Atvinnumálanefnd
15. fundur
24. febrúar 2016
kl.
17:00
-
20:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
formaður
Óðinn Eymundsson
varaformaður
Ottó Marvin Gunnarsson
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Samningur við Ríki Vatnajökuls 2015 til 2018
Formaður setur fund og býður Olgu velkomna.
Samstarfssamningur á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Ríkis Vatnajökuls um markaðs- og kynningarmál ræddur.
Olga kynnir helstu verkefni sem Ríki Vatnajökuls hefur unnið að undanfarið. Má þar nefna fjölbreytt verkefni varðandi vöruþróun, útgáfu efnis, markaðssetningu og móttöku kynningarhópa.
Kom fram að það eru um 80 hluthafar í félaginu og eru enn að koma inn nýir hluthafar. Unnið er að því að fjölga félögum enn frekar.
Umræða um málefni ferðaþjónustunnar og helstu tækifæri og áskoranir sem fylgja hröðum vexti greinarinnar árið um kring.
Umræða um Stjórnstöð Ferðamála og mikilvægi þess að vinna undirbúningsvinnu vel heima í héraði hvað varðar forgangsverkefni stöðvarinnar á hverjum tíma.

2.
Samþykktir um götu- og torgsölu í Sveitarfélaginu Hornafirði
Á 752. fundi bæjarráðs þann 1. febrúar s.l. lagði bæjarráð fram athugasemdir varðandi samþykktir um götu- og torgsölu í Sveitarfélaginu Hornafirði og vísaði samþykktinni til áframhaldandi vinnu í atvinnumálanefnd.
Ragnheiður vék af fundi undir þessum lið.
Atvinnumálanefnd ræddi tillögur bæjarráðs og féllst á breytingarnar. Skiptar skoðanir voru innan nefndarinnar um hvort fjarlægja ætti söluvagna við lokun hvern dag.
Atvinnumálanefnd ræddi tillögur bæjarráðs og féllst á breytingarnar. Skiptar skoðanir voru innan nefndarinnar um hvort fjarlægja ætti söluvagna við lokun hvern dag.
3.
Cruise Iceland 2016
Nýtt kynningarefni fyrir Cruise Iceland og verkefnin framundan lögð fram til kynningar og umræðu. Kynningarefnið er nú í vinnslu.
Starfsmaður kynnti helstu verkefni innan Cruise Iceland og þær áherslur sem eru vegna komu skemmtiferðaskipa til Hafnar í Hornafirði.
4.
Markaðsgreining Suðurlands 2015
Unnið er að markaðsgreiningu "Áfangastaðarins Suðurlands" sem nýtist sveitarfélögum, fyrirtækjum og öðrum aðilum innan ferðamála á Suðurlandi, við markaðssetningu og kynningu á landshlutanum eða svæðum innan hans gagnvart ferðamönnum. Verkefnisstjórn er í höndum Markaðsstofu Suðurlands en aðilar frá öllu Suðurlandi sitja í verkefnisstjórn.
Starfsmaður kynnti þá vinnu sem er yfirstandandi vegna verkefnisins "Markaðsgreining Suðurlands". Til stendur að aðilar frá Manhattan Marketing komi til Hornafjarðar og kynni fyrsta hluta þess á næstu vikum.
Atvinnumálanefnd lýsir yfir ánægju með verkefnið og telur að niðurstöður þess komi til með gagnast fyrirtækjum á svæðinu vel.
Atvinnumálanefnd lýsir yfir ánægju með verkefnið og telur að niðurstöður þess komi til með gagnast fyrirtækjum á svæðinu vel.
5.
Celebrating Glaciers Ice Festival 2016
Erindi frá Global Glacier Initiative varðandi viðburðinn "Celebrating Glaciers Ice Festival 2016" lagt fram til kynningar.
Starfsmaður upplýsir nefndina um viðræður sem hafa verið á milli sveitarfélagsins og félgsins Global Glacier Initiative um viðburðinn "Celebrating Glaciers" sem áætlað er að halda innan sveitarfélagsins dagana 7.-10. júlí nk. Viðburðurinn er haldinn á vegum félagsins og er undirbúningur nú í fullum gangi.
Atvinnumálanefnd fagnar þeim áhuga sem Global Glacier Initative hefur á að halda viðburðinn í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Atvinnumálanefnd fagnar þeim áhuga sem Global Glacier Initative hefur á að halda viðburðinn í Sveitarfélaginu Hornafirði.