Fara í efni

Atvinnumálanefnd

20. fundur
28. september 2016 kl. 17:00 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir formaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Hlíf Gylfadóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Ný stefna Vöruhússins 2014
Málsnúmer 201410048
Vilhjálmur Magnússon forstöðumaður Vöruhúss og Fab Lab smiðju á Höfn kynnir verkefni og nýtingu Vöruhússins í þágu atvinnulífsins.
Ljóst er að mikil gróska er innan Vöruhússins og ánægja með hvernig það nýtist samfélaginu. Stefna Vöruhússins er frá árinu 2014 og hefur nú þegar mörgum markmiðum úr stefnunni verið náð.

Vilhjálmur upplýsir að mikill tími undanfarin misseri hafi farið í að byggja upp Vöruhúsið og Fab Lab smiðjuna, en að nú sé aðstaðan komin í fulla virkni.

Atvinnulífið er farið að sækja sér þekkingu og aðstöðu í Fab Lab smiðjuna í auknum mæli. Nú þegar hafa fjölmörg starfandi fyrirtæki og frumkvöðlar nýtt sér Fab Labið til nýsköpunar, vöruþróunar og virðisaukandi verkefna. Má þar nefna fyrirtæki á sviðum sjávarútvegs, ferðaþjónustu og iðnaðar svo dæmi séu tekin. Aðstaðan er opin fyrir alla og hvetur atvinnumálanefnd áhugasama til að kynna sér þau tækifæri sem Fab Labið og önnur aðstaða í Vöruhúsinu býður upp á.
2.
Ósk um breytingu á úthlutunarreglum byggðakvóta
Málsnúmer 201608008
Atvinnumálanefnd hefur tekið fyrir erindi Smábátafélagsins Hrollaugs. Nefndin telur ekki unnt að rökstyðja þá leið sem sett er fram í erindinu svo samræmist reglugerð nr. 641 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2016/2017. Á þeim forsendum sér nefndin sér ekki fært að verða við ósk félagsins.

Atvinnumálanefnd felur hinsvegar starfsmanni að kanna hvort unnt sé að hámarka samfélagslegan ábata af mögulegum byggðakvóta með ósk um sérstök skilyrði um úthlutun sbr. 2. gr. í áðurnefndri reglugerð.