Atvinnumálanefnd
19. fundur
7. september 2016
kl.
17:00
-
20:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
formaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir
aðalmaður
Herdís Ingólfsdóttir Waage
varaformaður
Hlíf Gylfadóttir
1. varamaður
Árdís Erna Halldórsdóttir
embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Breytingar á starfsemi SASS og hlutverki ráðgjafa.
Þórður Freyr Sigurðsson, sviðsstjóri þróunarsvið SASS og Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir kynna þær skipulagsbreytingar sem hafa átt sér stað innan samtakanna frá síðustu áramótum. Kynna þau einkum breytt fyrirkomulag og hlutverk ráðgjafa á vegum samtakanna.
Þórður fer yfir þá starfsemi sem er á vegum SASS og hvernig starfið er byggt upp eftir skipulagsbreytingar. Kemur fram í máli hans mikilvægi þess að hafa góða tengingu inn í sveitarfélögin til þess að starfið nýtist sem best á öllu Suðurlandi.
Helsta breytingin sem hefur orðið varðandi ráðgjafana er að búið er að sameina atvinnu- og menningarráðgjöf og sinna alls 12 ráðgjafar um 5 stöðugildum á starfssvæðinu. Eru þessir ráðgjafar með breiða menntun og reynslu sem nýtist vel við fjölbreytt verkefni.
Sóknaráætlun Suðurlands er leiðarljós og framtíðarsýn SASS, en það er öllum opið að senda inn tillögur að verkefnum í gegnum gátt á heimasíðunni www.sass.is og hafa þar með áhrif á áhersluverkefni sóknaráætlunar.
Nú er opið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurlands og verður nánari kynning á honum á Höfn föstudaginn 16. september. Eru allir áhugasamir hvattir til að mæta á fundinn.

2.
Ósk um breytingu á úthlutunarreglum byggðakvóta
Smábátafélagið Hrollaugur sendi inn erindi þar sem það óskar eftir því við bæjarstjórn Hornafjarðar að sá byggðakvóti sem mögulega verður úthlutað til sveitarfélagsins verði alfarið ráðstafað til smábáta að 15. tonnum, óháð lönduðum afla síðasta árs. Málinu var vísað til umræðu í atvinnumálanefnd.
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir og Kristján Guðnason víkja af fundi undir þessum lið.
Atvinnumálanefnd leggur til að fundað verði með hagsmunaaðilum varðandi byggðakvótann og leitað að sameiginlegum lausnum til þess að mögulegur byggðakvóti þjóni samfélaginu á sem bestan hátt.
3.
Mikligarður 2016 - framtíðarsýn
Á 17. fundi atvinnumálanefndar var starfsmanni falið að afla frekari gagna vegna rýma í Miklagarði og eru teikningar af húsinu nú lagðar fram til áframhaldandi umræðu um mögulega starfsemi í húsinu.
Formaður atvinnumálanefndar leggur til að teiknaðar verði upp tvær til þrjár mismunandi sviðsmyndir með framtíð Miklagarðs og unnin rekstrarlíkön út frá þeim. Í hverri sviðsmynd fyrir sig skal meta kostnað við að gera húsið upp svo hægt verði að leigja það undir þá atvinnustarfsemi sem stæði undir rekstri hússins.
Tillögur að sviðsmyndum:
1 - Minniháttar breytingar á húsnæðinu. Viðgerðir kláraðar utanhúss, rými haldi sér óbreytt en salernum bætt við. Brunahólfum samræmist lágmarks kröfum. Leigjendur bæru ábyrgð á rými innanhúss, á eigin kostnað.
2 - Sama og tillaga #1, en að auki væru gólf tekin í gegn og rými einangruð og klædd að innan.
3 - Húsinu verði lyft upp og gerðar allar þær endurbætur svo hægt verði að leigja báðar hæðir hússins fyrir fjölbreytta starfsemi.
Meta skal sviðsmyndir með tilliti til mannlífs á svæðinu.
Nefndin tekur undir tillöguna og óskar eftir að viðkomandi starfsmenn vinni sviðsmyndirnar og leggji fyrir nefndina á fundi hennar í október.

4.
Ný lög um gerð landsáætlunar um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
Samband íslenskra sveitarfélaga er í samvinnu við sveitarfélögin að vinna við gagnaöflun vegna innleiðingu laga um landsáætlun um uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum til verndar náttúru og menningarminjum, sbr. lög 20/2016. Markmiðið með þeirri vinnu er að safna saman heildstæðum upplýsingum yfir alla þá ferðamannastaði/-svæði/-leiðir sem eru undir álagi og óskað er eftir að verði hluti af áætluninni, sem og upplýsingum um hvaða innviði eða aðgerðir ábyrgðaraðilar telja nauðsynlega í tengslum við gildissvið laganna.
Starfsmaður upplýsir atvinnumálanefnd um áherlur og stöðu verkefnisins.
5.
Stefnumótandi stjórnunaráætlun fyrir ferðaþjónustu í hverjum landshluta/Destination management plan (DMP)
Ferðamálastofa hyggst halda kynningarfund á Höfn miðvikudaginn 21. september nk. um verkefni sem snýr að því að vinna stefnumótandi stjórnunaráætlanir í hverjum landshluta fyrir sig.
Atvinnumálanefnd fagnar þeirri vinnu sem framundan er við skipulag og stefnumótun í ferðamálum, en bendir á að önnur tímasetning gæti verið heppilegri þar sem margir bæjarfulltrúar verða farnir á fjármálaráðstefnu þennan dag.
6.
Starfamessa á Hornafirði
Starfastefnumót verður haldið í Hornafirði fimmtudaginn 15. september. Starfsmaður kynnir þátttöku og framkvæmd fyrir atvinnumálanefnd.
Starfsmaður upplýsir að þátttaka á Starfastefnumótinu sé mjög breið og góð. Gerir undirbúningshópurinn ráð fyrir að dagurinn verði einkar fróðlegur og skemmtilegur fyrir alla íbúa sveitarfélagsins. Atvinnumálanefnd fagnar framtakinu og vonast til að sjá sem flesta á viðburðinum.