölu, en bæjarráð fól atvinnumálanefnd að útfæra slíkar reglur vegna vaxandi eftirspurnar um slíka starfsemi á Höfn.
Umræða var um drög að samþykktum um götu- og torgsölu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Atvinnumálanefnd samþykkir drögin með nokkrum athugasemdum og er starfsmanni falið að fullvinna samþykktirnar. Einnig bendir nefndin á mikilvægi þess að tæming frá veitingavögnum sé á viðurkenndum losunarstöðum.

Atvinnumálanefnd fagnar auknum áhuga á rekstri fjölbreyttrar veitingasölu á Höfn með tilkomu veitingavagna, enda anna starfandi veitingastaðir vart eftirspurn vegna mikillar fjölgunar ferðamanna. Jafnframt nefnir nefndin mikilvægi þess að starfsemin sé hrein viðbót við þá þjónustu sem nú þegar er til staðar.
3.
Ræsing
Málsnúmer 201506078
Starfsmaður upplýsir atvinnumálanefnd um stöðu mála varðandi verkefnið "Ræsingu í Hornafirði" sem stóð til að hefja í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð og fyrirtæki í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Alls bárust sex umsóknir í "Ræsingu í Hornafirði", en vegna eðlis verkefnanna var ákveðið að hefja verkefni sem kallast "Sóknarfæri í Hornafirði" að þessu sinni og auglýsa Ræsingu aftur á haustdögum þessa árs. Handleiðsla vegna "Sóknarfæris" hefst nú í lok janúar.