Atvinnumálanefnd
17. fundur
27. apríl 2016
kl.
17:00
-
19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
formaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Guðrún Ósk Gunnarsdóttir
áheyrnarfulltrúi
Hlíf Gylfadóttir
1. varamaður
Bergþóra Ólafía Ágústsdóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Mikligarður áfangi 2
Björn Þór Imsland kynnir yfirstandandi framkvæmdir í Miklagarði og hver eru möguleg næstu skref til að koma húsinu í notkun.
Björn Imsland er boðinn velkominn á fundinn.
Samkvæmt Birni eru þær framkvæmdir sem snúa að Miklagarði á þessu ári að verja húsið fyrir vatni og vindum, bæði hvað veggi og þak varðar. Þær framkvæmdir eru fyrirhugaðar í haust. Fyrir nánari hönnunarvinnu innanhúss er mikilvægt að móta þá starfsemi sem er fyrirséð í húsinu. Ef til stendur að hafa starfsemi á neðri hæð hússins er mikilvægt að hækka húsið, en eins og staðan er í dag býður lofthæðin upp á lítið annað en að þau rými verði notuð undir geymslur.
Starfsmanni falið að afla frekari gagna um þau rými sem eru í húsinu.
Í framhaldinu verður sett af stað vinna til að skapa ramma um þá starfsemi sem er áætluð í Miklagarði.
Í kjölfar umræðu um Miklagarð sköpuðust umræður um Jökulheima og mikilvægi þess að hraða framgangi verkefnisins. Atvinnumálanefnd leggur til að skipaður verði starfshópur til að vinna að málinu.
2.
Ný lög um gerð landsáætlunar um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
Samband íslenskra sveitarfélaga hvetur sveitarfélög í landinu til þess að taka saman fyrirliggjandi upplýsingar um ferðamannastaði innan þeirra marka, yfirfara þær áætlanir sem til eru um uppbyggingu þeirra og reyna þannig að tryggja eftir bestu getu að við gerð landsáætlunar verði hægt að byggja á nýlegum og raunhæfum upplýsingum og áætlunum. Verulegir hagsmunir eru í húfi fyrir flest sveitarfélög og því mikilvægt að nýta vel þann skamma tíma sem ætlaður er til verkefnisins.
Formanni og starfsmanni nefndar er falið að vinna áfram að málinu.
3.
Afgreiðsla úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Umsókn 1510123-Brú yfir Kolgrafardalsá og brú "á milli fella"
Nýlega bárust upplýsingar um að Sveitarfélagið Hornafjörður hafi hlotið styrk að upphæð kr. 28.640.000.- til uppbyggingar á Jöklaleiðinni á milli Haukafells og Skálafells, en á þeirri leið á að reisa tvær göngubrýr. Verkefnið miðar að því að bæta aðgengi að jökli og mynda heildstæða gönguleið með jökli í Austur-Skaftafellssýslu.
Atvinnumálanefnd fagnar því að svo veglegur styrkur hafi fengist til uppbyggingar á Jöklaleiðinni.