Fara í efni

Atvinnumálanefnd

22. fundur
23. nóvember 2016 kl. 17:00 - 19:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir formaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Erla Rún Guðmundsdóttir aðalmaður
Hlíf Gylfadóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Árdís Erna Halldórsdóttir
Fundargerð ritaði:
Árdís Erna Halldórsdóttir Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
Dagskrá
1.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/2017
Málsnúmer 201609047
Sótt var um byggðakvóta í samræmi við auglýsingu Atvinnuvega-og nýsköpunarráðuneytis dags.6. september 2016 í hlut sveitarfélagsins koma 30 þorskígildistonn. Á 787. fundi bæjarráðs þann 7. nóvember sl. var því vísað til atvinnumálanefndar að skoða hvort óska eigi eftir breytingm á úthlutunarreglum á byggðakvóta.
Að mati atvinnumálanefndar er fært að auka samfélagslegan ábata af byggðakvóta með tilliti til eftirfarandi klausu í erindinu:

"Ráðuneytið beinir þeim tilmælum til bæjar- og sveitarstjórna að horfa til þeirrar mögulegu verðmætaaukningar og atvinnusköpunar sem hafa má af byggðakvóta, þegar reglur um ráðstöfun byggðakvótans verða mótaðar og minnir á að megintilgangur byggðakvótans er að stuðla að aukinni atvinnusköpun í viðkomandi byggðarlagi og hafa í huga kosti dagróðrarbáta í því skyni"

Leggur atvinnumálanefnd því til að þau fiskiskip sem landa fiski til fullvinnslu á heimamarkað hafi forgang við úthlutun byggðakvóta í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir fiskveiðiárið 2016/2017. Er starfsmanni falið að vinna að breytingartillögunni.
3.
Mikligarður 2016 - framtíðarsýn
Málsnúmer 201606007
Á 19. fundi atvinnumálanefndar þann 7. september sl. var lagt til að teiknaðar yrðu upp tvær til þrjár mismunandi sviðsmyndir með framtíð Miklagarðs og unnin rekstrarlíkön út frá þeim. Í hverri sviðsmynd fyrir sig skyldi meta kostnað við að gera húsið upp með tilliti til þess að sú starfsemi sem þar færi fram stæði undir rekstri hússins.
Lagðar voru fyrir þrjár mögulegar sviðsmyndir af Miklagarði. Atvinnumálanefnd var sammála um mikilvægi þess að lyfta húsinu svo full lofthæð fáist á neðri hæð hússins til að auka verðmæti eignarinnar. Málinu vísað til áframhaldandi vinnu.
4.
Stefnumótandi stjórnunaráætlun fyrir ferðaþjónustu í hverjum landshluta/Destination management plan (DMP)
Málsnúmer 201609018
Stefnumótandi stjórnunaráætlun fyrir ferðaþjónustuna í hverjum landshluta á Íslandi er eitt stærsta samhæfða þróunarverkefnið sem ráðist hefur hér á landi. Er það eitt af forgangsverkefnum Ferðamálastofu og eitt viðamesta áhersluverkefni Vegvísis/Stjórnstöðvar ferðamála.
Atvinnumálanefnd fagnar því að slík vinna hafi verið sett í forgang hjá Stjórnstöð ferðamála. Nefndin leggur einnig áherslu á að horft sé til þeirrar svæðisskiptingar sem nú þegar er unnið útfrá í ferðamálum á Suðurlandi þar sem Suðurlandi hefur verið skipt í þrjú svæði og Ríki Vatnajökuls fellur undir austasta svæðið.
Viðhengi
Um DMP.pdf
5.
ósk um samstarf vegna mats og kortlagningar viðkomustaða ferðafólks
Málsnúmer 201608057
Á 778. fundi sínum lagði bæjarráð fram eftirfarandi bókun um mál 201608057:Bæjarstjóri fór yfir forsögu málsins og leggur til að Atvinnu- og ferðamálafulltrúi verði tengiliður sveitarfélagsins við verkefnið.Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um tengilið.
Starfsmaður kynnti verkefnið, sem er hugsað sem langtímaverkefni. Umræður um áherslur varðandi kortlagninguna í Sveitarfélaginu Hornafirði. Lagði hún til að horft yrði til innviða svæða við forgangsröðun kortlagningarinnar.
6.
Samstarf í ferðamálum á Suðurlandi
Málsnúmer 201602049
Hlutverk Markaðsstofu Suðurlands er að vera leiðandi afl í að vinna með ýmsum aðilum í virðiskeðju ferðaþjónustunnar á Suðurlandi til að tryggja samstarf og samtal mismunandi hagsmunaaðila ásamt því að leiða samvinnu lykilaðila í stoðþjónustu ferðaþjónustunnar á Suðurlandi. Er Sveitarfélagið Hornafjörður aðili að slíku samstarfi.
Starfsmaður kynnir þau verkefni varðandi ferðamál sem unnið hefur verið sameiginlega að á Suðurlandi. Má þar nefna að aðilar á Suðurlandi koma sameiginlega fram á ferðakaupstefnum á grunni þrískiptingar Suðurlands, boðið er upp á samræmdar ferðavefsíður fyrir sveitarfélög og nýlega fékkst vilyrði fyrir styrk frá SASS til hönnunar á samræmdu útliti á bæklingum fyrir ferðamenn.