Atvinnumálanefnd
18. fundur
29. júní 2016
kl.
13:00
-
15:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
formaður
Óðinn Eymundsson
varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Agnar Jökull Imsland Arason
vara áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Áningarstaðir og örugg vegútskot á Suðausturlandi með áherslu á náttúrufar og myndrænt svipmót.
Náttúrustofa Suðausturlands vann úttekt á vænlegum staðsetningum á vegútskotum á Suðausturlandi með tilliti til umferðaröryggis og náttúrufars. Var verkefnið unnið með styrk frá Vegagerðinni. Snævarr Guðmundsson verkefnastjóri njá NATTSA kynnir skýrsluna fyrir atvinnumálanefnd.
Það kemur fram í máli Snævarrs að á Suðausturlandi liggur ein fegursta vegleið á Íslandi vegna fjölbreytileika lands og stórbrotins útsýnis til fjalla og jökla. Með áherslutengdum áningarstöðum getur þessi hluti hringvegarins tekið að sér hlutverk útsýnis- eða ferðamannavegar með auknu umferðaröryggi án þess að kosta þurfi miklum fjármunum til.
Atvinnumálanefnd þykir tillaga NATTSA um uppbyggingu ferðamannavegar áhugaverð og styður að Vegagerðin vinni að uppbygginu vegleiðarinnar á Suðausturlandi eftir slíkri hugmyndafræði. Bendir nefndin á að slík vinna rímar vel við áherslur í nýútgefnum "Vegvísi í ferðaþjónustu" þar sem eitt af forgangsverkefnum árin 2016-2017 er að tryggja að samgönguáætlun taki mið af þörfum ferðaþjónustu og spám um áframhaldandi fjölgun ferðamanna. Einnig er forgangsverkefni þar að auka öryggi ferðamanna og forvarnir m.a. með samræmdri upplýsingagjöf og merkingum um allt land.
Hugmyndin gæti opnað á tækifæri til samstarfs milli Vegagerðarinnar, sveitarfélagsins og landeigenda er kemur að uppbyggingu áningarstaða og upplýsingagjöf í sveitarfélaginu. Slíkt samstarfsverkefni gæti verið sterkur liður í að stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna um svæðið og orðið til að lengja dvöl þeirra. Nefndin óskar eftir að hugmyndin fái umfjöllun í skipulagsnefnd.

2.
Atvinnuástand í Hornafirði 2016
Vinnumarkaðurinn er blómstrandi á svæðinu, en mikil vöntun er á vinnuafli. Miðað við samantekt á atvinnumarkaði á svæðinu þá voru 14 manns á atvinnuleysisskrá þann 1. apríl sl. og fer atvinnulausum fækkandi. Er þetta um 1.1% af áætluðu vinnuafli á svæðinu, en það eru 1266 manns. Af þeim sem eru á skrá hafa sex manns lokið grunnskólamenntun, fimm manns eru með framhaldsskólamenntun af einhverju tagi og þrír með háskólamenntun. Flestir, eða 9 manns, hafa verið atvinnulausir til skamms tíma, 3 aðilar hafa verið án vinnu í 6-12 mánuði og tveir í meira en eitt ár.
Ljóst er að staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði er yfirhöfuð mjög góð en útlit er fyrir að vöntun verði á starfsfólki í grunnþjónustu í haust og brýnt að lausn finnist á starfsmannamálum sem fyrst.
3.
Menntastefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Menntastefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar lögð fram til umsagnar hjá atvinnumálanefnd.
Atvinnumálanefnd lýsir yfir ánægju með menntastefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
4.
Áskorun til bæjarstjórnar vegna póstþjónustu í dreifbýli
Bæjarráð tók á 762. fundi sínum fyrir áskorun um bætta póstþjónustu í dreifbýli frá Búnaðarfélagi Suðursveitar og vísaði erindinu til umræðu í atvinnumálanefnd.
Atvinnumálanefnd harmar skerta póstþjónustu í dreifbýli og tekur undir þau orð Búnaðarfélags Suðursveitar að ákjósanlegra væri að hafa fastar póstsendingar þrisvar í viku fremur en tvisvar eina vikuna og þrisvar hina. Einnig tekur atvinnumálanefnd undir bókun bæjarráðs frá fundi 722 þar sem bent er á að slík skerðing á þjónustu í dreifbýli hafi neikvæð áhrif á fjölbreytt atvinnulíf.
5.
Óhöpp tengd sauðfé á þjóðvegi 1 Suðurlandi
Atvinnumálanefnd hvetur til þess að hlutaðeigandi aðilar vinni sameiginlega að lausn þess vanda sem lausaganga búfjár við þjóðveg veldur. Brýnt er að girða þjóðveginn af og sinna viðhaldi eins og þörf er á. Ljóst er að umferð bæði ferðamanna og annarra hefur aukist mikið á þjóðvegi 1 í sýslunni og mikilvægt er að auka öryggi vegfarenda og minnka tjón á bústofni. Starfsmanni er falið að fylgja málinu eftir og þrýsta á um úrbætur.
6.
Afgreiðsla úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Umsókn 1510123-Brú yfir Kolgrafardalsá og brú "á milli fella"
Starfsmaður kynnir stöðu verkefnisins.
Atvinnumálanefnd fagnar góðum gangi í verkefninu. Einnig lýsir nefndin yfir áhuga á að rýna heildstætt í Jöklaleiðina á fundi sínum í haust.
7.
Starfamessa á Hornafirði
Lagt fram til kynningar
Starfastefnumót verður haldið í Hornafirði fimmtudaginn 15. september og hafa nú þegar 25 fyrirtæki og stofnanir skráð sig til þátttöku auk þess sem fleiri eru jákvæðir. Vonir standa til að um og yfir 30 aðilar munu taka þátt í viðburðinum auk nemenda og almennra gesta.
Meginmarkmiðið með Starfastefnumóti er að skapa snertiflöt á milli íbúa og atvinnulífs, sem og að stuðla að samtali á milli frumkvöðla/einyrkja og stærri fyrirtækja með aukið samstarf að leiðarljósi.
Viðburðurinn verður haldinn miðsvæðis á Höfn m.a. með Nýheima, Ráðhús og Vöruhús sem þungamiðju.