Fara í efni

Atvinnumálanefnd

16. fundur
22. mars 2016 kl. 17:00 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir formaður
Óðinn Eymundsson varaformaður
Ottó Marvin Gunnarsson aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Ósk um áheyrnafulltrúa í nefndnum sveitarfélagsins
Málsnúmer 201512035
Ungmennaráð sendi inn erindi til bæjarráðs þar sem óskað var eftir því að hafa áheyrnarfulltrúa í nefndum sveitarfélagsins. Erindið var samþykkt og var ungmennaráði falið að tilnefna aðalmann og varamann sem áheyrnarfulltrúa í fastanefndum sveitarfélagsins.
Bryndís Bjarnason kynnir fyrirkomulag með setu áheynarfulltrúa Ungmennaráðs í atvinnumálanefnd. Nefndin fagnar fyrirkomulaginu og býður Agnar Jökul velkominn á fundinn
2.
Menningarstefna Hornafjarðar
Málsnúmer 201504037
Drög að menningarstefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar lögð fram til umsagnar.
Atvinnumálanefnd fagnar drögum að endurskoðaðri menningarstefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar og telur hana ná yfir menningarmál á breiðum grundvelli.

Atvinnumálanefnd óskar eftir að þau málefni sem samræmast atvinnustefnu sveitarfélagsins verði unnin í samstarfi á milli nefnda.

Atvinnumálanefnd tekur undir með fræðslu- og tómstundanefnd með að gera Sindrabæ að menningarhúsi sveitarfélagsins.
3.
Starfamessa á Hornafirði
Málsnúmer 201601053
Á fundi í stjórn Nýheima 13. janúar 2016 kynnti Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri hugmynd að starfamessu á Hornafirði, en áður hefur slíkur viðburður verið haldinn á Suðurlandi. Áveðið var að tilnefna fulltrúa í vinnuhóp til að vinna að framgangi verkefnisins og voru þau Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri, Davíð Arnar verkefnastjóri Nýheima, Olga Ingólfsdóttir f.h. Ríkis Vatnajökuls og Árdís Erna atvinnu- og ferðamálafulltrúi tilnefnd. Síðar bættust við fulltrúar frá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu og Skinney-Þinganesi. Fengist hefur fjármagn til verkefnisins frá Vinnumarkaðsráði Austurlands og Sveitarfélaginu Hornafirði. Búið er að ráða verkefnisstjóra og stefnt að því að halda viðburðinn á haustdögum.
Atvinnumálanefnd tekur jákvætt í verkefnið og telur mjög brýnt að kynna fjölbreytni og tækifæri í atvinnulífi á svæðinu. Nefndin hvetur fyrirtæki og íbúa til að taka þátt í viðburðinum, og vonast til þess að Starfamessan verði til þess að hvetja ungt fólk til að setjast að í Hornafirði að námi loknu.
4.
Rekstur sláturhús
Málsnúmer 201603067
Björn Ingi upplýsir um stöðu mála varðandi áframhaldandi reksturs sláturhúss á Höfn, en Norðlenska hefur tilkynnt að slátrun verði mögulega hætt á svæðinu.

Atvinnumálanefnd tekur undir bókun bæjarráðs varðandi málefnið og óskar eftir að vera upplýst um framvindu mála.
5.
Atvinnustefna 2015-
Málsnúmer 201501083
Á 12. fundi nefndar í desember sl. var ákveðið í samráði við verkefnastjóra SASS að halda áfram vinnu við atvinnustefnu á sömu braut og verið hafði og var næst á dagskrá að nefndarmenn læsu hana yfir og sendu starfsmanni sínar athugsemdir. Skömmu síðar urðu breytingar innan SASS sem leiddu til þess að atvinnuráðgjafar verða ekki lengur starfandi innan sambandsins. Í ljósi nýrra aðstæðna mun starfsmaður atvinnu- og ferðamálanefndar ljúka gerð atvinnustefnunnar í samvinnu við nefndina.

Ákveðið er að starfsmaður yfirfari drög að atvinnustefnunni og sendi á nefndarmenn til yfirlestrar. Að því loknu verða lokadrög send á ráðgjafa SASS sem bjóða upp á handleiðslu varðandi framsetningu, lokafrágang og eftirfylgni stefnunnar.