Fara í efni

Atvinnumálanefnd

21. fundur
8. nóvember 2016 kl. 11:00 - 13:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir formaður
Herdís Ingólfsdóttir Waage varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Hlíf Gylfadóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Drög að nýrri reglugerð um heimagistingu og fl. til umsagnar
Málsnúmer 201611012
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur lagt fram til kynningar og umsagnar drög að reglugerð um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Frestur til að senda inn umsögn er til 15. nóvember nk. Hægt er að senda inn athugasemdir til Sambands íslenskra sveitarfélaga sem mun koma þeim á framfæri í umsögn sinni.
Atvinnumálanefnd telur margt ábótavant varðandi reglugerðina og felur starfsmanni að koma ábendingum til Sambands íslenskra sveitarfélaga.
2.
Atvinnuástand í Hornafirði 2016
Málsnúmer 201606074
Vinnumarkaðurinn er blómstrandi á svæðinu, en mikil vöntun er á vinnuafli. Miðað við samantekt á atvinnumarkaði á svæðinu þá voru
6 manns á atvinnuleysisskrá þann 1. september sl. og hefur þeim fækkað úr 14 síðan í apríl sl. Er þetta um 0,5% af áætluðu vinnuafli á svæðinu, en það eru 1279 manns. Af þeim sem eru á skrá hafa 2 manns lokið grunnskólamenntun, 1 einstaklingur er með framhaldsskólamenntun, einn með iðnnám og tveir með háskólamenntun. Tveir einstaklingar hafa verið atvinnulausir til skamms tíma, 2 aðilar hafa verið án vinnu í 6-12 mánuði og tveir í meira en eitt ár.
3.
Húsnæðisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201610013
Á 783. fundi sínum fól bæjarráð Hornafjarðar félagsmálastjóra, atvinnu- og ferðamálafulltrúa og skipulagsstjóra að móta drög að húsnæðisáætlun sveitarfélagsins.
Atvinnumálanefnd fagnar því að unnið sé að gerð húsnæðisáætlunar fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð, enda telur hún að brýnt sé að finna leiðir til úrbóta þar sem vöntun á húsnæði hamlar uppgangi í atvinnulífi.
4.
Afgreiðsla úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Umsókn 1510123-Brú yfir Kolgrafardalsá og brú "á milli fella"
Málsnúmer 201604009
Starfsmaður upplýsir atvinnumálanefnd um stöðu verkefnisins. Brúargerð yfir Kolgrafardalsá er að nær fullkláruð og öðrum þáttum verkefnisins miðar vel áfram. Stefnt er að því að ljúka við alla verkþætti fyrir næstu áramót og í framhaldi af því verður gönguleiðin opnuð formlega.

Atvinnumálanefnd telur verkefnið mjög brýnt fyrir framþróun í ferðamálum á svæðinu. Að sama skapi leggur hún áherslu á að unnin verði heildarsýn og skipulag fyrir verkefnið "Jöklaleið" sem unnt verður að notast við varðandi áframhaldandi uppbyggingu gönguleiðarinnar.
5.
Ný lög um gerð landsáætlunar um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
Málsnúmer 201604006
Unnin hafa verið drög að áætlun um uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum.
Atvinnumálanefnd lýsir yfir ánægju með þau drög sem lögð eru fram fyrir árið 2017. Hún leggur sérstaka áherslu á að láglendis landvarsla verði stóraukin árið um kring, enda er það brýnt öryggis- og náttúruverndarmál.
6.
Stefnumótandi stjórnunaráætlun fyrir ferðaþjónustu í hverjum landshluta/Destination management plan (DMP)
Málsnúmer 201609018
Frestað til næsta fundar.
7.
Jólahátíð í Hornafirði
Málsnúmer 201511028
Fyrirhugað er að halda jólahátíð í Hornafirði fyrsta sunnudag í aðventu, þann 27. nóvember nk.
Starfsmaður kynnir áform varðandi jólahátíð.
8.
Ósk um samstarf vegna mats og kortlagningar viðkomustaða ferðafólks
Málsnúmer 201608057
Á 778. fundi sínum lagði bæjarráð fram eftirfarandi bókun um mál 201608057:Bæjarstjóri fór yfir forsögu málsins og leggur til að Atvinnu- og ferðamálafulltrúi verði tengiliður sveitarfélagsins við verkefnið.Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um tengilið.
Frestað til næsta fundar.
9.
Samstarf í ferðamálum á Suðurlandi
Málsnúmer 201602049
Frestað til næsta fundar
10.
Mikligarður 2016 - framtíðarsýn
Málsnúmer 201606007
Frestað til næsta fundar
11.
Starfamessa á Hornafirði
Málsnúmer 201601053
Frestað til næsta fundar